Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Werner Ívan segir stjórnendur kirkjunnar ekki saklausa: „Hvað er eiginlega á seyði?“

Werner Ívan segir stjórnendur kirkjunnar ekki saklausa: „Hvað er eiginlega á seyði?“

Werner Ívan Rasm­us­son, ald­ur­hnigið sókn­ar­barn þjóð­kirkj­unnar, er ekki par hrif­inn af hug­mynd­inni um aðskilnað ríkis og kirkju. Hann telur víst að með því komi áhrif Þjóð­kirkj­unnar til að minnka enn frá því sem orðið er og hleypa öðrum miður æski­legum trú­ar­brögðum að valda­stóli.

„Mér skilst að þetta þýði að þjóð­kirkjan verði lögð af sem slík og þykja mér það vondar fréttir vegna þess að það auð­veldar öðrum, að mínu mati, miður æski­legum trú­ar­brögðum að kom­ast til auk­inna áhrifa hér á landi,“ segir Werner Ívan. Enn síður er hann hrif­inn af þögn Agnesar Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups og ann­arra stjórn­enda Þjóð­kirkj­unnar og segir ljóst að undir hennar stjórn hefur virð­ing almenn­ings á kirkj­unni farið þverr­andi.

„Og enn þegja kirkj­unnar menn.“

„Sá grunur vaknar ósjálfrátt hjá manni að ákvörðun um ofan­greint hafi verið tekin af þjónkun við þá sem ekki játa kristna trú. Því verður vart neitað að und­an­farin ár hefur virð­ing og traust almenn­ings á þjóð­kirkj­unni farið þverr­andi og kemur það gleggst fram í fjölda úrsagna. Kirkjan á sér því miður óvild­ar­menn, sem bæði ljóst og leynt hafa unnið gegn henni og drop­inn holar stein­inn. En hinir geist­legu stjórn­endur kirkj­unnar eru ekki alveg sak­lausir. Mér finnst þeir hafa brugð­ist því hlut­verki sínu að vernda stöðu hennar og virð­ingu í sam­fé­lag­inu.“

Þetta ritar Werner Ívan í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Þar við­ur­kennir hann að kirkju­sókn sín hefði sjálf­sagt getað verið betri í gegnum árin. „Trúrækni fer ekki eftir fjölda kirkju­heim­sókna eða tíðni bæna. Sum trú­ar­brögð skylda menn til þess að sækja til­skil­inn fjölda bæna­stund dag hvern. Hvort trú ein­stak­lings verður traust­ari eða betri við það veit ég ekki. Menn deila um boð­skap trú­ar­innar, en sið­fræðin, sem kristnin kennir okkur, er ómet­an­leg fyrir allan þann heim sem við teljum sið­mennt­aðan. Og enn þegja kirkj­unnar menn. Þá virð­ist skorta vilja og áræði til þess að vernda helgi­dóma og hefðir þess sam­fé­lags sem þeim er ætlað að þjóna og stýra,“ segir Werner Ívan og bætir við:

„Fyrst kom „borg­ara­leg ferm­ing“ – engar athuga­semdir gerðar – og núna trompa ása­trú­ar­menn það með „heið­inni ferm­ingu“! Hvað er eig­in­lega á seyði? Hefur athöfnin ferm­ing ekki alltaf verið stað­fest­ing krist­innar trúar á skírn­inni? Hvernig getur ferm­ing verið borg­ara­leg eða heiðin athöfn? Er ekki kom­inn tími til að menn rísi upp og beri hönd fyrir höfuð þeirrar kirkju sem þeir eru vígðir til? Við, sókn­ar­börnin, bíðum þess að prest­arnir okkar vinni að því að end­ur­vekja virð­ingu og traust kirkj­unnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina