Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég heiti Gunnar Jónsson og ég stel skeiðum“

„Ég heiti Gunnar Jónsson og ég stel skeiðum“
Mynd / Skjáskot Facebook.

Tón­list­ar­mað­ur­inn Gunnar Jónsson við­ur­kennir fyrir alþjóð að hann er skeiða­þjófur. Þetta byrj­aði með einni skeið sem hann stal á tælenska veit­inga­staðnum Ban Thai sem nú hefur þró­ast upp í það sem hann kallar skeiða­sýki.

Játningu Gunnars má finna í færslu hans á Facebook þar sem hann lýsir því ítar­lega þegar hann stal sinni fyrstu skeið. Það gerði hann fyrir nokkrum mán­uðum síðan í hefnd­ar­skyni vegna lélegrar þjón­ustu. „Þeir sem þekkja til vita að Ban Thai á Lauga­veg­inum býður í senn upp á einn besta tælenska mat lands­ins og verstu þjón­ustu sem völ er á. Algjört yin og yang. Umrætt kvöld var þjón­ustan einmitt hræði­leg og í þokka­bót var hávær hópur af plebbum á borð­inu við hlið­ina á okkur sem voru eins og klipptir út úr American Psycho: Þeir hlógu grodda­lega og óein­lægt að lélegum brönd­urum hvors ann­ars sem allir voru á kostnað ein­hvers. Krag­arnir á skyrt­unum þeirra voru ekki í sama lit og afgang­ur­inn af skyrt­unum þeirra. Það voru axla­bönd,“ segir Gunnar og heldur áfram:

„Gæjarnir voru meira að segja svo óþol­andi að ég spurði vél­menna­stelpuna sem er búin að þjóna til borðs þarna í 15 ár án þess að eld­ast um dag hvort hún væri með annað borð fyrir okkur sem væri ekki alveg ofan í þessum háværu, verð­andi morð­ingjum, en hún starði bara dauð­eygð á mig og sagði að það væri allt fullt. Ég ákvað að hlífa henni við þeirri stað­reynd að ég væri full­kom­lega með­vit­aður um að það væri heil efri hæð á staðnum sem væri auð (og er nán­ast aldrei notuð, vænt­an­lega því það væri hrein­lega of mikil þjón­usta!) svo ég sett­ist aftur.“

Það var hér sem Gunnar rændi sinni fyrstu skeið. Mynd / Skjáskot Facebook.

Þrátt fyrir óbæri­leg læti í öðrum gestum veit­inga­stað­ar­ins segir Gunnar að mat­ur­inn hafi verið góm­sætur. Þá tók við annað vanda­mál sem fór óstjórn­lega í taug­arnar á tón­list­ar­mann­inum. „En ég tók eftir því að skammt­arnir voru orðnir tölu­vert minni en áður og til við­bótar fylgdu hrís­grjónin ekki með eins og í gamla daga, heldur þurfti að borga auka­lega fyrir þau. Ég nefndi þetta við mann­eskj­una sem sat við hlið­ina á mér en hún heyrði ekk­ert í mér því American Psycho-pleb­b­arnir voru að fá enn eitt falska hlát­ur­skastið yfir brand­ara um ein­stæðar mæður. Allt þetta varð til þess að ég fór að finna fyrir nokk­urri bit­urð. Þvílík sví­virða. Ég er almennt frekar með­vit­aður um að vera sáttur við það sem ég hef og þessar aðstæður voru skil­grein­ingin á fyrsta heims vanda­máli. En á sama tíma gat ég ekki afneitað bit­urð­inni sem var farin að krauma,“ segir Gunnar.

Gunnar fór á þessum tíma­puntki að velta fyrir sér hvernig hann gæti brugð­ist við til að geta gengið sáttur frá borði. Hann úti­lok­aði að kvörtun eða end­ur­greiðslu­beiðni myndi nokkru skila. „Skyndi­lega varð ég fyrir vitrun: Ég ákvað að það eina rétta í stöð­unni væri að stela skeið af borð­inu! Án þess að hika seild­ist ég í mynd­ar­lega skeið sem lá ónotuð fyrir framan mig og setti hana umsvifa­laust í brjóst­vas­ann á jakk­anum mínum. Ég pass­aði að skeiðin væri mjög sýni­leg þar sem hún stakkst upp úr vas­anum. Að fela skeið­ina var í mínum huga smán­ar­legt, en að fjar­lægja skeið af Ban Thai fyrir opnum tjöldum var á því augna­bliki það heið­ar­leg­asta sem mér datt í hug: Ban Thai býður upp á verri og verri þjón­ustu með hverjum deg­inum sem líður. Ég tek af þeim skeið! Og ef silki­klæddi róbót­inn vill skanna mig og yfir­buga á leið­inni út þá er það hennar réttur. Jafn­tefli. Kosmísku jafn­vægi er náð,“ segir Gunnar.

„Ég er í senn flón og þrjótur og það er ekki rétt að leyna því.“

Gunnar slapp útaf staðnum með skeið­ina sem hann segir í dag vera fal­leg­ustu og sterk­byggð­ustu skeið heim­il­is­ins. Hann langar í fleiri. „Nú er hins­vegar komin upp sú und­ar­lega staða að gjörn­ingur sem hófst sem til­raun til að halda til­finn­inga­legu og kosmísku jafn­vægi hefur snú­ist upp í sið­spilltan masókisma: Ég þrái nú ekk­ert heitar en að kom­ast fljótt aftur á Ban Thai með hópi fólks svo ég geti fengið slæma þjón­ustu og stolið fleiri skeiðum. Ég þarf fleiri skeiðar, gott fólk. Þetta er án gríns besta skeið sem ég hef notað. Hún er djúp, þung og fal­lega sveigð og ég vil meira! Og ég hugsa dreym­inn til plebba­hóps­ins sem gerði mér kleift að stela henni og sakna hlát­urs­ins og glæsi­legra axla­band­anna og kalds augna­ráðs vél­menna­stelpunnar,“ segir Gunnar sem þykir mik­il­vægt að við­ur­kenna hver hann raun­veru­lega er:

„Mér finnst ótækt að þið eigið mig sem Facebook vin án þess að vita hver ég er. Hver ég raun­veru­lega er. Ég heiti Gunnar Jónsson og ég stel skeiðum ef mér finnst það eiga við. Ég hika ekki við það! En það sem hófst sem til­raun til að vera frjáls þró­að­ist út í enn annað form af helsi og löngun. Ég er í senn flón og þrjótur og það er ekki rétt að leyna því. Leynd fylgir sam­visku­bit og sam­visku­bit er alveg jafn slæmt og bit­urð. Því kem ég nú hreint til dyra með þetta allt saman. Ykkur er í sjálfs­vald sett hvort þið til­kynnið stuld minn til Ban Thai eða lög­regl­unnar eða njótið ein­fald­lega frá­sagn­ar­innar án þess að grípa til aðgerða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina