Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fréttablaðið haft að háði og spotti – Besti viðskiptamaðurinn boðar einokun

Fréttablaðið haft að háði og spotti – Besti viðskiptamaðurinn boðar einokun

Óhætt er að segja að við­brögð flestra á sam­fé­lags­miðlum við vali Frétta­blaðs­ins á við­skipta­manni árs­ins sé háð. Frétta­blaðið valdi Boga Nils Bogason, for­stjóra Icelandair Group, sem við­skipta­mann árs­ins og Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sagður kjáni að hafa á hlut að því að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna snið­gekk hluta­fjár­út­boði Icelandair.

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi ráð­herra, gerir grín af Frétta­blað­inu í dag og tekur saman blaðið í dag. „Boð­skapur Frétta­blaðs­ins í dag nokkurn veg­inn svona: Hér skal vera eitt einka­flug­fé­lag með yfir­burða­stöðu, verstu við­skipti árs­ins að kaupa ekki hluta­bréf í því (einu sinni var það álitin mesta áhætta sem hægt væri að kaupa á íslenskum fjár­mála­mark­aði að kaupa ekki bréf í deCode), mjög spenn­andi að taka þátt í píramíta­svindlinu með Bitcoin, það á ekki að sóa fé skatt­borg­ara í rekstur Jafn­rétt­is­stofu og annað álíka, vefir eins og DV.is geta vel komið í stað­inn fyrir RÚV sem á að minnsta kosti að hætta að selja aug­lýs­ingar. Er örugg­lega að gleyma ein­hverjum stór­merki­legum til­lögun en afgang­ur­inn virt­ist í svip­uðum anda,“ segir Gylfi.

Sigurður Guðni Guð­jóns­son, lög­maður sem hefur komið víða við í fjöl­miðlum, skýtur jafn­framt fast á Frétta­blaðið. „Er frjáls sam­keppni óraun­hæf ? Við­skipta­maður árs­ins að mati dóm­nefndar við­skipta­kálfs Frétta­blaðs­ins er for­stjóri Icelandair. For­stjór­inn vann gott verk á árinu 2020 og tókst með aðstoð rík­is­ins, sölu nýs hluta­fjár og hæfi­legri hörku gegn flug­liðum og firrtum launa­kröfum þeirra að bjarga Icelandair frá þroti. Samkvæmt kálf­inum hefur for­stjór­inn líka skýra afstöðu til sam­keppni. Hann telur óraun­hæft að hér á landi sé mark­aður fyrir annað flug­fé­lag en það sem hann stýrir. Einokun tryggir lágt þjón­ustu­stig og hátt verð. Það hefur sagan kennt okkur,“ segir Sigurður Guðni.

Hann veltir því fyrir sér hvar þetta endar. „Við­skipta­maður árs­ins hjá frjálsum fjöl­miðli er því í raun tals­maður ein­ok­unar, enda er ein­okun og ein­ok­un­ar­til­burðir hluti af erfða­mengi Icelandair. For­stjór­inn sýndi það á líð­andi ári að hann er hrein­skipt­inn og þorir að segja það sem aðrir hugsa. Af fyr­ir­sögn við­tals við hann í til­efni nafn­bót­ar­innar fær maður á til­finn­ing­una að hið frjálsa við­skipta­líf þrí­fist ekki í sam­keppni og stefni ávallt að ein­okun eða í það minnsta fákeppni. Senni­lega getur útvarps­stjóri rík­is­ins gert orð við­skipta­manns árs­ins að sínum og sagt að óraun­hæft sé að reka frjálsa fjöl­miðla á Íslandi. RÚV dugi.  Spurning er svo bara hvað trygg­inga­fé­lag, banka ,skipa­fé­lag, útgerð, mat­vöru­verslun, plötu­snúð og hljóm­sveit ríkið á að halda úti,“ segir Sigurður.

Svo eru aðrir sem segja val á verstu við­skiptum árs­ins hlægi­leg. Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir og Grind­vík­ingur, er þar á meðal. „Hér virð­ist sá sem skrif­aði frétt­ina í við­skipta­blað Frétta­blaðs­ins álíta að núver­andi gengi bréf­anna í Icelandair sé komið til að vera! Sá hinn sami hefur örugg­lega álitið að hátt gengi í bönk­unum á sínum tíma hafi verið óhagg­an­legt og var­an­legt! Annað kom svo á dag­inn. Vel gæti verið að í ljós komi að hann hafi verið að skrifa „vit­laus­ustu“ frétt árs­ins! Minnir mig á góðan mann í Grinda­vík sem sagð­ist hafa tapað um 30 millj­ónum á falli Lands­bank­ans eftir hrunið. Jæja, en hvað keyptir þú bréf fyrir mikið? Það voru 5 millj­ónir! Nú já, þá tap­aðir þú ekki 30 millj­ónum, bara þessum 5 og ein­hverjum vöxtum af þeim – hitt var var bara bók­halds­froða og blekk­ing,“ skrifar Björn.

Þekktir Íslend­ingar gagn­rýna Frétta­blaðið enn fremur á Twitter og má sjá dæmi um það hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina