Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Davíð Oddson minnist Ágústu Johnson sem jarðsungin er í dag: „Var vel gerð og mann­bæt­andi“

Davíð Oddson minnist Ágústu Johnson sem jarðsungin er í dag: „Var vel gerð og mann­bæt­andi“

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, og Karl Sig­ur­björns­son, fyrr­ver­andi biskup Íslands, eru meðal þeirra sem minn­ast Ágústu K. Johnson með fal­legum minn­ing­ar­orðum í dag. Hún verður jarð­sungin í dag.

Ágústa, fyrr­ver­andi deild­ar­stjóri í Seðla­banka Íslands, fædd­ist í Reykja­vík 22. mars 1939. Hún lést á heim­ili sínu 21. nóv­em­ber 2020. Hún var ógift og barns­laus.

Ágústa lauk stúd­ents­prófi frá Versl­un­ar­skóla Íslands og hóf þá störf í Lands­banka Íslands. Við stofn­un Seðla­banka Íslands flutt­ist hún yfir til Seðla­bank­ans og var í hópi fyrstu starfs­manna hans við stofn­un, rit­ari hjá ný­skip­uðum banka­stjóra. Hún vann hjá Seðla­banka Íslands nær all­an sinn starfs­fer­il eða í tæpa hálfa öld, lengst af sem deild­ar­stjóri skrif­stofu banka­stjóra. Ágústa var fé­lags­lynd, trúuð og kirkju­ræk­in og tók virk­an þátt í safn­aðar­starfi Dóm­kirkj­unn­ar. Hún var í stjórn Kirkju­nefnd­ar kvenna Dóm­kirkj­unn­ar.

„Eng­um duld­ist hlý­hug­ur­inn sem lýsti af björtu brosi henn­ar, góð­vild og glað­værð og ómaði í björt­um hlátr­um.“

Davíð Oddson, sem starf­aði um skeið sem Seðla­banka­stjóri, minn­ist Ágúst sem lyk­il­konu seðla­banka­stjór­anna sem þar hafa starfað enda hafi hún verið sam­ofin bank­anum frá fyrstu tíð hans. Það gerir hann í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu. „Bæði bank­inn og guðs­ríki, sem var­lega skal þó farið í að tvinna fast­ar sam­an en þetta, áttu traust­an stað í hjarta og huga Ágústu alla tíð. Hún var frá fyrstu stundu mik­il­væg­ur starfs­maður í lyk­il­stöðu, og svo alla sína starfs­tíð helsti trún­að­ar­maður æðstu stjórn­enda bank­ans um ára­tuga skeið. Marg­ir eru enn til staðar sem geta sagt þá sögu alla svo miklu bet­ur en ég get gert. En þótt ég hafi staðið stutt við þar, verður því ekki haldið fram að sá tími hafi verið við­burða­snauður í sögu bank­ans,“ segir Davíð.

Davíð greinir frá því að Ágústa hafi sjálf gengið útúr bank­anum þegar hann var hraktur þaðan eftir banka­hrunið. Þá hafi hún pakkað inn upp­á­halds kaffi­krúsinni hans Davíðs sem kveðju­gjöf. „Fyrsta morg­un­inn í bank­an­um hafði Ágústa fært mér ilm­andi kaffi­bolla á kon­tór­inn. Ég sagð­ist hafa vanið mig á það í ráu­neyt­un­um og á borg­ar­stjóra­skrif­stof­unni að ná í mitt kaffi sjálf­ur, nema þegar ég hefði gesti og rölta svo með kaffið og taka hús á sam­starfs­fólki mínu við mis­góðar und­ir­tekt­ir. Ágústa sagð­ist gjarn­an vilja fá að halda sín­um takti um fyrsta bolla dags­ins, eins og tísk­ast hefði frá upp­hafi. Sú varð auð­vitað nið­ur­staðan. Ég tók eft­ir því að fyrsti boll­inn minn var ólík­ur hefð­bundn­um og virðu­leg­um seðla­banka­boll­um, enda krús með snotr­um katta­mynd­um. Ágústa sagð­ist vita fyr­ir víst að nýi banka­stjór­inn væri veik­ur fyr­ir kött­um, eins og hún sjálf og hefði því ákveðið að byrja dag­inn jafn­an með þess­um bolla, nema annað yrði ákveðið. Krús­in kom á morgn­ana eft­ir það, segir Davíð og bætir við:

„Þegar leið á síð­asta dag­inn í bank­an­um færði Ágústa mér boll­ann inn­pakk­aðan og sagði hann eiga heima hjá mér. Ég var ekki viss um að vel færi á því þar sem boll­inn væri eign bank­ans. Ágústa hélt nú ekki. Hún hefði keypt hann sjálf úr sinni buddu og réði því hvað af hon­um yrði. Sjálf gæti hún ekki hugsað sér að vera áfram þenn­an mánuð sem hún ætti eft­ir af sinni starfsævi, eft­ir hina ódrengi­legu aðför og myndi fylgja okk­ur banka­stjór­un­um úr bank­an­um.“

„Ágústa var blíð og trygg­lynd kona, en föst fyr­ir þegar það átti við, og ekki síst ef hún taldi að heiður bank­ans henn­ar væri und­ir.“

Karl, fyrr­ver­andi biskup, ritar einnig fal­lega minn­ing­ar­grein um Ágústu. Hann hefur komið að starfi kirkj­unnar síð­ustu ár og þar kynnt­ust þau Ágústa. „Við eign­uð­umst þar ómet­an­lega vini sem hafa verið okk­ur styrk­ur og bless­un og er okk­ur óum­ræði­legt þakk­ar­efni. Í þeim hópi var frú Ágústa John­son sem jarð­sung­in er í dag. Henn­ar er sárt saknað og tóma­rúmið sem hún skil­ur eft­ir í því sam­fé­lagi verður ekki fyllt. Tryggð henn­ar og trú­festi var engu lík. Eng­um duld­ist hlý­hug­ur­inn sem lýsti af björtu brosi henn­ar, góð­vild og glað­værð og ómaði í björt­um hlátr­um. Alltaf var hún boðin og búin til hjálp­ar og spar­aði ekki spor­in meðan heilsa og kraft­ar leyfðu,“ segir Karl.

Karl Sig­ur­björns­son, fyrr­ver­andi biskup Íslands.

Karl segir að nær­vera Ágústu í kirkj­unni hafi verið bæði hlý og gef­andi. „Hún var ein­læg í trú sinni, kær­leik­ur henn­ar til Guðs orðs leyndi sér ekki og ein­læg­ur áhugi henn­ar að efla og styrkja trúna í sam­fé­lag­inu, ekki síst miðlun trú­ar­inn­ar til hinna ungu. Í til­efni af átt­ræð­isaf­mæli henn­ar í fyrra stofn­uðu vin­ir henn­ar Ágústu­sjóð til að kaupa fyr­ir Bibl­í­ur til að gefa ferm­ing­ar­börn­um Dóm­kirkj­unn­ar. Við vit­um að það gladdi hana mjög. Hún þekkti vel orð frels­ar­ans að sælla er að gefa en þiggja, og lifði sam­kvæmt því,“ segir Karl og heldur áfram:

„Hún var sann­ur vin­ur vina sinna og marg­ir nutu fórn­fýsi henn­ar og hjálp­semi fyrr og síðar. Kær­leik­ur henn­ar og um­hyggju­semi átti sér eng­in tak­mörk og fá­dæma sam­visku­sem­in og trú­mennsk­an í því sem henni var trúað fyr­ir. Hún átti lang­an og far­sæl­an starfs­fer­il í Seðla­bank­an­um og var virt og elskuð af yf­ir­mönn­um og sam­starfs­fólki fyrr og síðar. Líf henn­ar var helgað þjón­ust­unni og um­hyggj­unni um aðra. Nú er hún kvödd hinstu kveðju í birtu aðvent­unn­ar með ljóma jól­anna fyr­ir aug­um. Trú­ar­aug­um sjá­um við hana gleðj­ast í þeirri jóla­gleði sem tek­ur aldrei enda.“

Davíð segir að Ágústa hafi síðsta ára­tug sinn sínum helstu hugð­ar­efnum og ræktað vel vina­hóp­inn sinn. „Það var jafn­nota­legt og áður að hitta hana enda geisl­aði af henni til síð­ustu stund­ar. Hún varð fyr­ir óvæntu heilsu­áfalli heima við og lá á sjúkra­húsi um hríð. Í veiru­tíð var um­hend­is að vitja henn­ar. Þegar hún var kom­in heim átt­um við elsku­legt og gott sam­tal. Það var gleði­efni hve hún var þá orðin sjálfri sér lík og hugs­aði, eins brött og hún gat, til fram­tíðar og sagð­ist smám sam­an finna fyr­ir aukn­um styrk og hon­um fylgdi auk­in bjart­sýni. Fáum dög­um síðar skall á annað áfall og það af­ger­andi. Ágústa var blíð og trygg­lynd kona, en föst fyr­ir þegar það átti við, og ekki síst ef hún taldi að heiður bank­ans henn­ar væri und­ir. Hún var vel gerð og mann­bæt­andi að fá að eiga vin­áttu henn­ar,“ segir Davíð.

Ágústa verður jarð­sung­in frá Dóm­kirkj­unni í dag kl. 13 að við­stödd­um nán­ustu aðstand­end­um. At­höfn­inni verður streymt hér. Þegar aðstæður leyfa á ný þá verður minn­ing­ar­stund um Ágústu John­son í Dóm­kirkj­unni opin öll­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina