Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Alltaf verið að reyna að laga mig“

„Alltaf verið að reyna að laga mig“

Signý Rós Ólafs­dóttir hlaut verð­laun sem Outstanding woman director á kvik­mynda­há­tíð­inni Winter Film Awards International Film Festival í New York í vor fyrir útskrift­ar­verk­efni sitt úr Kvik­mynda­skóla Íslands, aðeins tví­tug að aldri. Fyrir nokkrum árum hefði hana þó ekki grunað að hún yrði á þessum stað í til­ver­unni því hún pass­aði engan veg­inn inn í skóla­kerfið og seg­ist í grunn­skóla sífellt hafa fengið þau ósögðu skila­boð að hún væri heimsk. Í tíunda bekk kom í ljós að hún er með les­blindu og athygl­is­brest, sem í dag er greint ADHD sem hafði verið ógreint öll þessi ár og það breytti ýmsu.

Spurð hvort við­mótið sem hún mætti í skóla­kerf­inu hafi brotið sjálfs­mynd hennar segir Signý Rós engan vafa leika á því.
„Já, það gerði það,“ segir hún hugsi. „Af því manni fannst maður alltaf vera að klúðra öllu og mamma og pabbi voru á enda­lausum for­eldra­fundum út af mér. Það var alltaf verið að reyna að laga mig til að ég pass­aði inn í rammann. Skila­boðin voru: Þú mátt vera eins og þú vilt svo lengi sem það hentar okkur og passar inn í formið okkar. Það var bara ekk­ert vit í þessum mis­vísandi skila­boðum.

„Það var alltaf verið að reyna að laga mig til að ég pass­aði inn í rammann.“

Svo kom maður heim og átti að læra ein­hverja stærð­fræði sem öllum fannst svo auð­veld en fyrir mér voru þetta algjör geim­vís­indi, ég sat bara og starði á bæk­urnar. Og þegar allir aðrir segja að þetta sé auð­velt þá finnst manni maður auð­vitað bara vera heimskur að geta það ekki en á þeim tíma hefði ég vel geta talið upp alla leik­menn í ensku deild­inni og þá sér­stak­lega í Liverpool, það var eitt­hvað sem ég hafði áhuga á. Annars hafði ég lengi lifað í þeirri trú að ég væri vit­laus og heimsk áður en ég byrj­aði í Kvik­mynda­skól­anum.“

Til liðs við Geðhjálp

Nú hefur Signý Rós gengið til liðs við Geðhjálp og mun þegar COVID-19 ferð­ast milli grunn­skóla lands­ins og segja sögu sína til að hvetja og styrkja þau börn sem verða út undan í skóla­kerf­inu. „Ég var að vinna fyrir ADHD-sam­tökin, eins og ég sagði áðan og leit­aði til alls konar fólks sem veit meira um það mál­efni en ég,“ útskýrir Signý Rós. „Ég sendi meðal ann­ars skila­boð á Héðin Unn­steins­son for­mann Geð­hjálpar til að fá spjall við hann. Við hitt­umst og áttum mjög gott spjall og svo var hann bara búinn að bóka fund með Grími fram­kvæmda­stjóra hjá Geðhjálp. Þegar til kom mætti Héðinn hins vegar ekki á fund­inn og við Grímur höfðum aldrei hist þannig að við vissum eig­in­lega ekki hvernig við ættum að nálg­ast umræð­una, en svo kom í ljós að þeir höfðu verið að ræða það að fá mig með sér í ferð í skóla hring­inn í kringum landið til að segja mína sögu af skóla­kerf­inu og að það sé hægt að ná langt þótt maður nái ekki að leysa jöfnur og að það sé hægt að gera góða hluti þótt maður sé ekki góður í dönsku og funkeri ekki alveg í átta til þrjú skóla­kerfi.

Þetta er flókið og það eru allir að gera sitt besta, ég hef alla vega aldrei hitt mann­eskju sem er eitt­hvað að reyna að standa sig illa, þetta er greini­lega bara það stórt vanda­mál sem aðeins þarf að hrista upp í og skoða í kjarn­ann. Það eru nefni­lega ekki allir eins og sama kerfi og hug­mynda­fræði hentar ekki öllum.“

Lestu við­talið í heild sinni.
Viðtalið má líka nálg­ast í blaði Geð­hjálpar

Sjá einnig www.39.is. Þar getur þú skrifað undir áskorun þess efnis að setja geð­heilsu í for­gang í sam­fé­lag­inu.

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Einnig er hægt að leita til Píeta sam­tak­anna og sím­inn opinn allan sól­ar­hring­inn og er 552-2218 og vef­síðan www.pieta.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur