Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stjarna á einni nóttu en yfirgaf heiminn vinafár

Stjarna á einni nóttu en yfirgaf heiminn vinafár

Eftir // Jón Óðinn Waage

Hann var innan við tví­tugt er hann fór með vini sínum á skemmtun þar sem ungu fólki var boðið að sýna getu sínu í söng.  Hann ætl­aði ekki að taka þátt, fylgdi bara vini sínum.  En hann var í eðli sínu grall­ari sem að alltaf var til í fjör, svo hann stökk upp á svið og greip hljóð­nem­ann.  Það átti samt bara að vera létt grín.  Stjórn­endum skemmt­un­ar­innar fannst þetta ekk­ert fyndið, alls ekki.  En þeim fannst þessi ungi maður hafa afar fal­lega rödd, flauels­mjúka og seið­andi sem gat líka farið upp og niður tón­stig­ann áreynslu­laust.

Þannig hófst söng­fer­ill þessa unga pilts af Odd­eyr­inni, sonur fátæks verka­fólks.  Það var engin efna­hags­leg með­gjöf, en þeim mun meira að umhyggju og ást.  Það var reyndar með­fæddur hæfi­leiki þessa unga manns, allir elsk­uðu hann.  Gáskinn heill­aði alla.  Hann var alltaf hrókur alls fagn­aðar.

Söng­fer­ill­inn hófst því fyrir til­viljun.  En risið upp á hinn litla stjörnu­him­inn sem Ísland skart­aði var hratt.  Hvert lagið á fætur öðru náði vin­sældum, honum var boðið til höf­uð­staðar lands­ins til að syngja með vin­sæl­ustu hljóm­sveit lands­ins.  En fyrir ungan, fátækan Eyr­ar­púka var þetta hættu­leg veg­ferð.  Að vera frá nátt­úr­unnar hendi heill­andi umfram flesta þá bætir það ekki  að verða vin­sæl­asti dæg­ur­laga­söngv­ari lands­ins.

Konur voru allt í kringum hann, líka menn sem vildu fá að taka þátt í gleð­inni og gleðin var mikil.  Svo varð hún of mikil.  Hann höndl­aði þetta ekki, áfengið og hann áttu ekki sam­leið, samt vildi hvor­ugt sleppa af hinu tak­inu.  Fallið varð hátt.  Hann flúði frá Íslandi.

Við tók fer­ill flakk­ar­ans.  Hann gerð­ist sjó­maður á skipum sem sigldu um heim­inn.  Til að byrja með var nýja lífið mikið ævin­týri.  Stuð í hverri höfn, hann þurfti ekk­ert á frægð­inni að halda til að heilla fólk, það var honum með­fætt.  Það var sama hvort að það var í Osló eða Singapúr, á báðum stöðum var hann gaur­inn sem döm­urnar vildu og menn vildu djúsa með.

En svo liðu árin, flakkið fór að verða leiði­gjarnt, hann sakn­aði Íslands, for­eldra sinn og bræðra.  Líka barn­anna sinna tveggja.  En það var ekki auð­velt að snúa heim.  Flandrið hafði skilað honum suður á Ind­lands­haf, þar sigldi skipið sem hann var kom­inn á.  Heimferð á þessum tíma var dýr, pen­ingar höfðu ekki verið sparaðir í land­legum, fjörið kost­aði sitt.  Hann vildi heim, tím­inn sem tók að spara fyrir heim­ferð­inni tók sinn tíma og var erf­iður.

Þegar til Íslands kom var allt breytt.  Nýjar yngri hetjur réðu skemmt­ana­brans­anum, það var ekki mark­aður fyrir dæg­ur­laga­söngv­ara sem ekki var í tísku lengur.  Hann komst hvergi að, fal­lega röddin fékk bara að hljóma í sam­kvæmum, þar var hann enn aufúsu­gestur, enn sama sam­kvæm­is­ljónið.

Þannig liðu árin og ára­tugirnir, áfengið réði för, hann var alveg búinn að missa stjórn á þeim fylgi­naut.  Alltaf blund­aði samt draum­ur­inn um end­ur­komu, hann hafði reynt en ekki orðið ágengt.

Að lokum fór lík­am­inn að gefa sig.

Krabba­mein tók sér ból­festu í háls­inum og eyði­lagði rödd­ina.  Hann gat ekki einu sinni talað lengur.  Fyrir honum voru þetta enda­lokin, hann tók þá ákvörðun að drekka sig í hel.  Honum tókst það.

Fáir fylgdu honum til grafar, örfáir vinir sem höfðu reynst sannir vinir þegar á reyndi.  Ein minn­ing­ar­grein birt­ist í fjöl­miðlum, lítil stúlka sem hann hafði gengið í afa­stað skrif­aði hana.  Engin lög voru spiluð honum til heið­urs á útvarps­stöðvum.

Hann yfir­gaf þennan heim vina­fár.

Tíu árum eftir and­lát hans gekk eitt af lögum hans í end­ur­nýjun líf­daga.  Yngri menn höfðu reynt sig við það en tek­ist dap­ur­lega upp, hans útgáfa af lag­inu varð nú ógn­ar­vin­sæl.  Tón­leikar voru haldnir honum til heið­urs mörgum sinnum, fullt var út úr húsi á þeim öllum. Hann fékk nú þá við­ur­kenn­ingu sem að hann hafði þráð í marga ára­tugi.  En hún kom tíu árum of seint.

Það á að heiðra fólk meðan að það er lif­andi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina