Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kjartan stýrir nýjum milljarða frumkvöðlasjóði

Kjartan stýrir nýjum milljarða frumkvöðlasjóði
Mynd / Aðsend.

Nú á haust­mán­uðum verður ýtt úr vör nýjum átta millj­arða vís­is­sjóði, Brunnur vaxt­ar­sjóður, sem ætlað er að taka meðal ann­ars þátt í frum­kvöðla- og nýsköp­un­ar­verk­efnum. Frum­kvöð­ull­inn Kjartan Örn Ólafsson hefur gengið til liðs við sjóð­inn sem einn af fjár­fest­ing­ar­stjórum þess.

Sjóð­ur­inn var stofn­aður árið 2015. Kjartan hefur stofnað og rekið eigin nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækið bæði á Íslandi og í Banda­ríkj­unum. Má þar nefna félög eins og Basno, GRID, Já, Data­mar­ket og TeaTime. Árið 2011 stofn­aði Kjartan tækni­fyr­ir­tækið Basno Inc. sem starfar í New York og tryggði því fjár­mögnun frá leið­andi banda­rískum vís­i­sjóðum. Áður var hann um ára­bil fram­kvæmda­stjóri á við­skipta­þró­un­ar­sviði fjöl­miðla­fyr­ir­tæks­ins Ber­tels­mann Inc. í New York. Þar stýrði hann nýsköp­un­ar­verk­efnum fyrir dótt­ur­fyr­ir­tæki þess svo sem Random House, SonyBMG Music og Frem­antle Media sem öll eru leið­andi á heims­vísu á sínu sviði.

„Kjartan hefur ára­tuga reynslu af árang­urs­ríku nýsköp­un­ar­starfi. Hann er reyndur frum­kvöð­ull bæði hér á Íslandi og erlendis auk þess að vera far­sæll engla­fjár­festir. Hann hefur viða­mikið tengsla­net í frum­kvöðla- og vísi­heim­inum í Banda­ríkj­unum. Við höfum kynnst vel í gegnum starfið hjá Brunni og vitum að við eigum leið saman. Það gleður okkur inni­lega að fá hann í teymið og sem með­eig­anda í sjóðnum“, segir Árni Blöndal fjár­fest­inga­stjóri og annar stofn­enda Brunns Ventures.

Und­an­farin ár hefur Kjartan verið virkur í íslensku nýsköp­un­ar­starfi bæði beint og í gegnum nýsköp­unar- og við­skipta­þró­un­ar­fé­lag sitt Volta ehf. og hefur meðal ann­ars verið val­inn íslenskur engla­fjár­festir árs­ins af Nordic Startup Awards. Utan við­skipta­lífs­ins hefur Kjartan setið í stjórnum fjöl­margra sam­taka og stofn­ana svo sem American-Scandinavian Foundation, Hörpu tón­list­ar­húss, verið stjórn­ar­for­maður Lista­há­tíðar í Reykja­vík og er stjórn­ar­for­maður UNICEF á Íslandi.

Kjartan las heim­speki og rök­fræði til BA-prófs við Háskóla Íslands og Háskól­ann í Genúa á Ítalíu, og lauk MBA-gráðu frá Harvard Business School. „Ég hef setið í stjórn Brunns vaxt­ar­sjóðs frá stofnun og hef unnið náið með þeim Sigurði Arn­ljóts­syni og Árna Blöndal, fjár­fest­inga­stjórum Brunns Ventures. Sjóð­ur­inn hefur náð eft­ir­tekt­ar­verðum árangri og því er spenn­andi að taka þátt í stofnun næsta sjóðs og slást í hóp­inn sem fjár­fest­inga­stjóri. Það er fjöl­margt áhuga­vert að gerj­ast meðal íslenskra frum­kvöðla. Ég hlakka til að vinna með þeim og nýta reynslu mína til að auka lík­urnar á að íslensk nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki nái árangri á heims­vísu“, segir Kjartan Örn Ólafsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina