Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Katrín kom út úr plötubúð og sýndi samkennd í verki: „Svona er fólk á Íslandi“

Katrín kom út úr plötubúð og sýndi samkennd í verki: „Svona er fólk á Íslandi“

Katrín Odds­dóttir, for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins, seg­ist hafa möl­brotið tveggja metra regl­una þegar hún hjálp­aði drukknum manni á Rauð­ar­ár­stíg síð­degis í gær. Henni líður vel eftir að hafa sýnt sam­kennd í verki og segir að sam­fé­lagið verði að gera allt sem hægt er til að draga þá við­kvæmu í skjól í Covid-far­aldr­inum.

Söguna segir Katrín í færslu sinni á Facebook. „Þegar ég kom út úr plötu­búð á Rauð­ar­ár­stíg klukkan sirka 17 í dag sá ég mann liggj­andi á miðri bíla­götu á móti. Ég skellti á Kristínu, sem ég var að tala við í sím­anum, og hljóp til hans en í sömu andrá bar að tvö pör úr sitt hvorri átt­inni. Við vorum eins og járnagnir að segli, þrjár ein­ingar sem skut­ust úr sitt hvorri átt að mann­inum sem lá svart­klæddur á bak­inu eins og afvelta járn­smiður, með hendur og fætur upp í loft. Við reyndum að reisa hann við en hann var afar þungur og valtur á fæti. Þegar hann var spurður hvort hann væri drukk­inn svar­aði hann: „Heldur betur!,“ segir Katrín.

Þegar hér er komið við sögu ná Katrín og aðstoð­ar­menn hennar að draga hinn drukkna af umferð­ar­göt­unni og fá upp úr honum hvar hann byggi. „Ég og maður sem ég komst seinna að að héti Hörður drógum hann áfram. Eldri hjónin sem höfðu komið síð­ust að sáu um að bera níð­þunga íþrótta­tösk­una hans. Konan hans Harðar hélt á plöt­unni minni. Það var eins og við hefðum ákveðið þessa verka­skipt­ingu á klukku­tíma­löngum skipu­lags­fundi, svo fum­laus var hún. Okkar maður var ein­kenni­lega fattur, starði beint upp í him­in­inn á meðan við drösl­uðum honum áfram, og var fyrir vikið alltaf við það að detta aftur fyrir sig. En okkur tókst þó að tosa hann alla leið í bælið að lokum,“ segir Katrín og bætir við:

„Hann þakk­aði okkur ítrekað fyrir á meðan við rog­uð­umst með hann heim, sagð­ist vera múr­ari og alveg getað borið sína 20 kílóa tösku sjálfur. Stoltur íslenskur steggur. En ég segi íslenskur því hann sagði eitt sem situr í mér þegar hann var að þakka okkur fyrir að aðstoða sig hann sagði: „Svona er fólk á Íslandi“. Eftir að við höfðum komið honum í skjól sagði Hörður mér að hann hefði horft á breskan þátt þar sem leik­arar þótt­ust hafa hnigið niður út á götu og það tók víst ár og aldir þar til ein­hver veg­far­andi skipti sér af þessu fólki.“

„Á sama tíma vitum við öll að stórir hópar fólks búa við við­var­andi fátækt og erf­iðar aðstæður. Við getum ekki stormað að þeim og dregið þau í skjól, eins og hægt var að gera í dag, en ég held að okkur langi það þó lang­flestum“

Katrín vonar að svo­leiðis verði það aldrei hér að við höldum áfram þegar við sjáum ein­hvern í vanda. Hún hefur áhyggjur af því að hinn drukkni múr­ari hafi vaknað í morgun með höf­uð­verk. „Og von­andi sefur múr­ar­inn vel í nótt. Mér leið vel eftir þetta. Samkennd í verki sýnir nefni­lega að við erum öll í þessu saman – sem er gott. Svo fannst mér fal­legt hvað mað­ur­inn sjálfur var með­vit­aður um ástand sitt í öllu þessu rugli, sem mig grunar að sé með ein­hverjum hætti rekj­an­legt til Kófsins. Álagið sem er á fólki út af þessu ástandi verður seint mælt. Það er sjálf­sagt mál fyrir okkur svo mörg að hjálpa fólki sem liggur hjálp­ar­vana út á götu af því það er ein­falt. Á sama tíma vitum við öll að stórir hópar fólks búa við við­var­andi fátækt og erf­iðar aðstæður á grund­velli þess að vera t.d. öryrkjar, aðfluttir eða aldr­aðir. Við getum ekki stormað að þeim og dregið þau í skjól, eins og hægt var að gera í dag, en ég held að okkur langi það þó lang­flestum. Við verðum að finna leiðir fyrir seg­ul­kraft­inn til að virka inn í okkar sam­eig­in­legum kerfum. Við bara verðum!,“ segir Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina