Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hvernig hlúi ég að geðheilsunni?

Hvernig hlúi ég að geðheilsunni?

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands
„Geð­heilsa er gulli betri. Sjálfum líður mér best þegar ég ofgeri mér ekki í vinnu, fylgi eigin skipu­lagi og reyni að hreyfa mig – fer út að ganga, hlaupa eða hjóla. Ég nýt þess líka að vera með fólk­inu mínu, fjöl­skyldu og vinum, en mætti vera dug­legri við að leita þar stuðn­ings þegar svo ber undir. Maður reynir að láta gott af sér leiða og sömu­leiðis að láta ekki það sem maður ræður litlu eða engu um slá sig út af lag­inu ‒ órétt­læti heims­ins, ósann­girni ann­arra og annan ósóma. Þetta getur verið erfitt. En þannig er þetta bless­aða líf.“

Helena Sverr­is­dóttir körfuknatt­leiks­kona
„Til að stuðla að góðri geð­heilsu að mínu mati er mik­il­vægt að þekkja sjálfan sig vel, að kunna að vera einn með sjálfum sér og hugsa um heils­una sína – lík­am­legu og and­legu. Að hafa góðar og traustar mann­eskjur í kringum sig sem styðja mann og maður getur leitað til er einnig mik­il­vægt.“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra
„Útivist og hreyf­ing skiptir mig höf­uð­máli þegar kemur að því að rækta and­legu hlið­ina. Mér finnst best að reyna að skynja nátt­úr­una í kringum mig og hleyp til dæmis aldrei með neitt í eyr­unum, heldur hlusta á umhverfið og sjálfan mig erf­iða. Ég stunda lík­ams­rækt reglu­lega og mér hefur gef­ist best að hafa þjálf­ara og æfinga­fé­laga. Ég sæki einnig bæði ró og útrás í allra handa úti­vist, fer reglu­lega í göngu­ferðir og veiði. Í sumar fór ég í stór­kost­lega hesta­ferð á Snæ­fells­nesi, gekk á jökul og fór í óbyggð­irnar á Horn­ströndum. Þegar álagið verður mikið leita ég stundum í hug­leiðslu, það þarf ekki að vera flókið, því allt sem þarf er við hönd­ina í sím­anum. Það er ótrú­legt hvað nokkrar mín­útur í ró og íhugun geta hlaðið geym­inn.“

GDRN tón­list­ar­kona
„Fyrir mér skiptir miklu máli að vera hrein­skilin við sjálfan mig og fólkið í kringum sig um hvernig manni líður. Ekki fela eða birgja það inni þegar það er erfitt og manni líður illa. Við búum í sam­fé­lagi þar sem við fáum oft skila­boðin um að við þurfum að vera sterk og full­komin, en við þurfum að minna okkur á að allir og þar með talið við sjálf erum ófull­komin, við munum gera mis­tök og við munum vera brot­hætt á tímum. Þá er mik­il­vægt að tala við sína nán­ustu og leita sér hjálpar þegar maður þarf á því að halda og aldrei nokkurn tím­ann skamm­ast sín fyrir það, því það er ekk­ert sem sýnir meiri styrk­leika en þegar maður tekur skrefið til að fá við­eig­andi hjálp.“

Ragn­heiður Ösp Sig­urð­ar­dóttir, jóga­kenn­ari og sál­fræði­nemi
„Ég næ bestu tengsl­unum við sjálfa mig á flakki úti í nátt­úr­unni. Þar næ ég að skilja verk­efnin eftir heima í borg­inni og að setja hlut­ina svo­lítið í sam­hengi. Auk þess finn ég að það styrkir bæði lík­ama og hug að takast á við þær krefj­andi aðstæður sem nátt­úran hefur upp á að bjóða.“

Bubbi Morthens tón­list­ar­maður
„Til að næra geðið mitt rækta ég rósir, fer í veiði og ver miklum tíma með fólk­inu mínu. Ég drekk ekki og reyki ekki og borða frekar hollt og ég passa upp á svefn­inn. Ég stunda lík­ams­rækt fimm sinnum í viku og les mikið. Ég reyni að vera jákvæður alla daga og hvern dag byrja ég á að hug­leiða og passa þannig upp á geðið mitt. Ég þarf að leggja inn til þess að upp­skera.“

Kolbrún Birna Hall­gríms­dóttir Bachmann, laga­nemi og ein af skipu­leggj­endum Druslu­göng­unnar
„Ég elska að vera í vatni og hita, þannig að ég reyni að fara í sund, gufu, hot-jóga, langa sturtu eða gott bað þegar ég finn að ég þarf að rétta mig af (auka plús að maður fær hvíld frá sím­anum á meðan). Annars finnst mér allt jóga hjálpa mér almennt mjög mikið, sér­stak­lega jóga-nidra þegar ég finn að ég er að keyra mig út og það hjálpar mér líka að koma svefn­inum í lag. Svo er alltaf ein­falt og þægi­legt að fara í göngutúr (eða liggja heima í slökun ef ég kem mér ekki út) með hlað­varp sem kemur hugs­un­unum í jafn­vægi, eins og t.d. Normið með Sylviu og Evu eða við­töl við fólk með skemmti­legar pæl­ingar. Upp­á­halds­skyndi­lausnin mín til að rétta mig af verður samt alltaf sú að kveikja á góðri tón­list og dansa hugs­un­ar­laust a.m.k. við heilt lag.“

Fanney Ómars­dóttir verk­efna­stjóri
„Sofa vel, ekki bara lengi heldur reyna að auka gæði svefns­ins. Tala við sál­fræð­ing af og til. Tala við vini og fjöl­skyldu. Hreyfa mig með leik­fimi (hóp­tími með teygjum og öllu). Taka kvíða­lyf. Slappa af. Reyna að borða vel og fjöl­breytt, en ekki fara í megr­un­ar­kúra. Fara út að ganga og hlusta á hlað­varp. Reyna að minnka stress ef það fer vax­andi.“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi
„Ég hlúi að geð­heils­unni með því að hlusta á tón­list, horfa á þætti og fara út að hlaupa. Stundum ýti ég á „truflið ekki“ í sím­anum svo að ekk­ert utan­að­kom­andi áreiti nái til mín. Mér finnst mjög gott að hlaupa með fram sjónum og finnst best þegar ég fatta allt í einu að ég er ekki að hugsa um neitt. Ég hlúi líka að geð­heils­unni með því að tala við vini og mömmu mína og borða góðan mat. Það er nær­andi fyrir lík­ama og sál.“

Greinina er að finna í blaði Geð­hjálpar

Á www.39.is getur þú skrifað undir áskorun þess efnis að setja geð­heilsu í for­gang í sam­fé­lag­inu.

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Einnig er hægt að leita til Píeta sam­tak­anna og sím­inn opinn allan sól­ar­hring­inn og er 552-2218 og vef­síðan www.pieta.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur