Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svarar ásökun um einelti með uppnefni um „hýenuhvolpa“

Gunnar Smári Egilsson telur „ung­herra“ hafa verið særða í æsku. „Magnaður“ í að „manípúlera fólk“, segir fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi.

Svarar ásökun um einelti með uppnefni um „hýenuhvolpa“
Gunnar Smári Rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar mætti í við­tal á stöð­inni hjá bróður sínum, til að ræða ásak­anir flokks­manna um ofríki og ein­elti. Mynd: Samstöðin/Skjáskot

„Kannski mun Sós­í­alista­flokk­ur­inn ekki lifa þetta af,“ segir Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands og drif­fjöður í stofnun flokks­ins, í við­tali við bróður sinn á Sam­stöð­inni, sem hann rit­stýrir. Þar kvartar hann undan „hýenu­hjörð" innan flokks­ins.

Sós­í­alista­flokkur Íslands virð­ist vera klof­inn í „gríð­ar­lega flokka­drætti“ milli stuðn­ings­manna og gagn­rýnenda Gunnars Smára, eftir að for­seti ung­liða­hreyf­ingar flokks­ins, Karl Héðinn Krist­jáns­son, fræðslu- og félags­mála­full­trúi hjá Eflingu, sagði sig úr kosn­inga­stjórn flokks­ins sam­hliða ásök­unum hans á hendur Gunnari Smára um útskúfun, ein­elti og launa­þjófnað. Karl Héðinn starf­aði meðal ann­ars sem hús­vörður og sem blaða­maður á vef Sam­stöðv­ar­innar, sem heyrir undir Alþýðu­fé­lagið, sem nýtur fjár­mögn­unar Sós­í­alista­flokks Íslands.

„Hýenuhjörð" í spjallinu

Á fimmtu­dag var gagn­rýnd að kærasta Gunnars Smára hefði stýrt umræðu á Sam­stöð­inni um Karl Héðin og gagn­rýni hans. Í dag er það Gunnar Smári sjálfur sem ræðir málið við bróður sinn, þraut­reynda fjöl­miðla­mann­inn Sigurjón M. Egilsson. Nið­ur­staða Gunnars Smára í sam­tal­inu er að vanda­mál Sós­í­alista­flokks­ins sé „hýenu­hjörð" í spjalli flokks­ins á Facebook.

Það segir hann stutt umdeildri könnun innan flokks­ins, sem 15% tóku þátt í, og var sam­kvæmt þremur for­mönnum stjórna Sós­í­alista­flokks­ins, sem studdu Gunnar Smára í yfir­lýs­ingu, til marks um almenna ánægju flokks­manna.

„... þá kemur alveg hjörðin og ræðst á við­kom­andi fyrir að vera and­lýð­ræð­is­sinni.“
Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins.

„Við erum með opinn umræðu­vett­vang á Facebook, sem við höfðum verið að ræða, í kjöl­farið á könnun sem var gerð meðal flokks­manna, þá voru alvar­leg­ustu athuga­semd­irnar, sem voru almennar, voru um þetta spjall, að þar væru menn, fyrst og fremst, ekki konur, sem vaða uppi, í hvert skipti sem þú setur eitt­hvað inn er eins og þú fáir á þig svona hýenu­hjörð. Við höfðum verið að ræða það í fram­kvæmda­stjórn­inni að hver mætti bara setja inn einn status á dag og eitt komment á klukku­tíma, til að dempa umræð­una. En því miður náðum við ekki í gegn.“

Þá segir hann að þau sem gagn­rýndu að spjallið væri „lík­lega að eyði­leggja hreyf­ing­una fyrir framan hunda og manna fætur, að þá kemur alveg hjörðin og ræðst á við­kom­andi fyrir að vera and­lýð­ræð­is­sinni.“

Minni á átökin innan Eflingar

Hann segir að málið minni sig á átök innan Eflingar, þar sem gagn­rýnendur fengu „rosa­legan sess í Mogganum“ og upp­lifað sig sem „póli­tíska þátt­tak­endur“. „Sem er auð­vitað ekki, því að Mogginn er að nota þetta fólk til að koma höggi á Sós­í­alista­flokk­inn,“ útskýrði Gunnar Smári.

Gunnar Smári segir að í flokknum séu „ein­hverjir svona ung­herrar sem eflaust hafa verið særðir í upp­eld­inu af ein­elti og öðru slíku og eru mjög við­kvæmir, eru með sært egó utan á sér.“

Hann gagn­rýnir orð­færi þeirra, en bæði Karl Héðinn og Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son, kveð­ast hafa hrökkl­ast undan fram­ferði Gunnars Smára. Sá síð­ar­nefndi var borg­ar­full­trúi flokks­ins en vék að eigin sögn vegna veik­inda og fram­komu Gunnars Smára.

„Þeir eru að nota orð­færi sem eru úr mjög alvar­legum ofbeld­is­málum gagn­vart konum. Þeir eru að tala um ofbeldi, þöggun og slíkt. Allur stíll­inn á þessu er þannig. Þannig að ég er að sömu leyti, mér finnst stundum eins og ég sé – ég vona að það hljómi ekki hroka­fullt – með hýenu­hvolpa.“

„Hvaða Twilight Zone erum við eig­in­lega komin í?“
Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins.

Kvartar undan dylgjum hjá Gunnari Smára

Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, gagn­rýnir orð Gunnars Smára á Facebook í dag. „Ég hef held ég aldrei orðið vitni af mann­eskju sem er jafn fær í að manípúlera fólk og Gunnar Smári gerir. Hann er magn­aður í því. Og má eiga það,“ segir Trausti.

„Hér fer þessi meist­ari með fag­mann­lega spunnar dylgjur um mig og mína æsku. Algjör fag­maður. Segist ekki hafa verið í miklum sam­skiptum við mig en full­yrðir að hann þekki mína æsku­sögu. Segir að ég sé „særður af ein­elti í upp­eldi“, sé við­kvæmur eftir þau áföll. Útvarpar þessu fyrir framan alla alþjóð.

Eftir að hafa varpað fram þessum dylgjum og rang­færslum, heldur hann áfram. Sver af sér ásak­anir um ein­elti með því að kalla mig og okkur sem sögðum frá því „gjamm­andi hýenur“ svo allir heyri. Þetta er auð­vitað besta leiðin til að jarða ásak­anir um ein­elti, með því að upp­nefna fólk og líkja því við hræætur. Gaman að sjá hversu vel það gengur að sanna frá­sögn mína um það hvernig „sam­skipti“ eru stunduð á þessum bæ.

Ofan á þetta talar meist­ar­inn sjálfur um að fólk sem lendi í ein­elti geti ekki kallað sig þolendur. Það sé ein­hvers konar sví­virða gagn­vart bar­áttu kvenna gegn ofbeldi. Það er eig­in­lega súrra­el­ískt að vera kom­inn í ein­hverja atburð­ar­rás eins og þessa, þar sem maður er sak­aður um karl­rembu fyrir að greina frá ein­elti og and­legu ofbeldi. Að Gunnar Smári sé fórn­ar­lamb karl­rembu minnar. Hvaða Twilight Zone erum við eig­in­lega komin í?“

Sigurjón M. Egilsson, bróðir Gunnars Smára, ræðir við hann um átökin í Sós­í­alista­flokknum.

Gjaldþrot með „lág upphæð“

Til við­bótar við gagn­rýni á hendur „hýenu­hjörð“ innan Sós­í­alista­flokks­ins svar­aði Gunnar Smári fyrir notkun fjár­fram­laga til stjórn­mála­flokka í útgáfu sjón­varps­stöðvar og vef­mið­ils. Þá blés hann á gagn­rýni á gjald­þrot Frétta­tím­ans, sem hann rit­stýrði og átti tæpan þriðj­ungs­hlut í. Taldi hann gjald­þrotið „eðli­legt“ í ljósi aðstæðna og að 300 millj­óna króna kröfur, sem ekki fékkst upp í, hefði talist „lág upp­hæð“ miðað við umfang útgáf­unnar. Svo hafi laun verið greidd af ábyrgð­ar­sjóði launa, auk þess sem hann hafi lánað félag­inu 5 millj­ónir króna til að greiða laun undir lokin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einelti

InnlentEinelti

Agli var strítt í æsku: „Þetta var sem­sagt algengt upp­nefni á rauð­hærðum strákum í þá tíð“

Egill Helgason segir frá ein­elti sem hann varð fyrir í æsku, í nýrri Facebook-færslu. Einelti hefur lengi verið þjóð­ar­böl, eða jafn­vel mann­kyns­böl en Egill Helgason rifjar upp það sem hann varð fyrir í æsku, þó hann nefni aldrei orðið ein­elti, í Facebook-færslu. „Þegar ég var strákur var ég stundum kall­aður Skalli. Þetta fór óskap­lega í taug­arnar á mér. Vinir mínir...
InnlentEinelti

Katrín um stöðu ein­elt­is­mála á Íslandi: „Hún virð­ist hafa versnað“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að ríki, sveit­ar­fé­lög og skólar þurfi að taka höndum saman og vinna bug á þró­un­inni. For­sæt­is­ráð­herra segir að þessu erf­iðu og grófu mál valdi sér miklum áhyggjum, að staðan hafi greini­lega versnað: „Hún virð­ist hafa versnað og við sjáum að þetta gengur stundum yfir í bylgjum og við erum greini­lega stödd í slíkri bylgju og þar...
InnlentEinelti

Mægð­urnar í Hafn­ar­firði á leið­inni til Flórída: „Þakk­læti er ekki nægi­­lega stórt orð“

Sædís Hrönn Sam­ú­els­dóttir og 12 ára dóttir hennar, Ísabella Von, eru á leið til Flórída á næst­unni eftir að frænka stúlkunnar, Ingi­björg Gróa Gunn­ars­dóttir safn­aði fyrir ferð mæðgn­anna. „Stuðn­ingur og styrkur sam­landa okkar skilur okkur frænkur eftir orð­­lausar & meyrar! Rétt í þessu til­­kynnti ég Ísa­bellu Von að þökk sé fram­lagi yfir hund­ruði sam­landa okkar sé hún og móðir hennar...
InnlentEinelti

„Hvernig dettur frétta­stofu í hug að fara fram með þessum hætti?“

Sig­ur­þóra Bergs­dóttir, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Bergsins, segir í færslu á Facebook-síðu sinni að hún hafi horft „í for­undran á frétta­flutn­ing Rúv og fleiri af ein­elt­is­máli og afleið­ingum þess fyrir þol­anda í gær. Hvernig dettur frétta­stofu í hug að fara fram með þessum hætti? Að mæta heim til 12 ára stúlku og móður hennar dag­inn eftir þeirra allra versta dag. Þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum