Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna: „Nú kemur í ljós að móðir mín var auðkýfingur“

Sólveig Anna: „Nú kemur í ljós að móðir mín var auðkýfingur“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, er kald­hæðin í pistli sem hún birtir á Facebook. Þar gerir hún grín af Við­skipta­blað­inu sem virð­ist halda því fram að fólk sem eigi íbúð skuld­laust í blokk séu hinir sönnu auð­kýf­ingar Íslands.

„Við­skipta­blaðið er búið að reikna þetta fyrir okkur: Það eru mamma þín og pabbi í blokk­inni sem eru rík­asta fólkið á Íslandi! Þannig að vilj­iði gjöra svo vel að hætta þessu væli og byrja sam­stundis að gleðj­ast yfir því að eiga millj­óna­mær­inga fyrir for­eldra,“ skrifar Sólveig og heldur áfram:

„Nú eru báðir for­eldrar mínir látnir. Hannes Hólm­steinn hélt því fram fyrir skemmstu á prenti að faðir minn hefði fengið Rússa­gull fyrir að vera komma-svín og nú kemur í ljós að móðir mín var auð­kýf­ingur. Alla mína blokkar-barna og ung­lina-ævi var mér talið trú um að við værum blönk. Og það sem ég taldi vera stór­kost­legt örlæti móður minnar sem var ávallt til í að deila því sem hún átti með öllum í kringum sig var bara ekk­ert annað en níska, leik­rit sett á svið til að fela raun­veru­lega ríki­dæmið.“

Skjáskot sem Sólveig birtir af Við­skipta­blað­inu.

Sólveig segir að nú þurfi hún bara að finna allt þetta gull. „Nú þarf ég bara að byrja að leita að auð­æf­unum. Ein­hver­staðar hljóta þau að leyn­ast. Ekki veit ég þó hvar. Helst kemur auð­vitað til greina að leita í garð­inum bak við blokk­ina, eða í Mun­að­ar­nesi, þar sem við fórum alltaf í sum­ar­frí af því þau voru jú alltaf að þykj­ast vera svo blönk. Svona eru þessir kommar, alltaf að plata og vera vondir,“ skrifar Sólveig.

Hún seg­ist stefna á að kaupa sér skóflu svo hún geti grafið rússa­gullið meinta upp. „Mig hefur reyndar aldrei langað til að vera rík en hver er ég til að slá hend­inni á móti ann­ars­vegar illa fengnum sovét-auði og hins vegar ríki­dæmi blokkar­í­búðar-eig­and­ans? Sem inni­legur örlaga-trú­ari get ég ekki annað en sætt mig við þetta hlut­skipti. Ég þarf að kaupa mér góða skóflu og byrja svo að moka. Kannski get ég fengið svona ríku-fólks skatt­afslátt útá kaupin?,“ spyr Sólveig.

Stofna klúbb

Hún segir að lokum að nú geti hún stofnað klúbb ásamt öðrum börn auð­stétt­ar­innar. „Svo skulum við blokk­ar­börnin sem vissum ekki að mamma og pabbi væru með­limir auð­stétt­ar­innar stofna klúbb. Alltaf gaman að hitta fólk með svip­aðan bak­grunn og mynda tengsla­net og svona. En ég verð því miður kannski ein í klúbbi þeirra sem bæði eiga rússa­gull og blokkar-auð. Sem er auð­vitað dálítið sad. En ég hlýt að kom­ast yfir það,“ skrifar Sólveig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina