Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gróðrastía eineltis í Garðabæ

Gróðrastía eineltis í Garðabæ

Saga Ólivers, 10 ára nem­anda í Garðabæ, hefur hreyft við mörgum. Hann hefur glímt við það um hríð að hópur drengja á hans aldri meiðir hann með orðum og skilur hann útundan. Dreng­ur­inn var í Sjá­lands­skóla þar sem ein­eltið á sér vænt­an­lega rót og nær­ist vegna þekk­ing­ar­leysis skóla­stjórn­enda og sof­anda­háttar. Þá hefur það teygt anga sína inn í íþrótta­fé­lagið Stjörn­una með þeim afleið­ingum að Óliver hrakt­ist úr félag­inu og yfir til FH í Hafn­ar­firði. 10 ára drengur á flótta undan ofsækj­endum sínum. Þá er hann far­inn úr Sjá­lands­skóla og í Voga­skóla. Skýr­ingin er svæsið ein­elti. Þetta er ekki boð­legt í sið­uðu sam­fé­lag.

Ég hef sótt hann blóð­ugan í skól­ann

Sigríður Elín Ásmunds­dóttir, móðir drengs­ins, sagði sögu hans á Facebook. Hún lýsir and­legu ofbeldi og lík­am­legu. Við­brögðin vegna gróðra­stí­unnar í Garðabæ hafa verið gríð­ar­leg. Hér er hluti af frá­sögn móð­ur­innar:

„Strákar úr bekknum plön­uðu að mæta fyrir utan heim­ilið okkar, hrópa niðr­andi orð um Ólíver og setja það á Youtube, ein­hver stopp­aði það en Ólíver frétti þetta og það var nóg. Hann varð miður sín bara við að heyra hvað þeim lang­aði að gera honum.

Ég hef fengið ótal sím­töl frá elsku stráknum mínum þar sem hann er grát­andi inni á kló­setti í skól­anum og biður mig að koma og sækja sig því strák­arnir hafa hótað honum, hreytt í hann sær­andi athuga­semdum eða lamið hann.

Ég hef sótt hann grát­andi í skól­ann, oft.

Ég hef sótt hann blóð­ugan í skól­ann eftir hnefa­högg í and­litið, hann fékk blóð­nasir“. 

Fjöldi fólks hafði sam­band við fjöl­skyld­unar til að bjóða fram hjálp sína eða aðstoð í hví­vetna. Nokkur fyr­ir­tæki hafa boðið gjafir sem smyrsl á þau djúpu en ósýni­legu sár sem dreng­ur­inn ber eftir með­ferð­ina. Sá hugur sem þar er að baki er ágætur en lausnin liggur ekki í því að bera gjafir á fórn­ar­lömb. Lausnin liggur í því að yfir­völd skóla og sveit­ar­fé­lags í Garðabæ taki sér taki og hlúi að mann­líf­inu. Ill­gresið þarf að víkja svo blómin fái þrif­ist. Kæru­leysi í svona málum kostar lífs­ham­ingju og jafn­vel manns­líf. Í Sand­gerði lét lít­ill drengur lífið eftir að hafa orðið fyrir ein­elti. Dag­bjartur var aðeins 11 ára haustið 2011 þegar hann dó. Hann hafði glímt við ein­elti frá því hann var sex ára. Dag­bjartur litli tók líf sitt og sam­fé­lagið í Sand­gerði stóð and­spænis veru­leika sem er grimmari en orð fá lýst.

Um þetta snýst málið í Garðabæ. Það er dauð­ans alvara sem ekk­ert getur lag­fært nema sam­fé­lag hinna full­orðnu taka saman höndum við börnin og inn­ræti þeim góða siði og kær­leika hvert í garð ann­ars. Tæplega 10 árum eftir and­lát Dag­bjartar sjáum við að fátt hefur breyst. Börn eru enn ofsótt af börnum og þeim hrundið fram af brún­inni sem markar skilin á milli lífs og dauða.

Þær raddir eru uppi í Garðabæ að Sigríður Elín hafi farið of geyst í málið og skóla­yf­ir­völd í Sjá­lands­skóla hefðu þurft svig­rúm til að bregð­ast við. Það er uppi krafa um þögn. Þetta er hjóm eitt. Móðirin hefur barist fyrir lífi sonar síns í tvö ár og haft sam­band við skóla og íþrótta­fé­lög til að biðja syni sínum griða. Ýmsu hefur verið lofað en efndir eru minni.

Dag­bjartur litli tók eigið líf

Það þýðir ekki að halda því fram að ekki sé hægt að upp­ræta spill­ing­una sem leiðir til ein­elt­is­ins. Horfa þarf til for­eldra ger­end­anna ekki síður en þeirra sem eru með dólgs­hátt við félaga sína. Með réttri vinnu og sam­ráði geta Garð­bæ­ingar tryggt það að börn þeirra lifi við sæmi­legt jafn­vægi og séu ekki í lífs­hættu vegna ofsókna eða jað­ar­setn­ingar. Sú til­hneig­ing að nota aðferð strúts­ins og stinga höfði í sand­inn gengur ekki. Mál Ólivers á sér sömu sviðs­myndir víða um land. En það er mis­mund­andi hve góð tök skóla­yf­ir­völd og for­eldrar hafa á málum. Það verður að kæfa þær raddir sem vilja sópa málum undir teppið. Þöggun er ekki í boði. Hún er lífs­hættu­leg.

Sigríður Elín á þakkir skildar fyrir að rísa upp til varnar barni sínu og öllum öðrum sem verða fyriir ein­elti. Vonandi verður mál Ólívers til þess að fólk vaknar upp og tekur til í sínum garði. Hver og einn verður að líta í sinn eigin barm og ræða málin við sína nán­ustu. Gróð­ar­stían í Garðabæ verður að vera víti til varn­aðar. Skóla­yf­ir­völd í Garðabæ og stjórn­endur Stjörn­unnar eiga þann mögu­leika að upp­ræta ill­gresið í bænum sínum og verða til fyr­ir­myndar öllum öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einelti

InnlentEinelti

Agli var strítt í æsku: „Þetta var sem­sagt algengt upp­nefni á rauð­hærðum strákum í þá tíð“

Egill Helgason segir frá ein­elti sem hann varð fyrir í æsku, í nýrri Facebook-færslu. Einelti hefur lengi verið þjóð­ar­böl, eða jafn­vel mann­kyns­böl en Egill Helgason rifjar upp það sem hann varð fyrir í æsku, þó hann nefni aldrei orðið ein­elti, í Facebook-færslu. „Þegar ég var strákur var ég stundum kall­aður Skalli. Þetta fór óskap­lega í taug­arnar á mér. Vinir mínir...
InnlentEinelti

Katrín um stöðu ein­elt­is­mála á Íslandi: „Hún virð­ist hafa versnað“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að ríki, sveit­ar­fé­lög og skólar þurfi að taka höndum saman og vinna bug á þró­un­inni. For­sæt­is­ráð­herra segir að þessu erf­iðu og grófu mál valdi sér miklum áhyggjum, að staðan hafi greini­lega versnað: „Hún virð­ist hafa versnað og við sjáum að þetta gengur stundum yfir í bylgjum og við erum greini­lega stödd í slíkri bylgju og þar...
InnlentEinelti

Mægð­urnar í Hafn­ar­firði á leið­inni til Flórída: „Þakk­læti er ekki nægi­­lega stórt orð“

Sædís Hrönn Sam­ú­els­dóttir og 12 ára dóttir hennar, Ísabella Von, eru á leið til Flórída á næst­unni eftir að frænka stúlkunnar, Ingi­björg Gróa Gunn­ars­dóttir safn­aði fyrir ferð mæðgn­anna. „Stuðn­ingur og styrkur sam­landa okkar skilur okkur frænkur eftir orð­­lausar & meyrar! Rétt í þessu til­­kynnti ég Ísa­bellu Von að þökk sé fram­lagi yfir hund­ruði sam­landa okkar sé hún og móðir hennar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi