Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Veðurstofan varaði ítrekað við aurskriðum: „Samt kenna þau veðrinu um“

Veðurstofan varaði ítrekað við aurskriðum: „Samt kenna þau veðrinu um“

„Verði ekk­ert að gert er hætta á að stór aur­skriða geti fallið á byggð í sunn­an­verðum Seyð­is­firði. Til greina kemur að setja upp varnir sem eiga meðal ann­ars að draga vatn úr þykkum jarð­vegs­lögum ofan við bæinn.“

Svo hefst frétt RÚV frá því í fyrra um hætt­una á aur­skriðum í Seyð­is­firði. Veð­ur­stofan birti þá hættu­mat og var­aði við aur­skriðum. Raunar hefur verið varað við þessu í mörg ár án þess að nokkuð hafi verið gert. Frétt RÚV frá árinu 2016 ber þess vitni. Henni var deilt í morgun í Pírata­spjallið af Jóhann­esi Hraun­fjörð Karls­syni sem skrifar:

„Vek athygli á þess­ari 4 ára frétt RÚV frá Seyð­is­firði. Ekki nema von að íbúar séu dol­fallnir á stjórn­völdum en ekk­ert var gert með rann­sókn bæj­ar­yf­ir­valda, Ofan­flóða­sjóðs og Ágústs Guð­munds­sonar, jarð­fræð­ings frá árinu 2016. Hvað segja þing­menn um þetta mál? Hvað kost­aði skýrslu­gerðin og til hvers var hún gerð fyrst ekk­ert var um efndir? Er virki­lega venjan þegar menn spyrja stjórn­völd um efndir að þeir séu hand­teknir?“

Jon­a­t­han Moto Bisagni, íbúi á Seyðis­firði og eig­andi fyrir­tæk­is­ins Austur­lands Food Coop, var hand­tek­inn í gær og sak­aður um að hafa hótað for­sæt­is­ráð­herra. Sjálfur segir hann þetta þöggun. Það hafi fokið í hann þegar talað var um að ekki hafi verið hægt að kom­ast hjá eyði­legg­ing­unni.

Jonathan sagði í við­tali við Frétta­blaðið í gær að hann vildi að ráða­menn öxl­uðu ábyrgðar. „Þetta er ekki lýð­ræði og það er ekki í lagi að stjórn­mála­menn noti sitt vald til að þagga niður í kjós­endum. Það er ekki í lagi og það er það sem er að ger­ast hér. Þau áttu að koma hingað til að hlusta á mig en tóku mig í hald til að kom­ast hjá því. Þau vildu ekki heyra hvað ég hef að segja því ég vil láta þau axla á­byrgð,“ sagði Jon­a­t­han og bætt við:

„Þau spil­uðu rúss­neska rúl­lettu með líf okkar og kenna veðr­inu um. Þau spil­uðu rúss­neska rúl­lettu með líf okkar og töp­uðu. En samt kenna þau veðr­inu um og svo munu trygg­ing­arnar leysa þau út. Það er ekki í lagi.“

RÚV fjall­aði nokkur ítar­lega um áhættu­mat Veð­ur­stof­unnar í fyrra. Það rennir nokkrum stoðum undir orð Jonathan. „Ofan­flóða­vakt Veð­ur­stof­unnar hefur fylgst sér­stak­lega með skriðu­hættu úr Neðri-Botnum eftir að upp­lýs­ingar um hættu á stórum skriðum þaðan komu fram. Gert er ráð fyrir að bæta öryggi íbúa á þessu svæði með eft­ir­liti og rým­ingu hús­næðis þegar þörf krefur þangað til gripið hefur verið til var­an­legra aðgerða til þess að draga úr þess­ari hættu,“ segir þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina