Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Benedikt hjólar í Brynjar: „Hefði þetta fólk ekki dáið hvort sem er?“

Benedikt hjólar í Brynjar: „Hefði þetta fólk ekki dáið hvort sem er?“
Benedikt Jóhann­es­son. Mynd / Skjáskot RÚV

Benedikt Jóhann­es­son, strærð­fræð­ingur og fyrrum for­maður Við­reisnar, gagn­rýnir þann hóp fólks sem hann kallar frí­hyggju­menn. Þeim hópi finnst ríkið alltaf vera að skipta sér af því sem því kemur ekki við. Þessa ein­stak­linga kýs Benedikt að kalla nafn­inu Brynjar.

Benedikt fjallar um þessa frels­isunn­endur í aðsendri grein sinni í Morg­un­blað­inu. Þar segir hann að Brynjari sé nokkur vor­kunn. „Aumingja Brynjar. Áratugum saman hefur verið saumað að honum. Upp úr 1980 voru bíl­belti komin í alla bíla og leitt í lög að þau skyldu ávallt spennt, enda verið sýnt fram á að þau minnk­uðu hætt­una á alvar­legum slysum. Brynjari fannst þau bók­staf­lega hefta sig og sagði: „Hverjum kemur það við nema mér hvort ég nota þessar fjár­ans ólar?“ Dýr maður eins og Brynjar gæti reyndar kostað tugi millj­óna í bætur ef hann keyrði sig og bíl­inn sinn í klessu. Þjóð­fé­lagið missti þá líka starfs­krafta nýts þegns (jú, jú, víst er hann það). „En hel­vítis trygg­ing­arnar myndu borga, nóg kosta þær“,“ segir Benedikt og heldur áfram að taka dæmi um hversu erfið til­veran getur verið Brynjari kall­inum.

„Svona er Brynjar stöðugt í vörn.“

„Árið 1996 var þungt í Brynjari. Nú var farið að fylgj­ast með því að allir greiddu 10% af launum sínum í líf­eyr­is­sjóð. Háskóla­mennt­aður mað­ur­inn vissi auð­vitað vel að þetta hafði lengi verið lög­bundið, en hann hafði enga trú á þessum líf­eyr­is­sjóðum. „Ef ég vil spara á annað borð, þá á ég að ráða því hve mikið og hvernig ég geri það. Auðvitað er það bara mitt mál hvað ég hef í ell­inni.“ Heildsalar og sjálf­stæðir atvinnu­rek­endur greiddu margir aldrei krónu í líf­eyr­is­sjóð og undr­ast nú mjög nísku sam­fé­lags­ins þegar þeir reyna að fram­fleyta sér á fullum bótum TR. Á meðan fær Sólveig sem var þvotta­kona á lág­marks­taxta skertar bætur af því að hún greiddi alltaf í líf­eyr­is­sjóð. Hennar mál, ekki Brynjars,“ segir Benedikt.

Benedikt segir að á 21. öldin hafi ekki verið Brynjari auð­veld. „Enn var þrengt að Brynjari sem hafði reykt sígar­ettur frá því á skóla­ár­unum og fékk sér öðru hvoru vindil á skrif­stof­unni. Kannski kom líka fyrir að í skjala­skápnum var kon­íakslögg sem dreypt var á, en það skiptir ekki máli í þess­ari sögu. Allt í einu kom til­kynn­ing frá hús­eig­and­anum um að héðan í frá yrði allt húsið reyk­laust. Okkar manni var öllum lokið. „Ég reyki eins og mér sýn­ist, þar sem mér sýn­ist.“ Þegar Brynjar flutti loks úr skrif­stof­unni var hann löngu búinn að flæma alla aðra af hæð­inni. Enginn vildi leigja í námunda við stækj­una. Vindla­lyktin finnst enn af jakka­föt­unum hans,“ segir Benedikt og bætir við:

„Svona er Brynjar stöðugt í vörn. Fyrst var það Stóri bróðir, svo Djúp­ríkið og síð­ast Góða fólkið sem ofsækja frjáls­hug­ann. Þessa dag­ana er enn þrengt að Brynjari. Frels­isunn­and­anum er bannað að fara á krána sína. Enn síður má hann stunda hnefa­leika í Kópa­vog­inum, sem vakti satt að segja engan áhuga fyrr en það var bannað. Honum er meira að segja skipað að vera með grímu á almanna­færi (sem þeir sem til þekkja telja raunar til prýði). Hvað kemur honum það við að ein­hver smit­ist og jafn­vel deyi úr slæmri flensu? Hefði þetta fólk ekki dáið hvort sem er?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina