Efnahagskreppan sem fylgir kórónuveirufaldrinum er þungt högg fyrir ungt fólk og innflytjendur. Munur er eftir landsvæðum og kyni. Konur koma hlutfallslega verr út en karlar.
Þetta kemur fram í skýrslu sérfræðingahóps verkalýðshreyfingarinnar um efnahagsleg áhrif Covid hér á landi. Hópurinn hóf störf í síðasta mánuði. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að efnahagslegur samdráttur hérlendis hefur bitnað meira á erlendum ríkisborgurum umfram íslenska. Mikið atvinnuleysi má finna í þessum hópi, langt umfram landsmeðaltal.
Þá fer atvinnuleysi meðal ungs fólks vaxandi og mælist nú rúm 18 prósent hjá fólki á aldrinum 16 til 24 ára. Þar virðist kreppan koma sérstaklega illa niður á konum, bæði í starfi og inni á heimilum. Konur í lægri menntunar- og tekjuflokkum verða fyrir mestum áhrifum í yfirstandandi efnahagssamdrætti.
Þá sýna tölur að atvinnuleysi hefur komið niður af miklum þunga á íbúum Suðurnesja og Suðurlands. Í skýrslunni segir að hlutfallsleg aukning atvinnuleysis á Suðurnesjum nemi 92 prósetum frá því mars síðastliðnum. Sérfræðingar verkalýðshreyfingarinnar hvetja stjórnvöld til að einblína sérstaklega á ungt fólk og erlenda ríkisborgara auk svæðisbundins atvinnuleysis á áðurnefndum svæðum. Þá sé mikilvægt að fylgjast einnig með hinum kynbundnu áhrifum Covid-kreppunnar.































Athugasemdir