Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tafir á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu – Ekki réttur til vaxta

Tafir á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu – Ekki réttur til vaxta
Mynd / Unsplash

Allir vinna átakið var end­ur­vakið í vor, en í því felst 100% end­ur­greiðsla á virð­is­auka­skatti af vinnu manna við hönnun, við­hald og nýbygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis, frí­stunda­stunda­hús­næðis og mann­virkja í eigu félaga­sam­taka, auk vinnu við bíla­við­gerðir.  

Mannlíf fékk ábend­ingu um ein­stak­ing sem skil­aði inn umsókn um end­ur­greiðslu í lok júlí og átti sam­kvæmt skil­málum umsókn­ar­innar að fá virð­is­auka­skatt­inn end­ur­greiddan innan 30 daga. Maðurinn hafði sam­band við Skatinn nú í vik­unni þar sem end­ur­greiðsla hefur enn ekki borist og fékk þau svör að ekki „hafði enn gef­ist tími“ til að greiða honum til baka sam­kvæmt umsókn hans. Ætla má að sama eigi við um hund­ruðir, ef ekki þús­undir ann­arra ein­stak­linga sem skilað hafa inn sam­bæri­legri umsókn í Allir vinna.

Mannlíf hafði sam­band við Skattinn til að leita svara við þessum drætti á greiðslum, og eins hvort umsækj­endur ættu rétt á vöxtum á greiðslum sem drag­ast, sumar jafn­vel fram úr hófi.

„Nei það á það ekki,“ segir Elín Alma Arth­urs­dóttir, sviðs­stjóri hjá Skatt­inum. „30 dag­arnir eru eitt­hvað sem við stefnum að að ná,“ segir Elín, og bendir að í umsókn­ar­ferl­inu komi fram að búast megi við afgreiðslu innan 30 daga, en sá tími sem nefndur er sé ekki lög­festur.

„Ástæðan fyrir því að það næst ekki núna er vegna þess að umsókn­ar­fjöld­inn hefur þre­fald­ast frá því í maí,“ segir Elín og bætir við að umsókn­ar­ferlið hafi verið gert raf­rænt í vor. Umsóknir hafi safn­ast upp þá, en síðan þre­fald­ast eins og áður sagði.

Í frétt RÚV um átakið 30. júní kom fram að spreng­ing hefði orðið í umsóknum, en hátt í fimm þús­und umsóknir höfðu þá borist og sneru flestar að end­ur­greiðslu vegna bíla­við­gerða. Stóð þá til að opna fyrir mögu­leika fleiri aðila að sækja um end­ur­greiðslu.

Umsóknir vegna bílaviðgerða afgreiddar hraðar

„Við erum búin að ná mjög mik­illi afgreiðslu í sam­bandi við bíla­við­gerð­irnar, en það hefur ekki gengið eins hratt með við­halds­um­sókn­irnar, sem er ein­fald­lega vegna þess að það tekur lengri tíma að fara yfir þær. Umsóknir vegna bíla­við­gerða eru ein­fald­ari.

Sé miðað við tölur 11. sept­em­ber hafa borist 6.518 umsóknir vegna bíla­við­gerða, og þá búið að afgreiða 5.289 þeirra, og þá 1.229 umsóknir óaf­greiddar. „Í bíl­unum er ekki langur afgreiðslu­tími,“ segir Elín.

„Við höfum brugð­ist við með því að ráða inn starfs­menn á Siglu­firði og taka inn aðra starfs­menn í þessa afgreiðslu, en fjöld­inn er bara svo mik­ill miðað við mann­afl­ann.“

Umsóknir í heild árið 2020 sé miðað við 11. sept­em­ber eru 22.889 tals­ins, á sama tíma í fyrra voru þær rúmar 8.000 að sögn Elínar. „End­ur­bætur á íbúð­ar­hús­næði frá ein­stak­lingum eru 14.694 tals­ins, 10.657 þeirra komu inn frá júní til 11. sept­em­ber. Það hefur verið aukn­ing í þeim umsóknum líka, eins og sést.“

Tímamörk umsóknar um endurgreiðslu

Allir vinna átakið og 100% end­ur­greiðsla á virð­is­auka­skatti mið­ast við tíma­bilið 1. mars til og með 31. des­em­ber 2020. Þetta þýðir að svo lengi sem reikn­ing­ur­inn frá fyr­ir­tæk­inu er dag­settur innan þess­ara tíma­marka þá verður hægt að sækja um end­ur­greiðslu á honum hvenær sem er á tíma­bil­inu og jafn­vel lengur.

Elín Alma bendir á að umsókn­ar­frest­ur­inn mið­ist þó ekki við þessi tíma­mörk, heldur ein­ungis dag­setn­ing reikn­ings/a.

„Það eru ekki mörk á því, við höfum tekið umsóknir alveg mörg ár aftur í tím­ann,“ segir Elín Alma. „Þær eru ekki margar, en það kemur alveg fyrir að það séu 2-3 ár aftur í tím­ann, en mest er þetta innan hvers árs.“

Áttu von á að umsóknum fjölgi enn meira?

„Nei ég hugsa að þetta verði bara svipað út árið, en maður veit það ekki. Það gæti verið að ein­hverjir hafi farið í utan­hússvið­gerðir, hellu­lagnir og slíkt, sem fólk fer í á sumrin, en það er ekki hægt að segja til um það. En það gæti verið meiri kúfur á sumrin og mér finnst lík­legt að umsóknir eftir sum­arið verði fleiri en eftir síð­asta sumar,“ segir Elín Alma.

Nánari upp­lýs­ingar um Allir vinna má finna á heima­síðu Skatts­ins

Ert þú með ábend­ingu um neyt­enda­mál? Sendu póst á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina