Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ættingjar hissa að sjá Magnúsi stillt upp sem Seljaskólapervertinn: „Mjög óþæginlegt“

Ættingjar hissa að sjá Magnúsi stillt upp sem Seljaskólapervertinn: „Mjög óþæginlegt“

Magnús Þór Jónsson, skóla­stjóri Selja­skóla, er reiður út í fjöl­miðla fyrir að hafa birt af sér for­síðu­mynd í gær undir fyr­ir­sögn um perra­skap þar sem fjallað var um karl­mann sem hefur berað sig fyrir nem­endur skól­ans. Það gerð­ist tvo daga á röð, bæði í gær og fyrra­dag, og báða dag­ana tókst fjöl­miðlum að skella sak­lausum mönnum undir perra­fyr­ir­sagnir. Í fyrra til­vik­inu var um að ræða Atla Má Gylfason blaða­mann sem sat jafn­framt með barn sitt í fang­inu.

Umræddur Selja­skóla­per­vert hefur ekki ennþá náðst og heldur skóla­starfi Selja­skóla í gísl­ingu. Í sam­tali við Mannlíf rétt í þessu segir Magnús frí­mín­útur nýliðnar þar sem fjöl­mennt lög­reglu­lið var á verði. „Nú hafa þetta verið tveir dagar í röð og það þrátt fyrir við­búnað lög­reglu. Lög­reglan tekur þetta mjög alvar­lega og fullt af lög­reglu­bílum á svæð­inu,“ segir Magnús og bætir við hversu óþæg­in­legt það var í gær að hafa verið mynd­birtur sem perri hjá bæði Frétta­blað­inu og DV:

„Ég var ekki alveg sáttur. Við getum alveg orðað það þannig að mynd­notk­unin var mjög óheppi­leg. Því miður virð­ist fjöldi ein­stak­linga ekki lesið grein­ina en tengdu bara and­lit mitt við fyr­ir­sögn. Aug­ljós­lega var það mjög óþæg­in­legt, bæði fyrir mig og fjöl­skyldu og góða vini.“

Magnús hefur varað alla for­eldra skól­ans við karl­manni sem ber­aði sig fyrir framan nem­endur skól­ans í gær og fyrra­dag. Börnunum var eðli­lega mjög brugðið og lög­regla rann­sakar atvikið. Frí­mín­útna­gæsla í skól­anum hefur verið aukin og lög­reglan biður for­eldra um að vera á varð­bergi.

Í fyrra­dag flutti Vísir svo frétt af fyrra til­vik­inu sem Breið­holtsperr­inn ber­aði sig fyrir framan börnin í Selja­skóla. Þá var Atla smellta á for­síð­una þar sem hann sat með unga dóttur sína í fang­inu. Fjöl­margir net­verjar hafa gagn­rýnt mynd­birt­ing­una, meðal ann­ars inni í hópi áhuga­fólks um fjöl­miðla á Facebook.

Á Twitter vakti Guð­mundur Jör­unds­son fata­hönn­uður athygli á þessu og virð­ast flestir sam­mála honum, ef marka má fjölda læka. Guð­mundur deilir skjá­skoti af frétt­inni þar sem rætt er við Atla Má og segir fram­setn­ing­una sturl­aða. „Vá hvað það er sturlað að birta þessa fyr­ir­sögn með mynd af manni sem er ekki umræddur per­vert og það með barnið sitt í fang­inu. Mér finnst eitt­hvað svo extra sví­virði­legt að hann haldi á barn­inu sínu á mynd­inni,“ segir Guð­mundur.

Í athuga­semdum við tístið merkir kona nokkur Jakob Bjarnar Grét­ars­son, blaða­mann­inn sem skrif­aði frétt­ina, og spyr hvort það megi ekki end­ur­skoða þetta. Jakob svarar og harð­neitar. „Nei, mér finnst það ekki rétt. Hér er aug­ljós­lega um heldur ömur­lega rang­túlkun að ræða og það getur ekki verið við­miðið,“ segir Jakob og bætir við í öðru tísti:
„Ekki að það skipti máli, né að blm eigi að ráðg­ast við við­mæl­endur en hann sendi mynd­ina til birt­ingar að höfðu sam­þykki móður og sá ekk­ert að fram­setn­ing­unni. Eiga fjöl­miðlar að taka mið af gagn­rýni sem er ómark? Að miða umfjöllun við mein­tan ósmekk­legan hugs­an­legan mis­skiln­ing?,“ spyr Jakob.

Gunnar Hrafn Jónsson, fyrr­ver­andi blaða­maður til margra ára, skýtur á Jakob og segir hann ein­fald­lega þrjóskan. „Mér finnst mjög hart vegið að blaða­mönnum eins og oft áður og skil að Jakob taki það nærri sér, þessi mynd­birt­ing er hins vegar algjört rugl miðað við til­efni og ef hann væri ekki svona þrjóskur myndi hann við­ur­kenna það,“ segir Gunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina