Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björgólfur Thor með Covid-19 og sér fram á tækifæri

Björgólfur Thor með Covid-19 og sér fram á tækifæri

Björgólfur Thor Björgólfs­son fjárfestir veikt­ist af Covid-19. Ekki bara hann heldur öll fjöl­skylda hans en þau eru búsett í Lundúnum.

Frá þessu greinir Björn Ingi Hrafns­son, rit­stjóri Viljans, þegar hann aug­lýsir bók sína Vörn gegn veitu. Í umfjöll­un­inni ræðir Björgólfur Thor um tæki­færin sem hann sér í breyttum heimi eftir Covid-19. Hann telur efna­meiri ferða­menn koma til með að ferð­ast til Íslands eftir far­ald­ur­inn sem skilji meira eftir í hag­kerf­inu heldur en massa­t­úrism­inn sem var hér áður.

Björn Ingi

Hér kemur skoðun Björg­ólfs Thors í heild sinni sem birt­ist í bók Björns Inga:

„Í stuttu máli má segja að Ísland hafi notið vin­sælda um allan heim vegna óspilltrar náttúru og ann­arra gæða svo sem hreins vatns og lítillar meng­unar. Í breyttum heimi eftir COVID-19 mun sú sérstaða aðeins verða dýrmæt­ari. Athygl­is­vert er að hafa í huga að náttúruham­farir hafa áður leitt til langtímaávinn­ings hjá okkur enda þótt þær hafi haft í för með sér skamm­vinnan skell. Gott dæmi um það er gosið í Eyja­fjallajökli þegar túrista­gos á íslenskan mæli­kvarða lam­aði allar flug­samgöngur í hálfan mánuð milli tveggja heimsálfa, Evrópu og Ameríku. Land­kynn­ingin sem Ísland fékk í kjölfarið var ómet­an­leg og átti sinn þátt í þeirri gríðar­legu þenslu sem varð í ferða­mennsku hér á landi á næstu árum. Nú þarf að huga að því með okkar besta fólki hvernig hægt er að end­ur­taka þann leik svo að Ísland komi öflugra út eftir far­aldur kórónaveirunnar.

Það er vel hægt. Lands­lagið í ferða­mennsku mun breyt­ast í heim­inum og ekki síst á Íslandi. Færri ferða­menn munu sækja landið heim, en þeir sem það gera munu eyða meira hér og skilja meira eftir sig í hag­kerf­inu. Þetta verða sem sagt efna­meiri ein­stak­lingar með meira ráðstöfun­arfé sem gera auknar kröfur um gæði og öryggi. Slíkt er líklega gott með til­liti til smæðar þjóðar­innar og þeirrar sérstöðu sem við viljum varð­veita eftir bestu getu.

Það getur ekki verið mark­mið okkar að laða að massatúrisma, milljónir ferða­manna sem koma hingað með lággjalda­flugfélögum og skilja lítið eftir sig. Með öðrum orðum: Þetta verður frekar spurn­ing um gæði en magn og ætti að leiða til þess að fram­leiðni í ferða­þjónustu sem atvinnu­grein gæti auk­ist enda þótt ferðamönnum fækki. Það er áhuga­verð staða og felur í sér gríðar­leg tæki­færi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina