Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslendingar í London senda umheiminum mikilvæg skilaboð

Íslendingar í London senda umheiminum mikilvæg skilaboð
Þessi sýna í Lodon. Mynd / Samsett

Sex íslenskir hönn­uðir taka þátt í hönn­un­ar­sýn­ing­unni Virtual Design Destination: New Reality á London Design Festival 2020. Sýningin er í raf­rænu formi og vekja íslensku þátt­tak­end­urnir athygli á brýnu mál­efni.

Hlín Helga Guð­laugs­dóttir, annar sýn­ing­ar­stjóri fyrir Íslands hönd á Virtual Design Destination: New Reality, sam­sýn­ingu danska hönn­un­ar­gall­er­ís­ins Adorno, á hönn­un­ar­há­tíð­inni London Desgin Festival. .

„Við vildum senda þau skila­boð frá Íslandi og minna á að ham­fara­hlýnun er enn stað­reynd og mjög áþreif­an­leg, ekki hvað síst á norð­ur­hveli jarðar þótt hún hafi und­an­farið fallið svo­lítið í skugg­ann af heims­far­aldr­inum. Þess vegna ákváðum við að nota bráðnun jökla sem umgjörð fyrir íslenska hlut­ann á sýn­ing­unni, hún er auð­vitað áþreif­an­leg birt­ing­ar­mynd loft­lags­vand­ans. Minnir okkur á að þetta er allt mjög raun­veru­legt og við þurfum að bregð­ast við í sam­ræmi við það,“ útskýrir Hlín Helga Guð­laugs­dóttir.

Hlín og María Kristín Jóns­dóttir eru sýn­ing­ar­stjórar fyrir Íslands hönd á Virtual Design Destination: New Reality, sam­sýn­ingu danska hönn­un­ar­gall­er­ís­ins Adorno á hinni virtu hátíð London Desgin Festival. Hátíðin fer fram með breyttu sniði í ár vegna heims­far­ald­urs­ins og segir Hlín hana eins konar svar við ástand­inu.

„Hug­myndin er sú að hver og einn sýn­ing­ar­gestur geti ferð­ast að eigin vild um þennan spenn­andi sýnd­ar­veru­leika.“

Spennandi upplifun

„Þetta er í fyrsta sinn sem Adorno kynnir Virtual Design Destination, sýn­ingu í sýnd­ar­veru­leika,“ lýsir hún. „Heild­ar­þemað er þessi nýi veru­leiki sem blasir við eftir að heims­far­ald­ur­inn brast snemma á árinu og við búum mörg hver við. Það má segja að þarna sé verið taka þennan nýja og breytta veru­leika með öllum sínum zoom-fundum og raf­rænu fyr­ir­lestrum skref­inu lengra með því að bjóða almenn­ingi að taka þátt í að skapa sína eigin upp­lifun. Hug­myndin er sú að hver og einn sýn­ing­ar­gestur geti ferð­ast að eigin vild um þennan spenn­andi sýnd­ar­veru­leika og upp­lifað eitt­hvað skemmti­legt, áhuga­vert og óvænt.“

Mikilvægt málefni

Að sögn Hlínar er sam­sýn­ingin byggð upp á fjórtán staf­rænum heimum. Íslenski hluti sýn­ing­ar­innar ber yfir­skrift­ina Teng­ingar (Attu­nem­ent) og veltir upp spurn­ingum um sam­band mann­kyns­ins við jörð­ina og mögu­lega okkur sjálf í leið­inni. „Við völdum inn á sýn­ing­una sex íslenska hönn­uði sem hafa verið að velta upp spurn­ingum um sjálf­bærni og tengsl tækni og nátt­úru. Teygjum það meðal ann­ars inn í pæl­ingar um sam­fé­lags­miðla og blinda neyslu­hyggju og hvert við erum að stefna og hvernig við ætlum að halda áfram. Verkin á sýn­ing­unni hrópa kannski ekki á þig í ein­hverjum predik­un­ar­tóni um sjálf­bærni og betri heim, en þau vekja okkur til umhugs­unar um þessi mál­efni. Hönnuðir hafa auð­vitað ýmis­legt um þau að segja.“

Stökkpallur fyrir íslenska hönnuði

Rúmlega hund­rað hönn­uðir frá fjórtán löndum taka þátt í sýn­ing­unni og yfir 200 hönn­un­ar­munir eru til sýnis. Íslensku hönn­uð­irnir sem taka þátt í ár eru Birta Rós Brynjófs­dóttir og Hrefna Sig­urð­ar­dóttir undir merkjum Studio Fléttu, Björn Blu­men­stein, Valdís Stein­ars­dóttir, Ýr Jóhanns­dóttir, Sigríður Birna Matth­í­as­dóttir og Halldór Eldjárn. Er þetta fjórða sýn­ingin á vegum hönn­un­ar­gall­er­ís­ins Adorno sem íslenskir hönn­uðir sýna á og Hlín og María Kristín taka þátt í að stýra, en þess má geta að Ísland tekur þátt í sam­starfi við Miðstöð hönn­unar og arki­tekt­úrs og er styrkt af Íslands­stofu og sendi­ráði Íslands í London.

„Hönn­uð­irnir í ár bæt­ast þar með í hóp íslenskra hönn­uða sem hafa sýnt áður hjá Adorno, en það að vera hluti af sýn­ingu á vegum þessa virta gall­erís opnar auð­vitað sviðið fyrir íslenska hönn­uði,“ segir Hlín.

Á hverjum sýn­ing­ar­degi verða tvö lönd kynnt til sög­unnar, þar sem gestir geta skyggnst inn í hug­ar­heim hönn­uða, hitt þá í gegnum mynd­bands­við­töl og séð mun­ina í þeim sýnd­ar­veru­leika sem var sér­stak­lega búinn til í kringum þemað. Sýningin er öllum aðgengi­leg, hvar sem þeir eru nið­ur­komnir í heim­inum. Leiðsögn Íslands fer fram að morgni 14. sept­em­ber klukkan níu.

Óvenjuleg leiðsögn

Sýningin verður opnuð á morgun, laug­ar­dag­inn 12. sept­em­ber og stendur yfir til 20. sept­em­ber. Á hverjum sýn­ing­ar­degi verða tvö lönd kynnt til sög­unnar, þar sem gestir geta skyggnst inn í hug­ar­heim hönn­uða, hitt þá í gegnum mynd­bands­við­töl og séð mun­ina í þeim sýnd­ar­veru­leika sem var sér­stak­lega búinn til í kringum þemað. Gestir geta svo mátað um 100 muni frá hönn­uðum sýn­ing­ar­innar inn á heim­ili sín með aðstoð við­bætts veru­leika (aug­mented rea­lity). Þar sem hún er á raf­rænu formi segir Hlín að er hún sé öllum aðgengi­leg, hvar sem þeir eru nið­ur­komnir í heim­inum. Hún hvetur áhuga­sama að skrá sig á virtualdesigndestination.com. Leiðsögn Íslands fer fram að morgni 14. sept­em­ber klukkan níu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni