Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jóhanna segir það einstök forréttindi að eignast barn með Downs: „Þvílík gleði, hlýja og hamingja“

Jóhanna segir það einstök forréttindi að eignast barn með Downs: „Þvílík gleði, hlýja og hamingja“
Birgir Reimar kemur syngj­andi heim til sín alla daga. Mynd / Downs-félagið.

Downs-félagið á Íslandi stendur nú fyrir vit­und­ar­vakn­ingu hér­lendis um Downs heil­kenni. Októ­ber­mán­uður er helg­aður vakn­ing­unni á alþjóða­vísu og íslensku sam­tökin segja okkur nú sögur á Facebook-síðu sinni af Íslend­ingum með Downs.

Tón­elsk­andi íþrótta­álfar með Downs-heil­kenni

Inga Guðrún Krist­jáns­dóttir, for­maður Downs-félags­ins, segir það ekki sjálf­gefið að eign­ast barn með downs-heil­kenni, heldur ein­stök for­rétt­indi. Hún segir það hafa verið til­valið að kynna fólkið sitt sem hluta á þessu alþjóð­lega átaki. „Til þess njótum við stuðn­ings ungra barna, ung­menna og full­orð­inna ein­stak­linga með downs heil­kenni ásamt stuðn­ingi for­eldra eða forráðamanna. Mánuð­ur­inn er rétt hálfn­aður og inn­leggin sem hafa nú þegar birst á facebooksíðu Downs-félags­ins bera öll með sér yfir hve miklum og djúpum mannauði félagið býr. Færsl­urnar veita innsýn í lífsgleði, hlýju og ham­ingju á heims­mæli­kvarða. Sólargeisl­arnir sem alla jafna lýsa inn á okkar heim­ili dags dag­lega ná með þess­ari leið aðeins lengra en venju­lega og þvílík gleði. Eins og önnur börn eða full­orðnir ein­stak­lingar, þá lifir fólk með downs heil­kenni inni­haldsríku lífi og þetta er frábær vett­vangur til að fagna fjölbreyti­leik­anum og hampa auka litn­ingnum góða,“ segir Inga Guðrún.

Inga Guðrún Krist­jáns­dóttir, for­maður Downs-félags­ins

Vit­und­ar­vakn­ingin gengur undir heit­inu „Okkar fólk“. Þar má finna stuttar kynn­ingar af ungu og hressu fólki með Downs-heil­kenni. Mannlíf tekur hér nokkur dæmi.

„Færsl­urnar veita innsýn í lífsgleði, hlýju og ham­ingju á heims­mæli­kvarða.“

Sig­ur­bára Rún­ars­dóttir skrifar um Ævar Örn son sinn sem er stríð­inn húmorist. Eitt sinn pant­aði hann tón­leika með upp­á­hálds­hljóm­sveit­inni sinni. „Þetta er Ævar Örn og hann býr í Flóa­hreppi. Hann verður 17 ára í des­em­ber. Hann er afar stríð­inn og mik­ill húmoristi. Ævar Örn elskar tón­list og er Bubbi Mortens í miklu upp­á­haldi en einnig Stuðla­bandið en hann hefur einmitt hringt í umboðs­mann­inn þeirra (móð­irin afpant­aði giggið….). Hann heldur tón­leika að minnsta kosti einu sinni á dag og er þá allt sett í botn með gítar og míkra­fón. Ævari Erni finnst líka gaman að fara á hand­bolta­leiki og heldur með Selfossi (maður fær alltaf kók og hraun í hálf­leik). Ævar Örn er á starfs­braut í FSu og er dug­legur að spjalla við alla. Yngri bróðir hans talar alla vega um að hann hljóti að þekkja alla í FSu því allir heilsa honum í sundi,“ segir Sig­ur­bára.

Ævar Örn er mik­ill aðdá­andi Bubba og Stuðla­bands­ins.

Snorri og Þórdís fjalla um Ágústu Hlín dóttur sína. Hún er glað­vær og hjarta­hlý úti­vist­ar­stúlka. „Þetta er Ágústa Hlín Snorradóttir Reykjavíkur­mær. Hún er 11 ára og var að byrja í 6. bekk með hinum ung­ling­unum. Ágústa Hlín er afar glað­vær stúlka og með hjarta­hlýju og umhyggju­semi dregur hún fram það besta í hverjum þeim sem hún umgengst. Hún elskar útiveru allt árið um kring, í öllum lands­hlutum og í öllum veðrum. Hún er afar dug­leg að ferð­ast borg­armörk á milli á Tandem hjóli með pabba sínum, ganga í Heiðmörk, heim­sækja sjávarsíðuna fyrir vestan og njóta skíðasvæða lands­ins. Þegar hún þarf að vera inni eru tónlist, bækur og dans í uppáhaldi; Leonard Cohen, Auður, Friðrik Dór og Just Dance að sjálfsögðu,“ segja Snorri og Þórdís.

Ágústa Hlín Reykja­vík­ur­mær.

Lilja Líf er mik­ill gleði­gjafi segja for­eldrar hennar, Ari og Eva Lind. Hún stundar bolta­í­þróttir af kappi og elskar jóla­lög. „Lilja Líf er 13 ára gömul stúlka úr Reykja­nesbæ og er mik­ill gleði­gjafi. Hún er mikil bolta­stelpa og æfir körfu­bolta með Special Olymic hóp Hauka í Hafn­ar­firði ásamt því að stunda fót­bolta með Nes í Reykja­nesbæ. Hún fer á mjög marga körfu­bolta­leiki í Reykja­nesbæ, bæði hjá Keflavík og Njarðvík og þá þykir henni íþrótta­efni í sjón­varpi mjög skemmti­legt. Tónlist er í miklu upp­á­haldi, sér­stak­lega Ingó veð­urguð og Frikki Dór eins og hún kallar þá sjálf. Þá hlakkar hana mikið til þegar hún getur farið að hlusta á jóla­lög, hún vill helst getað spilað jóla­lögin sín líka í júlí. Lilju Líf þykir ein­stak­lega gaman af TikTok í Ipadinum sínum.
Ferða­lögin með fjöl­skyld­unni á sumrin ásamt ann­ari úti­veru eru í miklu upp­á­haldi. Þá er sam­veran með stuðn­ings­fjöl­skyld­unni ómet­an­legur tími í lífi hennar. Lilja Líf er ein­stak­lega snyrti­leg og vill hafa allt hreint og fínt í kringum sig. Hún hefur mjög gaman af því að gera sig fína og er make up í miklu upp­á­haldi þessa dag­ana. Lilju Líf hlakkar mikið til til­von­andi ferm­ing­ar­dags sem er áætl­aður á alþjóð­lega Downs deg­inum,“ segja Ari og Eva Lind. 

Lilja Líf bíður spennt eftir ferm­ing­ar­deg­inum.

Jóhanna Birg­is­dóttir fjallar um son sinn, Birgi Reimar, sem kemur syngj­andi heim til sín alla daga. Það er alveg brjálað að gera hjá honum við ýmsa iðju. „Birgir Reimar er 22 ára hress og glaður strákur með Downs heil­kenni sem býr í Vest­manna­eyjum. Hann er yngstur af 4 systk­inum og hefur alltaf litið upp til þeirra og lært mikið af þeim, og þau af honum.
Birgir Reimar vinnur í Heimaey sem er vernd­aður vinnu­staður hérna í Vest­manna­eyjum. Einnig er hann tvo morgna í viku að vinna við að búa til skóla­mat með Einsa Kalda en margir þekkja hann eflaust. Einn eft­ir­mið­dag í viku er hann líka að vinna í skó­búð og síðan fer hann með bæjarblað sem heitir Tígull í fyr­ir­tæki einu sinni í viku.
Birgir Reimar æfir Boccia, golf og á gítar. Síðan finnst honum mjög gaman að fara í rækt­ina. Já hann er sko hörku dug­legur og hefur svo gaman af því að gera gagn. Hann segir oft: „Úff mamma, mikið að gera”. Birgir Reimar er mjög snyrti­legur og fer helst ekki að sofa fyrr en allt er full­komið inní her­berg­inu sínu (og helst í öllu hús­inu). Hann hlustar mikið á alla tón­list og dansar og syngur með, bæði heima og þegar hann labbar á milli staða. Hann vill helst hlusta með head­settið á sér þar sem hann syngur með hástöfum eins og eng­inn sé að hlusta. Það er auð­velt fyrir mann að vita að Birgir Reimar sé á leið­inni heim, vegna þess að 1 km áður en hann kemur heim að dyrum, þá heyr­ist söng­ur­inn hans nálg­ast,” segir Jóhanna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina