Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kraftaverkið og gamla konan í Kringlunni: Það sem skiptir máli

Kraftaverkið og gamla konan í Kringlunni: Það sem skiptir máli

Eftir / Stefán Ólaf Stef­áns­son

Í nokkur ár starf­aði ég í fata­versl­unni Next. Þar átti ég frá­bæra tíma með ynd­is­legu sam­starfs­fólki ásamt því að kynn­ast mörgum skemmti­legum kúnnum. Einn við­skipta­vinur mun þó alltaf standa upp úr og honum mun ég aldrei gleyma.

Þessi við­skipta­vinur var eldri kona sem að gekk inn í versl­un­ina einn dag­inn ásamt eig­in­manni sínum. Ég hafði verið dapur í bragði og dag­ur­inn þung­bær en þessi dagur átti eftir að verða ein besta kennslu­stund sem ég hef setið í líf­inu.

Ég bauð góðan dag og fann um leið að þetta var eng­inn venju­legur við­skipta­vinur. Þau hjónin voru komin til að finna nýjar buxur en eig­in­mað­ur­inn hafði verið lengi rúm­liggj­andi á spít­ala og því grennst mikið. Fyrst og fremst vildu þau samt bara njóta þess að vera með hvort öðru eftir langa sjúkra­hús­vist og rölta á milli búða.

Meðan mað­ur­inn mát­aði ýmsar gerðir af buxum spjall­aði ég við gömlu kon­una. Við töl­uðum saman  eins og við hefðum alltaf þekkst. Hún sagði mér frá syni sínum sem var læknir í Svíþjóð, sýndi mér mynd af honum sem hún gekk með í vesk­inu og ég heyrði á henni að son­ur­inn var henni afar náinn. Hún tal­aði mikið um fjöl­skyldu sína, mann­inn sinn og vini. Þau hjónin væru svo ham­ingju­söm þrátt fyrir að vera bæði mikið veik.

Hún var með krabba­mein. En þegar hún tal­aði um krabba­meinið vott­aði aldrei fyrir vor­kunn í rödd hennar. Hún hafði komið öllum börnum sínum til manns og það að hún myndi bráð­lega fara væri bara gangur lífs­ins. Lífið hafði gefið henni svo margt nú þegar.

Ég horfði á þessa eldri konu og hugs­aði með mér hvernig hún færi að því að vera svona jákvæð.

Að glíma við svæsin og mikil lífs­hættu­leg veik­indi en um leið hafa tök á því að horfa svona björtum augum á lífið; það fannst mér vera ein­stakt. Ég fékk einnig sam­visku­bit, því fyrr um dag­inn hafði ég vor­kennt sjálfum mér fyrir nokkur smá­vægi­leg vanda­mál sem voru nú löngu horfin. Mín vanda­mál voru hjóm eitt við hlið hennar. Nákvæm­lega ekk­ert.

Spjall okkar tveggja hélt áfram en að end­ingu kvödd­umst við. Vikurnar liðu og þessi heim­sókn sat föst í huga mér.  Ég vissi ekki hvað gamla konan hét og hafði aldrei séð hana áður en í þess­ari stuttu heim­sókn hafði ég lært svo margt.

Það var þó einn dag­inn að hjónin komu aftur. Þau sögð­ust ekki ætla að versla neitt en höfðu fundið þörf fyrir að koma og heilsa upp á mig. Gömlu kon­unni hafði þótt svo gaman að tala við mig sein­ast og fund­ist ég vera indæll og skemmti­legur drengur. En í þetta skiptið vildi gamla konan segja mér fréttir:

„Veistu, ég var að koma frá spít­al­anum og á ég að segja þér,“ sagði konan og tók sé örstutt hlé áður en hún hélt áfram og bætti við:

„ … Krabba­meinið er bara farið!“

Ég stóð stjarfur. Það að hún skyldi deila þessu með mér var ótrú­legt. Ég þekkti þessa konu ekki neitt en ég var jafn ánægður við að heyra þessar fréttir eins og við værum náskyld. Ég vissi ekki hvað ég ætti að segja en sagði samt að kannski væru æðri mátt­ar­völd að verki. Þetta þótti henni vænt um að heyra og brosti, kannski væri það bara rétt hjá mér.

Ég hef aldrei hitt þessa konu aftur og mun örugg­lega aldrei gera en þennan dag, minnti hún mig á hvað það er í líf­inu sem raun­veru­lega skiptir máli. Slíka áminn­ingu er stundum gott að fá. Málið er nefni­lega það að á vegi okkar allra verða margs­konar hindr­anir sem þó eru mis­erf­iðar viður­eignar.

Við eigum að vera þakk­lát fyrir það ef við þurfum ekki að mæta þeim stærstu og erf­ið­ustu en það eru hindr­anir sem snerta heils­una. Það að fá að vakna á hverjum morgni í heil­brigðum lík­ama eru for­rétt­indi og við sem erum það heppin eigum ævin­lega að vera fyrir það þakk­lát.

Í sam­fé­lagi okkar eru nefni­lega fullt af hetjum, bæði stórum sem smáum sem ekki eru það hepp­inn og þurfa kljást við slíkar hindr­anir í sínu dag­lega lífi.

Til þeirra eigum við að hugsa til reglu­lega.

Því það eru hinar sönnu hetjur.

Stefán Ólafur Stefánsson

Höfundur er uppeldis- og menntunarfræðingur

Stefán Ólafur Stef­áns­son var lengi einn vin­sæl­asti pistla­höf­undur Pressunnar. Hann er upp­eld­is­fræð­ingur að mennt og er nýr pistla­höf­undur á Mannlíf. Stefán hefur leik­inn á Mannlíf með pistli sem sló í gegn fyrir nokkrum árum og var þá les­inn af tugum þús­und Íslend­inga. Frá­sögnin hitti les­endur í hjarta­stað og ættu allir að geta tengt við skila­boðin sem bentu okkur á það sem skiptir máli!

Stefán  hefur látið gott af sér leiða og starfað mikið með ung­lingum sem glíma við and­leg veik­indi, svo sem kvíða, félags­fælni eða þung­lyndi. Þá heldur hann úti síðu lík­ams­rækt (sjá hér) fyrir ung­menni á aldr­inum 14 til 18 ára, er glíma við and­lega van­líðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina