Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jónas lögmaður vill fara í mál við Kína út af COVID

Jónas lögmaður vill fara í mál við Kína út af COVID

Jónas Har­alds­son lög­maður segir engum blöðum um það að fletta að Kína er tjón­vald­ur­inn að Covid-19 og fyrir það eigi stór­veldið að borga. Hann segir engan eiga að kom­ast skað­laus frá því að rústa heillri heims­byggð sem aldrei verði söm og áður.

Þetta segir Jónas í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Hann telur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn stafa af yfir­þyrm­andi sóða­skap í Kína og síð­búnum við­brögðum þar­lendra stjórn­valda. Þjóðir heims hafi orðið fyrir gíf­ur­legu mann­falli og fjár­tjóni í kjöl­farið sem Kína ber fulla bóta­á­byrgð á að mati lög­manns­ins. „Leiddi það síðan eins og alkunna er til útbreiðslu veirunnar um allan heim með hörmu­legum afleið­ingum, sem engan veg­inn er séð fyrir end­ann á í dag, bæði hvað snertir tölu lát­inna og umfang fjár­tjóns­ins. Hefur að auki eitrað dag­legt líf allra íbúa land­anna með einum eða öðum hætti. Að geta rústað umheim­inum ein­göngu með eigin sóða­skap er athygli­vert, en skelfi­legt til­hugs­unar. Má færa rök fyrir því, að fjár­tjónið muni alla vega skipta þús­undum millj­arða, sem tjón­vald­ur­inn Kína ber fulla bóta­á­byrgð á,“ segir Jónas og bætir við:

„Það rústar eng­inn heims­byggð­inni og kemst skað­laus frá því. Ættu allar þjóðir heims að sam­ein­ast varð­andi kröfu­gerð á hendur Kína og fylgja því fast eftir. Mann­fallið verður þó aldrei bætt eða eyði­legg­ingin á dag­legu lífi fólks og á mann­legum sam­skiptum, sem þessi veira hefur leitt af sér um allan heim.“

„Allir verða að bera ábyrgð á gerðum sínum og öllu því tjóni, sem þeir kunna að valda öðrum.“

Jónas kemur líka inn á þá hjálp sem Kín­verjar hafi veitt ýmsum þjóðum heims í far­aldr­inum, meðal ann­ars hér á landi. Hann segir það samt ekki koma í veg fyrir að Kína eigi að borga. „Varðandi skaða­bóta­skyldu Kínverja þá gæti maður til sam­an­burðar í dæma­skyni spurt sig, hvort það væri nóg, að sá sem t.d. veldur gríð­ar­legum elds­voða, sem leiðir til fjölda­dauða og gíf­ur­legs fjár­tjóns og á sjálfur alla sök­ina á upp­tökum elds­ins, sé þá þar með laus allra mála, ef hann hefur sjálfur náð að slökkva eld­inn í eigin húsi, þar sem upp­tök elds­ins voru. Hafi jafn­framt að ein­hverju leyti tekið þátt í að slökkva eld­inn í húsum ann­arra, sem standa öll í ljósum logum um alla borg­ina. Gefið eig­endum þeirra góð ráð um hvernig standa eigi að slökkvi­starf­inu og til við­bótar slakað út ein­hverju fé hinum til handa til kaupa á hlífð­ar­bún­aði og skaða­bóta­skildan hverfur að sjálf­sögðu ekki við þetta,“ segir Jónas.

Þá er Jónas þeirrar skoð­unar að Kín­verjar geti ekki not­ast sér það sem vörn að hafa sjálfir orðið fyrir efna­hags­legu tjóni vegna veirunnar. Hann segir eyði­legg­ingu vegna Covid-19 vera hví­líka að hún hafi haft nei­kvæð áhrif á hvert ein­asta manns­barn jarð­ar­innar. „Allir verða að bera ábyrgð á gerðum sínum og öllu því tjóni, sem þeir kunna að valda öðrum, hvort heldur tjónið stafar af stór­felldu eða víta­verðu gáleysi og hvort heldur það er ein­stak­lingur eða þjóð­ríki, sem í hlut á. Mesta stór­veldi heims­ins, Kína, tjón­vald­ur­inn sjálfur í þessu til­viki, er þar að sjálf­sögðu ekki und­an­þegið,“ segir Jónas.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina