Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásta Guðmundsdóttir fatahönnuður fetar nýjar slóðir: „Allt sem kemur frá náttúrunni heillar mig“

Ásta Guðmundsdóttir fatahönnuður fetar nýjar slóðir: „Allt sem kemur frá náttúrunni heillar mig“
Mynd / Lisa Town Model Fyr­ir­sæta / Sydney

„Mér finnst gaman að vinna með íslensk hrá­efni. Allt sem kemur frá nátt­úr­unni heillar mig,“ segir Ásta Guð­munds­dóttir, fata­hön­uður og lista­kona, sem hefur upp á síðkastið fetað nýjar slóðir með umhverf­is­vænar vinnslu­að­ferðir og sjálf­bærni að leið­ar­ljósi.

Mynd / Lisa Town Fyr­ir­sæta / Sydney

„Ég vinn aðal­lega með nátt­úru­leg efni og núna er ég aðeins farin að flétta end­ur­vinnslu inn í hönn­un­ina mína. Ég hef til dæmis verið að sanka að mér alls konar áhuga­verðum hlutum á vinnu­stof­una mína, þar á meðal gömlum flíkum og end­ur­nýti þær í eigin vörur. Þetta geri ég af því að mér finnst það hrein­lega spenn­andi. Auk þess er það auð­vitað bara í takt við tím­ann að fram­leiða vörur með umhverf­is­vænni aðferðum. Við þurfum að vera sjálf­bær og huga miklu betur að umhverf­inu,“ segir Ásta og brosir.

Ásta útskrif­að­ist sem fata­hönn­uður frá Fachhochschule fur Gestaltung Pforzheim í Þýska­landi og eftir að hafa búið þar um nokk­urra ára skeið flutt­ist hún heim og fór að hanna föt undir eigin merki, ásta créative clothes. „Ég hef verið að hanna kjóla, skinn­húfur, lúffur og hand­prjón­aðar peysur frekar með áherslu á konur en karla, þótt ég hafi nú gert eitt­hvað af prjóna­peysum í gegnum tíð­ina sem henta fyrir bæði kyn,“ lýsir hún.

„Ég vil að flík­urnar sem ég hanna líti út fyrir að hafa verið úti í nátt­úr­unni. Að þær hafi yfir sér nátt­úru­legan blæ.“

Hún seg­ist meðal ann­ars vinna með alls kyns textíl og íslensk hrá­efni, til dæmis íslenska ull sem sé bæði ein­stök í útliti og hlý. „Annars mætti segja að veðr­aðar flíkur séu mitt þema,“ segir hún. „Ég vil að flík­urnar sem ég hanna líti út fyrir að hafa verið úti í nátt­úr­unni. Að þær hafi yfir sér nátt­úru­legan blæ.“

Mynd / Lisa Town Fyr­ir­sæta / Birta Hall­steins

Jafn­framt því að fram­leiða fatnað undir eigin merki fæst Ásta við skart­gripa­gerð og list­sköpun sem eru, rétt eins og fötin, inn­blásin af íslenskri nátt­úru. Hún seg­ist stundum vera spurð að því hvers vegna fata­hönn­uður hafi leiðst út í list­sköpun, hvort þetta sé ekki tvennt ólíkt, en fyrir henni sé þetta þvert á móti nátengt.

Ásta Guð­munds­dóttir, fata­hön­uður og lista­kona.

„Sem dæmi nota ég líka mikið af óhefð­bundum efnum bæði í hönnun mína, inn­setn­ingar og mynd­verk, eins og afganga, þræði og hross­hár. Það má segja að allt sem kemur frá nátt­úr­unni heilli mig.“

En hvar má nálg­ast verk eftir hana?

„Í Kirsu­berja­trénu við Vest­ur­götu og í nýju vef­versl­un­inni okkar kirs.is. Kirsu­berja­tréð er orðin 28 ára gömul verslun með stóran kúnna­hóp út um allan heim og það er gaman að á vefnum skuli þeim nú gef­ast færi á að sjá brot af því sem er í boði,“ segir hún og bætir við að nán­ari upp­lýs­ingar um hana sjálfa megi fá á astaclothes.is og á Instagram og Facebook undir ásta créative clothes.

Asta Creative Clothes í sam­starfi við Stúdíó Birtíng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur