Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ólína sakar Mörð um trúnaðarbrot: „Samræmist það skyldum þínum

Ólína sakar Mörð um trúnaðarbrot: „Samræmist það skyldum þínum
Ólína með bók­ina sína. Mynd / Skjáskot Facebook.

Flokksystk­inin Ólína Þor­varð­ar­dóttir og Mörður Árnason hafa átt í rit­deilu vegna þess að Ólína fjallar um Mörð í nýrri bók sinni. Mörður var stjórn­ar­maður í Rík­is­út­varp­inu, RÚV ohf, þegar aug­lýst var eftir nýjum útvarps­stjóra. Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður flokks­ins, vildi að nafn­leynd væri ekki varð­andi umsækj­endur. Ólína, vara­maður Marðar, var á sama máli en bendir í bók sinni á tví­skinn­ung­inn í Sam­fylk­ing­unni. „Sam­fylk­ingin tal­aði tungum tveim. Helga Vala Helga­dóttir þing­maður flokks­ins and­æfði upp­lýs­inga­leynd­inni í fjöl­miðlum meðan flokks­bróðir hennar, Mörður Árnason full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í stjórn RÚV, mót­mælti henni ekki og virt­ist raunar láta sér vel líka,“ skrifar hún. Þetta fór fyrir brjóst Marðar.

„Rétt er að umtal­aður full­trúi and­æfði ekki þess­ari ákvörðun opin­ber­lega. Hann var reyndar í leyfi frá störfum sínum í stjórn RÚV þegar þetta var, og kom­inn til Kochi-borgar á Indlandi í löngu ákveðna kynnis- og lær­dóms­dvöl. Vara­maður hans í stjórn­inni var Ólína Þor­varð­ar­dóttir, en svo vildi til að á fund­inn þegar ákvörð­unin var tekin komst vara­mað­ur­inn ekki, og var því annar vara­maður (Pírati) beð­inn að mæta fyrir okkar hönd. Ég lagði honum lín­urnar í stórum dráttum fyrir fund­inn, en þá var ekki vitað um þessa leynd­ar­til­lögu, og sat vara­mað­ur­inn hjá þegar hún var borin upp þar sem hann vissi ekki um afstöðu okkar til máls­ins (en Lára Hanna aðal­maður Pírata var á móti). Á næsta fundi kynnti Ólína hins vegar efa­semdir okkar beggja um þessa ráð­stöfun. Síðan tók Ind­íafar­inn við stjórn­ar­störfum á ný (gegnum síma) vegna þess að Ólína hafði ákveðið að hætta um sinn störfum sem vara­maður,“ skrifar Mörður og rétt­lætir enn aðgerð­ar­leysi sitt vegna ráðn­inga­fer­il­is­ins.

Mörður Árnason hefur við­ur­kennt að brjóta trúnað við umsækj­endur um stöðu útvarps­stjóra.

„Þá var leyndar-ákvörð­unin þegar tekin og mér þótti ekki gagn eða vit í að and­æfa henni frekar, heldur ein­beitti mér að því að ráðn­ing­ar­ferlið yrði fag­legt og að stjórnin sjálf tæki ákvörðun um ráðn­ingu útvarps­stjóra – í fyrsta sinn í sög­unni,“ skrifar Mörður og rifjar upp að rán­inga­ferlið hafi reynst fag­legt þótt þrjár kærur frá kven­um­sækj­endum hafi borist.

„Nefndin hefur úrskurðað tveimur kærenda í óhag, en þriðja kæran, efn­is­lega nokk­urn­veg­inn sam­hljóða, barst seinna en hinar og er enn í með­ferð. Þess skal líka getið að í sam­þykktir RÚV var á síð­asta aðal­fundi bætt ákvæði sem tekur fyrir nafn­leynd umsækj­enda í fram­tíð­inni …,“ skrifar Mörður.
Ólína brást við skrifum Marðar og tuktar hann til fyrir að segja full­snemma skilið við grein­ar­gerð sína. Hún sakar Mörð jafn­framt um alvar­legt trún­að­ar­brot sem stjórn­ar­manns í RÚV.„Eitt er ákvörðun um að leyna nöfnum umsækj­enda – sem ég mót­mælti sem vara­full­trúi (stað­geng­ill) í stjórn RÚV á sínum tíma, áður en umsókn­ar­frestur rann út. Mér þykir þú þó full djarfur að full­yrða hér í ljósi þeirrar nafn­leyndar sem gilti að ég hafi verið meðal umsækj­enda. Var nafn­leynd eða ekki? Hver ert þú að ákveða hvenær hún gildir og hvenær ekki? Sam­ræm­ist það skyldum þínum sem stjórn­ar­manns og þinni trún­að­ar­skyldu þar að full­yrða hér um ein­staka umsækj­endur en ekki aðra?“ spyr Ólína.

Hún segir að í bók­inni felst gagn­rýni á að neita umsækj­endum um upp­lýs­ingar um ráðn­ing­ar­ferlið sem og rök­stuðn­ing fyrir ráðn­ing­unni en birta þess í stað almenna yfir­lýs­ingu stjórnar á heima­síðu RÚV þegar allt var afstaðið.
„Það er sú upp­lýs­inga­leynd sem gagn­rýnd er í bók minni. Prinsippið hér er þegj­andi sam­komu­lag allra þeirra sem sátu í stjórn RÚV á þessum tíma um að varpa leynd yfir ráðn­ing­ar­erlið, ekki bara nöfn umsækj­enda gagn­vart almenn­ingi, heldur ráðn­ing­ar­ferlið sjálft gagn­vart umsækj­end­unum. Þessu mættir þú svara í stað þess að reyna að draga mig inn í ákvarð­anir stjórnar RÚV með þeim hætti sem þú gerir“.
Mörður viuð­ur­kenndu trún­að­ar­brot sitt og baðst loks afsök­unar á því að hafa nafn­greint umsækj­endur og tók út nöfnin, þeirra á meðal Ólínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina