Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fór í gegnum allan grunnskólann án þess að fá aðstoð

Fór í gegnum allan grunnskólann án þess að fá aðstoð

Signý Rós Ólafs­dóttir hlaut verð­laun sem Outstanding woman director á kvik­mynda­há­tíð­inni Winter Film Awards International Film Festival í New York í vor fyrir útskrift­ar­verk­efni sitt úr Kvik­mynda­skóla Íslands, aðeins tví­tug að aldri. Fyrir nokkrum árum hefði hana þó ekki grunað að hún yrði á þessum stað í til­ver­unni því hún pass­aði engan veg­inn inn í skóla­kerfið og seg­ist í grunn­skóla sífellt hafa fengið þau ósögðu skila­boð að hún væri heimsk.

Í tíunda bekk kom í ljós að Signý Rós er með les­blindu og athygl­is­brest, sem í dag er greint ADHD sem hafði verið ógreint öll þessi ár og það breytti ýmsu. Nú hefur Signý Rós gengið til liðs við Geðhjálp og mun í vetur ferð­ast milli grunn­skóla lands­ins og segja sögu sína til að hvetja og styrkja þau börn sem verða út undan í skóla­kerf­inu.

Signý Rós flutti nokkrum sinnum sem barn vegna náms og vinnu for­eldr­anna og var í fjórum grunn­skólum en það var alls staðar sama sagan, alveg fram í níunda bekk grunn­skól­ans. „Það voru samt margir kenn­arar sem sáu að það var eitt­hvað að,“ segir hún.

„Ég var ekki alveg að funkera eins og allir hinir, en það var samt eng­inn sem steig fram og gerði eitt­hvað í mál­inu fyrr en ég var komin í níunda bekk. Þá kom inn nýr kenn­ari, Atli Sveinn Þór­ar­ins­son átt­aði sig fljót­lega á því að það væri hægt að ná meiru út úr mér með öðru­vísi aðferðum. Ég náði líka að tengja við hann í gegnum fót­bolt­ann. Ætli hann hafi ekki bara bjargað lífi mínu? Hann sendi mig í grein­ingu. Þannig að ég fór í gegnum næstum allan grunn­skól­ann án þess að neinn pældi í því að ég þyrfti ein­hverja öðru­vísi aðstoð eða aðferðir en hinir krakk­arnir.“

„Ég var ekki alveg að funkera eins og allir hinir, en það var samt eng­inn sem steig fram og gerði eitt­hvað í mál­inu fyrr en ég var komin í níunda bekk.“

Þrátt fyrir að vera svona róleg innan veggja skól­ans fékk Signý Rós útrás fyrir ork­una með öðrum hætti, hún stund­aði fót­bolta og alls konar íþróttir frá unga aldri og vildi helst hvergi ann­ars staðar vera en á vell­inum.

„Ég var alltaf í fót­bolta,“ segir hún og hlær. „Og það var tekið sem merki um að það væri allt í lagi með mig að ég mætti alltaf á allar æfingar og tók auka­æf­ingar, var alltaf með bolt­ann og ég stóð mig vel þar. En ég var samt ekk­ert að læra neitt í skól­anum en alltaf að reyna, með fall­ein­kunn í sam­ræmdu próf­unum, enda er maður met­inn eða dæmdur þar eftir því hvað maður kann í þrem fögum og þegar ég kom upp í fram­halds­skóla ent­ist ég auð­vitað ekki lengi þar. Ég hafði ekki grunn­inn sem þurfti.“

Lestu við­talið í heild sinni.
Viðtalið má líka nálg­ast í blaði Geð­hjálpar

Sjá einnig www.39.is. Þar getur þú skrifað undir áskorun þess efnis að setja geð­heilsu í for­gang í sam­fé­lag­inu.

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Einnig er hægt að leita til Píeta sam­tak­anna og sím­inn opinn allan sól­ar­hring­inn og er 552-2218 og vef­síðan www.pieta.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur