Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjörleifur hjólar í sófasérfræðingana: „Sannfærðir um að þríeykið okkar sé illa innrætt“

Hjörleifur hjólar í sófasérfræðingana: „Sannfærðir um að þríeykið okkar sé illa innrætt“

Hjör­leifur nokkur Jóhann­es­son er ósáttur við þá sem hann kallar sófasér­fræð­inga Íslands. Þá meinar hann alla þá sem telja sig vita best, meira að segja um sótt­varnir lands­ins og það betur heldur en þrí­eykið þjóð­fræga. Margir eru sam­mála honum, þar á meðal Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­kona.

Þetta ritar Hjör­leifur í færslu á Facebook sem vakið hefur athygli. „Við lifðum for­dæma­lausa tíma síð­ast­lið­inn vetur. Þjóðin stóð saman, fólk hélt sig til hlés, úr fjar­lægð fylgd­umst við með því hvernig ástandið fór úr bönd­unum í löndum allt í kringum okkur. Vissu­lega hafði þetta áhrif á Íslend­inga, fyr­ir­tæki lok­uðu, ferða­menn hættu að koma og þjóðin varð hálf dofin. Svo varð allt betra í einni hend­ingu, tveggja metra reglan varð að einum metra (eða senti­metra í fram­kvæmd) og þjóðin fyllt­ist bjart­sýni,“ segir Hjör­leifur.

„Ég geri ekki við mínar eigin tennur, segi mínum tann­lækni aldrei hvernig hún á að beita bornum.“

Hjör­leifur bendir á að vel hafi gengið í fyrstu og annarri bylgju kór­ónu­veiru­fald­ars­ins þökk sé sótt­varn­ar­að­gerðum. En ekki gangi eins vel í þriðju bylgj­unni, þökk sé sófasér­fræð­ing­unum. „Sú virð­ist verri en marga óraði fyrir, ekki bara er far­ald­ur­inn slæmur, sófasér­fræð­ingar virð­ast hafa útskrif­ast í stórum hópum í sumar. Nú herjar á okkur fólk sem veit allt um sótt­varnir og hegðun far­ald­urs­ins. Heit­trú­aðir og óþreyt­andi við að grafa upp allskyns greinar og slag­orð. Sann­færðir um að þrí­eykið okkar sé illa inn­rætt og bara að leika sér með vel­ferð þjóð­ar­innar. Fólk sem skrifar nán­ast eins og veiran sé ekki til sem raun­veru­leg ógn eða eitt­hvað sem við ættum að hafa nokkrar áhyggjur af. Þeir sem ekk­ert vita eru oft manna viss­astir um að þeir viti allt um ákveðið mál­efni. Eftir því sem þekk­ing eykst, eykst efinn. Verði menn sér­fræð­ingar eykst síðan full­vissan, en nær oft ekki nándar nærri sömu full­vissu og hjá þeim sem vita ekk­ert,“ segir Hjör­leifur og bætir við:

„Ég við­ur­kenni fús­lega að hafa ekk­ert lært í veiru­fræði og enn minna í far­alds­fræðum. Ég ætla Þórólfi ekki að stjórna flug­vél­inni til London þegar hann sest upp í slíka. Þar eru menn með þá þekk­ingu. Ég geri ekki við mínar eigin tennur, segi mínum tann­lækni aldrei hvernig hún á að beita bornum. Samt á ég stóra bor­vél með raf­hlöðu heima.“

Hjör­leifur leggur á það áherslu að Íslend­ingar treysti áfram þeim sér­fræð­ingum sem fjalla um Covid-19. Þar séu ákvarð­anir teknar af fag­mennsku frekar en ill­mennsku. „Það er kom­ist að nið­ur­stöðu sem þykir rétt­ust í hvert sinn. Hvort hún er síðan rétt mán­uði síðar er alls ekki víst. Sér­fræð­ingar okkar eiga frekar virð­ingu okkar skilið og þakk­læti fyrir að standa í eld­lín­unni, því þetta er svo sann­ar­lega eld­lína. Nágranna­löndin glíma líka við veiruna, það er stað­reynd sem sumum gengur illa að við­ur­kenna. Öndum með nef­inu, stöndum bara saman og hættum að agn­ú­ast út í þá sem nú nota þá sér­fræði­þekk­ingu sem við hin höfum ekki,“ segir Hjör­leifur ákveð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina