Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Smyglað inn á verðlaunahátíðina

Smyglað inn á verðlaunahátíðina

Signý Rós Ólafs­dóttir hlaut verð­laun sem Outstanding woman director á kvik­mynda­há­tíð­inni Winter Film Awards International Film Festival í New York í vor fyrir útskrift­ar­verk­efni sitt úr Kvik­mynda­skóla Íslands, aðeins tví­tug að aldri. Sú upp­lifun var ævin­týra­leg

Signý Rós útskrif­að­ist frá Kvik­mynda­skól­anum í maí 2019 og hefur síðan verið á fullu við að skrifa hand­rit og leik­stýra. Síð­ast­liðið vor fékk hún svo þau skila­boð að útskrift­ar­myndin hennar, stutt­myndin Hafið ræður, væri til­nefnd til verð­launa á kvik­mynda­há­tíð­inni Winter Film Awards International Film Festival í New York og það end­aði með því að hún hlaut verð­launin sem besti kven­leik­stjór­inn. Átti hún von á að ná svona langt á svona skömmum tíma?

„Nei, alls ekki. Ef ein­hver hefði sagt við litlu Signýju að hún ætti eftir að vinna verð­laun fyrir stutt­mynd­ina sína þá væri hún senni­lega enn þá að hlæja. Ég tek bara að mér verk­efni og tek mínar hug­myndir og vinn eins vel og ég get,“ segir hún hugsi.

„Eftir að ég útskrif­að­ist fór ég að vinna sem tækni­maður fyrir Krakk­aRÚV. Ég var aðal­lega að taka upp og klippa en fékk líka að skrifa hand­rit, skrif­aði til dæmis hluta af Jóla­stund­inni í fyrra og fleira. Þar var ég í nokkra mán­uði en ákvað þá að fara til Berlínar til að víkka sjón­deild­ar­hring­inn.

Ég fór reyndar fyrst til New York til að vera á hátíð­inni, ætl­aði ekk­ert að vinna verð­laun, bara upp­lifun að fara og sjá afkvæmið mitt svona úti í heimi. Svo fengum við þau skila­boð að myndin væri til­nefnd og svo var ég allt í einu komin með verð­laun í hend­urnar. Það var reyndar mjög fyndið því ég var bara tví­tug og til þess að kom­ast inn á skemmti­stað­inn þar sem loka­há­tíðin var haldin þurfti maður að vera tutt­ugu og eins. Þannig að það þurfti að smygla mér inn til að taka við verð­laun­unum. Ég fór svo þaðan til Þýska­lands og náði smá­tíma áður en COVID-19 skall á.“

Fyrir nokkrum árum hefði Signýju Rós þó ekki grunað að hún yrði á þessum stað í til­ver­unni því hún pass­aði engan veg­inn inn í skóla­kerfið og seg­ist í grunn­skóla sífellt hafa fengið þau ósögðu skila­boð að hún væri heimsk. Í tíunda bekk kom í ljós að hún er með les­blindu og athygl­is­brest, sem í dag er greint ADHD sem hafði verið ógreint öll þessi ár og það breytti ýmsu. Nú hefur Signý Rós gengið til liðs við Geðhjálp og mun í vetur ferð­ast milli grunn­skóla lands­ins þegar COVID-19 leyfir og segja sögu sína til að hvetja og styrkja þau börn sem verða út undan í skóla­kerf­inu.

Lestu við­talið í heild sinni.
Viðtalið má líka nálg­ast í blaði Geð­hjálpar

Sjá einnig www.39.is. Þar getur þú skrifað undir áskorun þess efnis að setja geð­heilsu í for­gang í sam­fé­lag­inu. 

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Einnig er hægt að leita til Píeta sam­tak­anna og sím­inn opinn allan sól­ar­hring­inn og er 552-2218 og vef­síðan www.pieta.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur