Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þór Nielsen er látinn: „Snillingur, nú ertu farinn“

Þór Nielsen er látinn: „Snillingur, nú ertu farinn“

„Snill­ingur, nú ertu far­inn! Fyrr en mig hefði órað fyrir. Þrátt fyrir að þú hefðir átt við nokkra van­heilsu að stríða hin síð­ustu ár þá von­uðum við báðir að þú myndir ná þér og að við vin­irnir myndum skunda á Þingvöll næsta vor. En þá kom höggið, ill­kynja æxli kom í ljós og eftir stutta legu á Land­spít­al­anum varstu allur.“

Þetta segir Óttar Felix Hauksson um vin sinn, Þór Nielsen sem féll frá 19. des­em­ber og hefði orðið átt­ræður í maí á þessu ári.

Þór söng og lék á gítar með fjölda hljóm­sveita. Má nefna sveitir eins og J.J. quintet, Junior kvin­tett, Tígris sextett­inn, Pónik, Venus kvar­tett­inn, Þórsmenn, City sextett, Ásar, Glæsir, Flamingo kvar­tettt­inn og Tríó Elfars Berg.

Þór átti hann ekki langt að sækja tón­list­ar­á­hug­ann, amma hans spil­aði á píanó og afi á fiðlu. Þau voru dönsk, afi hans, Emil Nielsen, var fyrsti fram­kvæmda­stjóri Eimskips.

En Þór var ekki aðeins tón­list­ar­maður, hann var einn sá allra besti í flugu­hnýt­ingum og hefur kennt þær á vet­urna.

Í við­tali við Morg­un­blaðið greindi Þór frá því að skemmti­leg­asti tím­inn var þegar hann söng og lék með Ásum og hljóm­sveit Gissurar Geirs­sonar frá Selfossi.

„Ég spil­aði með þeim á Spáni og á Gull­fossi, og það var auð­vitað ógleym­an­legt. Það var svo gaman að ferð­ast og spila, einkum úti á sjó. Ég spil­aði á Gull­fossi í tvö ár og fór með honum síð­ustu ferð­ina. Þarna voru oft mörg fræg and­lit og skemmti­leg stemmn­ing. Og ekki spillti að eig­in­konan var með í ferðum. Við spil­uðum líka í fleiri löndum, tókum eitt sinn lagið með hljóm­sveit í Hollandi og gerðum mikla lukku. Þeir voru alveg hissa á hvað svona jóla­sveinar gátu og vildu helst ekki sleppa okkur. Hann var líka skemmti­legur tím­inn þegar ég var að byrja í brans­anum. Í þá daga voru menn fínir í tauinu þegar þeir voru að spila. Það voru ekki galla­bux­urnar og bol­irnir þá.“

Þór var atvinnu­maður í tón­list í um þrjá­tíu ár. Hann var kvæntur og átti fjóra syni. Honum fannst oft þreyt­andi að vera í eilífri næt­ur­vinnu. Í við­tal­inu í Morg­un­blað­inu segir einnig:

„Eftir að ég hætti vissi ég ekki hvað ég átti af mér að gera um helgar, maður var jú vanur að fara að „sjæna“ sig svona seinni­part­inn.“

En Þór gerði ýmis­legt fleira en að spila. Á sumrin var hann við veiðar og á vet­urna kenndi hann flugu­hnýt­ingar, enda tal­inn með þeim bestu og af mörgum sá fær­asti  í þeirri grein.

„Ég byrj­aði að veiða á flugu fimmtán ára gam­all. Fékk að sitja aftan á vöru­bílum inn að Elliða­vatni, þar sem maður stalst svo í ána. Þegar ég var að spila í Glæsibæ kom ég oft­ast heim klukkan fjögur að nóttu og var svo far­inn klukkan hálf fimm austur á Þingvöll til að veiða. Ég veiddi allan dag­inn, fór svo heim, skipti um föt og var kom­inn á sviðið klukkan átta.

Konan mín var alveg hissa því að ég var aldrei í rúm­inu á morgn­ana. Alltaf tómt rúmið, horf­inn karl­inn. Þetta gerði ég helgi eftir helgi, öll sumur. Þurfti bara að sofa á haustin. Það var mitt líf og yndi að koma austur á Þingvöll á morgn­ana þegar allt var að vakna, fugl­arnir og nátt­úran. Nú bíður maður bara eftir vor­inu.“

Tómleik og sorg

Óttar Felix segir að flugu­veiðin og tón­listin hafi tengt þá sterkum böndum og fóru þeir margar ferðir á hverju sumri að Þing­valla­vatni til sil­ungs­veiða. Óttar Felix segir:

„Á leið­inni hlust­uðum við á tón­list sjötta ára­tug­ar­ins, þar varst þú svo sann­ar­lega á heima­velli, þekktir öll lögin, hafðir sjálfur leikið flest þeirra enda þekktur hljóð­færa­leik­ari og söngv­ari frá árum áður.“

Þá segir Óttar Felix á öðrum stað: „Ég fann fyrir tóm­leika við tíð­indin, tóm­leika og sorg. Vin­áttu­bönd okkar voru afar sterk, allt frá fyrstu kynnum fann ég hversu vel við náðum saman þrátt fyrir níu ára ald­urs­mun. Þú varst svo glað­lyndur og áhuga­samur.“

„Þú varst læri­meist­ari minn í háskóla flugu­veið­innar, Þing­valla­vatni. Þekking þín og reynsla af vatn­inu spann­aði yfir sjö­tíu ár. […] Þú varst einn af bestu flugu­hnýt­urum lands­ins, sann­ar­lega snill­ingur á því sviði. Flug­urnar þínar eru frægar, hafa birst í bókum og tíma­ritum og hafa verið seldar í versl­unum, verða eflaust eft­ir­sótt fágæti meðal flug­veiði­manna á næstu árum.“ Þá segir Óttar Felix að lokum:

„Ég votta Bjarn­eyju, eig­in­konu þinni, son­unum og fjöl­skyldum þeirra, dýpstu samúð mína. Þegar Manns­son­ur­inn, á dóms­degi, kemur í dýrð sinni og skilur sauð­ina frá höfr­unum, er ekki ólík­legt að almættið kjósi að hafa góðan flugu­hnýt­ara innan sinna vébanda á veiði­lendum eilífð­ar­innar.

Guð blessi minn­ingu Þórs Nielsen, þess góða drengs.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina