Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Steinar náði þjófi en engin hjálp: „Ég hefði getað verið sleginn niður“

Steinar náði þjófi en engin hjálp: „Ég hefði getað verið sleginn niður“
Mynd / Skjáskot Facebook.

Leið­sögu­mað­ur­inn Steinar Sveins­son telur það mildi að honum hafi ekki verið gert mein eftir nærri klukku­tíma sam­skipti sín við Neyð­ar­línun meðan hann stóð sjálfur yfir inn­brots­þjófi. Á end­anum gafst Steinar upp og leyfði þjófnum að fara.

Steinar lýsir reynslu sinni í færslu á Facebook og tengir hana við nýlegan frétta­flutn­ing af hönn­un­ar­galla í tölvu­kerfi neyð­ar­lín­unar sem olli því að sím­tal um eld í hús­bíl skil­aði sér ekki til lög­reglu. Þá gafst inn­hringj­and­inn upp án þess að nokkur hjá lög­reglu svar­aði og lög­reglan fékk ekki að vita af mál­inu fyrr en dag­inn eftir. Í brun­anum lést maður og hundar hans. Steinar fékk heldur aldrei sam­band við lög­reglu í sínum sam­skiptum við Neyð­ar­lín­una.

„Ég stóð eitt sinn yfir inn­brots­þjófi og hringdi í Neyð­ar­lín­una. Gaf upp nafn og heim­il­is­fang og lýsti aðstæðum sem mér þóttu nógu alvar­legar til að ímynda mér að fljótt yrði brugð­ist við. Mér er sagt að hinkra aðeins og slít þá sím­tal­inu enda í aðstæðum þar sem ég tel mig þurfa að hafa athygl­ina vak­andi. Aldrei kemur lög­reglan og ég hringi aftur. Sama scenario og aldrei kemur lög­reglan. Ég hringi í þriðja sinn og kvarta dáldið og þá kom loks skýrt fram hjá Neyð­ar­lín­unni að ,,hinkr­aðu aðeins” þýðir að flytja á sím­talið til lög­regl­unnar,” segir Steinar sem furðar sig á því að gert væri ráð fyrir að hann þekkti vinnu­ferli Neyð­ar­lín­unnar. 

„Spurði mig eftir á af hverju var þá verið að fá allar upp­lýs­ingar frá mér þar ef átti hvort eð er að flytja sím­talið annað, og spurði mig af hverju mál­inu var ekki fylgt eftir við lög­reglu og hún send á stað­inn þegar sam­talið slitnar, ég hefði getað verið sleg­inn niður eða gert mein? Hálf fannst mér þetta und­ar­legt allt og óvið­búið að eiga við fólk í erf­iðum aðstæðum. Þetta tók allt upp undir klukku­tíma, ég kynnt­ist inn­brots­þjófinum og lét hann að lokum rölta bara. Þetta er gott að hafa í huga en vænt­an­lega ganga flest mál vel upp hjá Neyð­ar­lín­unni og hlut­irnir í góðu ferli því ekki heyrir maður mikið af svona upp­á­komum bless­un­ar­lega,” segir Steinar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina