Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einföld ráð sem geta bætt svefninn svo um munar

Einföld ráð sem geta bætt svefninn svo um munar

Umræðan um mik­il­vægi góðs svefns hefur fengið aukið vægi síð­ustu ár enda fátt mik­il­væg­ara til að stuðla að góðri heilsu. Ýmsar rann­sóknir hafa verið gerðar á áhrifum umhverfis á svefn og gefa nið­ur­stöður til kynna að það geti haft víð­tæk áhrif. Maðurinn ver þriðj­ungi ævi sinnar í svefn svo góð hönnun svefn­her­bergja ætti því að vera for­gangs­at­riði þegar kemur að því að inn­rétta heim­ilið.

Aðrir þættir eins og góð rútína að kvöldi getur einnig skipt sköpum. Það er góð regla að venja sig á að halda raf­tækjum eins og sjón­varpi, tölvum og far­símum utan við svefn­her­bergið. Algengt er að ofnar séu of hátt stilltir í svefn­her­bergjum en gott er að hafa hita­stigið í svefn­her­berg­inu aðeins lægra en í öðrum rýmum því lík­am­inn vill kæla sig niður fyrir svefn. Einnig er mik­il­vægt að gæta að góðri loftun í rým­inu en útgufun lík­am­ans er tölu­verð þegar við sofum og því hætta á óæski­legri raka­myndun í her­berg­inu sé ekki gætt nógu vel að loft­un­inni.

Glugga­tjöld
Það skiptir miklu máli að geta myrkvað svefn­her­bergið, þá sér í lagi yfir sum­ar­tím­ann þegar næt­urnar eru bjartar. Myrkur örvar fram­leiðslu horm­óns­ins melatóníns í lík­am­anum sem stuðlar að því að okkur syfjar. Fyrir fólk í vakta­vinnu sem sofa þarf yfir dag­inn skiptir einnig miklu máli að geta myrkvað her­bergið sem auð­veldar því að sofna. Það sama á við um fólk sem þjá­ist af dæg­ur­villu. Glugga­tjöld geta einnig gefið rým­inu meiri dýpt og bætt hljóð­vist.

Lýsing
Góð lýs­ing er lyk­il­at­riði hér eins og svo oft áður. Að hafa ljós­deyfi er góð hug­mynd svo hægt sé að stilla birt­una eftir henti­semi. Snjallperur eru einnig góður kostur en þeim er til dæmis hægt að stýra með appi. Á morgn­ana í mesta skamm­deg­inu er þá hægt að líkja eftir sól­ar­upp­rásinni, tíma­stilla per­urnar og láta birtu­stigið í svefn­her­berg­inu aukast hægt og rólega sem auð­veldar mörgum að vakna. Stað­setn­ing ljósa skiptir einnig máli en gott er að miða við að stað­setja les­ljós ekki beint fyrir ofan kodd­ann. Þum­al­putta­reglan er að byrja á því að mæla 20 cm til hliðar frá brún dýn­unnar og 60 cm upp en þar er best að stað­setja ljósið.

Veggskreyt­ingar og efni
Margir vilja hafa myndir á veggj­unum í svefn­her­berg­inu en þá er gott að miða við að mynd­irnar séu ekki of margar og að lit­irnir í þeim séu ekki ögrandi líkt og rauðir tónar en þeir geta aukið stress. Ef of mikið af myndum er á veggj­unum getur það reynst yfir­þyrm­andi og vakið upp streitu­til­finn­ingu. Það sama á við um þegar blandað er saman mörgum ólíkum textílefnum og þá sér í lagi þungum efnum líkt og flaueli. Mikið mynstruð vegg­fóður í ögrandi litum og þungar og þykkar mottur geta vakið upp sömu til­finn­ingar en þær geta líkað minnkað loft­gæði. Ein­fald­leik­inn er því bestur til að róa hug­ann og stuðla að góðum næt­ur­svefni.

Litir og máln­ing
Litir hafa mikil áhrif á líðan og er mælt með grænum eða bláum tónum í svefn­her­bergi þar sem þeir hafa róandi áhrif og eru taldir geta lækkað blóð­þrýst­ing. Aðrir litir eins og gráir eða brúnir tónar geta einnig verið góðir en þá er heppi­legra að und­ir­tónn þeirra sé kaldur frekar en heitur. Annað sem gott er að hafa í huga þegar máln­ing er valin í svefn­her­bergi er að VOC-gildi hennar sé eins langt undir við­mið­un­ar­mörkum og hægt er. VOC er rok­gjarnt líf­rænt efna­sam­band en ef gildi þess er of hátt getur það kallað fram ofnæm­is­við­brögð, ógleði og höf­uð­verk. Rann­sóknir hafa leitt í ljós að VOC getur losnað út í and­rúms­loftið í allt að 18 mán­uði eftir málun og er það sér­lega slæmt í svefn­her­bergjum þar sem dvalið er að með­al­tali átta klukku­stundir í einu og inn­öndun mikil. Gildi VOC er breyti­legt eftir máln­ing­ar­teg­undum svo gott er að spyrj­ast fyrir í versl­unum og lesa vel inni­halds­lýs­ingar. Svans­vottun tryggir til að mynda að VOC sé í algjöru lág­marki.

Sængur, koddar og sæng­ur­föt
Sæng­ur­föt úr nátt­úru­efnum líkt og bóm­ull og hör eru lang­besti kost­ur­inn. Gervi­efni geta ert húð­ina, vakið upp ofnæm­is­við­brögð og stuðlað að auk­inni svita­myndun sem veldur því að svefn­inn raskast. Hör hefur for­skot á önnur efni þegar kemur að því að tempra hita en í heit­ari löndum er það efni mikið notað í fatnað og sæng­ur­föt vegna þess hæfi­leika. Auk þess er notkun efn­is­ins sér­lega umhverf­is­væn en til að mynda hefur hör það fram yfir bóm­ull að minna vatn þarf til rækt­un­ar­innar.

Sumum gæti þótt hör of gróft efni við­komu til þess að nota í sæng­ur­föt en gott er að hafa í huga að efnið mýk­ist tölu­vert með notkun. Einnig er gott að eiga tvær sængur sem eru mis­þykkar eða svo­kall­aðar sumar- og vetr­ar­sængur sem auð­velt er að skipta út eftir þörfum. Annað sem gott er að hafa í huga er að dýnur og koddar geta inni­haldið svampefni. Mörg svampefni inni­halda óæski­leg kemísk efni sem geta vakið upp ofnæm­is­við­brögð og haft mikil áhrif á gæði svefns. Þeir sem upp­lifa það að vakna alltaf á morgn­ana með stíflað nef ættu til dæmis að athuga hvort svampefni leyn­ist í kodd­anum eða dýn­unni. Einnig er gott að athuga hvort önnur gervi­efni, til dæmis í sæng­ur­fötum, séu að kalla fram þessi við­brögð.

Lykt
Ilmolíur hafa róandi áhrif og því ekki vit­laust að fjár­festa í ilmol­íu­lampa. Lavender hefur róandi áhrif og er til­valið í svefn­her­bergið. Mjög mik­il­vægt er að nota hreinar ilm­kjarna­ol­íur í miklum gæðum en þær end­ast einnig lengur. Ef ilmol­íu­lampi er ekki til staðar er hægt að setja nokkra dropa í bómull­ar­hnoðra sem svo má stinga inn í kodda­verið.

Plöntur
Plöntur og teng­ingin við nátt­úr­una hefur róandi áhrif. Þær stuðla einnig að bættum loft­gæðum sem er mik­il­vægt að hugsa um þegar kemur að svefn­inum. Það sem þarf þó að athuga er að of margar plöntur í litlu rými geta haft öfug áhrif og gert loft­gæðin verri en hættan er að þær kalli fram óæski­lega raka­myndun, þá sér í lagi ef vökvun er of mikil. Það er því betra að velja plöntu­teg­undir sem ekki þurfa mikla vökvun og ekki of mikla birtu til að þríf­ast.

Myndir / Úr safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni