Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hallgrímur er látinn langt fyrir aldur fram: „Ég bið að heilsa ömmu og afa“

Hallgrímur er látinn langt fyrir aldur fram: „Ég bið að heilsa ömmu og afa“

Hall­grímur Sveinn Sæv­ars­son er lát­inn ein­ungis 45 ára að aldri. Hann lést í Kópavogi þann 14. jan­úar síð­ast­lið­inn. Hall­grími er lýst sem til­finn­inga­næmu ljúf­menni sem barð­ist við grimma fíkn. Hann var barn­góður og ef honum var rétt hljóð­færi þá var þó komin lag­lína stuttu síðar. Þó hann hefði aldrei áður spilað slíkt hljóð­færi.  Hann var fyrstur Íslend­inga á þrí­tugs­aldri til að ljúka Reykja­vík­ur­mara­þon­inu.

Bróðir hans segir að því miður hafi það ekki komið á óvart þegar hann frétti af frá­falli Hall­gríms. „Elsku Hall­grímur! Það var erfitt að frétta af frá­falli þínu, þó svo að ég verði að við­ur­kenna að fréttin kom mér ekki mjög á óvart. Lífið fór ekki með þig ein­falda eða auð­velda veg­ferð, sér­stak­lega núna síð­ari árin. Ég hugs­aði oft með mér hvernig þú færir að því að kom­ast í gegnum þetta allt saman aftur og aftur. Miðað við hvað það var erfitt að fylgj­ast með þér og bar­áttu þinni úr nokk­urri fjar­lægð á ég erfitt með að ímynda mér hversu erfitt það hefur verið að standa í bar­átt­unni sjálfur. Ég efað­ist aldrei um hvað þig lang­aði mikið í annað líf, en fíknin var þér oft og tíðum harður og grimmur stjórn­andi. Eitthvað hlaut að þurfa að láta undan að lokum,“ segir bróðir hans, Ingi Þór Ein­ars­son.

Ingi segir síðar í grein sinni að Hall­grímur hafi verið gíf­ur­lega skap­andi. „En vá hvað ég á eftir að sakna þín Hall­grímur. Þú hafðir svo margt fram að færa og þú varst sá skap­andi af okkur tveimur. Ég sá um ísköldu rök­hugs­un­ina á meðan þú sást ekki hindr­an­irnar og skap­aðir það sem þú sást fyrir þér. Það var líka lær­dóms­ríkt að fylgj­ast með þér leika við börnin í fjöl­skyld­unni. Þú varst alltaf til­bú­inn að setj­ast niður með þeim, sást hlut­ina út frá þeirra sjón­ar­horni og tengd­ist þeim út frá þeirra for­sendum. Eitthvað sem ég þurfti að til­einka mér, en allt svona virt­ist nán­ast koma nátt­úru­lega hjá þér. Ég veit að þú ert hvíld­inni feg­inn eftir langa bar­áttu og veit að þú ert kom­inn á betri stað núna. Ég bið að heilsa ömmu og afa og við sjá­umst síðar,“ segir Ingi.

Systir Hall­gríms segir Hallgrím hafa verið með full­komið tón­eyra. „Elsku bróðir minn er dáinn og eftir stendur óbæri­lega stórt skarð. Ég á ekki lengur tvo bræður og tvær systur. Ég á ekki lengur bróður sem gengur um með nákvæm­lega eins fæð­ing­ar­blett og ég á hand­leggnum. Ég á ekki lengur bróður með full­komið tón­eyra, mynda­vél um háls­inn, ein­hverja þjóð­sögu á nátt­borð­inu, hrip­andi niður ljóð og bundið mál eins og 18. aldar lista­maður. Haggi var end­ur­reisn­ar­mað­ur­inn, fjöl­fræð­ingur sem virt­ist hafa áhuga á öllu og var ótrú­lega fljótur að til­einka sér nýja færni. Það virt­ist vera hægt að rétta honum hvaða hljóð­færi sem er og nokkrum mín­útum seinna kom lag­lína, eitt­hvað beint frá hjart­anu,“ segir Guðrún systir hans.

Hún víkur svo máli að áföll­unum í lífi hans. „En þrátt fyrir að allt léki í hönd­unum á Hagga, lék lífið þennan bróður minn mjög hart og undir það síð­asta var ég farin að velta fyrir mér hvers konar ofur­líf­færi hann hefði fengið í vöggu­gjöf sem þoldu óbæri­legt álag á köflum. Haggi átti 9 líf og í hvert sinn sem ég hélt að þau væru búin reis hann upp aftur. Þangað til hann gerði það ekki. Hans saga ein­kennd­ist bæði af and­legum og lík­am­legum veik­indum en líka óbilandi elju og löngun til að ná bata. Ég lít svo á að hann hafi nú loks­ins fundið frið­inn og hvíld­ina sem hann leit­aði svo lengi að,“ segir Guðrún.

Fráfall Hall­gríms verður ein­ungis sorg­legra þegar við­tal við hann frá árinu 2004 er lesið. Það birt­ist í Bæjarins besta  en þar var honum lýst sem úti­bús­stjóra Tón­list­ar­skóla Ísa­fjarðar í Súðavík, grunn­skóla­kenn­ara og hlaupa­gikk sem ánetj­að­ist lækna­dópi í kjöl­far bílslyss. Þar kemur fram að hann lenti í bílslys­inu ein­ungis tví­tugur að aldri. Meiðsli hans voru talin lít­ils háttar við fyrstu sýn en áverkar á háls og hrygg drógu dilk á eftir sér. Þau urðu til þess að Hall­grímur ánetj­að­ist verka­lyfjum.

Í greinni segir: „Í sex ár barð­ist hann við lyfjafíkn­ina án þess að gera sér grein fyrir skað­anum sem hann olli sjálfum sér og ást­vinum sínum. Hann náði sér á strik og hófst þá ný bar­átta. Óöruggur en með von í hjarta fór hann út í sam­fé­lagið á ný. Hann hóf störf í Öldusels­skóla og undi sér vel í kenn­ara­starf­inu en lík­am­inn var illa á sig kom­inn af ára­langri lyfja­notkun, hreyf­ing­ar­leysi og ofáti. Hall­grímur Sveinn fór þá að hlaupa og ári seinna lauk hann Reykja­vík­ur­mara­þoni.“

Hall­grímur lýsti tím­anum eftir slysið sem algjörri eymd. „Sá tími frá því að slysið varð 25. októ­ber 1995 og fram til 10. októ­ber 2001 þegar ég sný við blað­inu mætti í heild­ina draga saman í eitt orð: Eymd. Frá því að vera lítil eymd til algjörrar eymdar og von­leysis. Einn dag átta ég mig svo á því að ég er að dauða kom­inn – félags­lega, and­lega og einnig lík­am­lega. Ég var illa á mig kom­inn og fitn­aði hratt. Fannst allir hafa snúið við mér bak­inu en í raun var það ég sem skreið í burtu, eins langt út í horn og ég gat. Ég svaf ekki vegna martraða og verkja,“ sagði Hall­grímur.

Hall­grímur seg­ist hafa verið orð­inn dóp­ist sem braut þó ekki lög. „Ég var í dag­legri neyslu og orð­inn dópisti þó ég hefði lyf­seðil fyrir lyfj­unum. Ég var orð­inn mor­fín­sjúk­lingur og þreifst á mor­fín­skyldum lyfjum og svefn­lyfjum til að lina þján­ing­arnar og í raun til að deyfa mig frá umhverf­inu. Ég gat ekki horfst í augu við sjálfan mig eins og ég var orð­inn. Ég þekkti ekki lengur sjálfan mig, hvorki í útliti né atferli. Þarna var ég byrj­aður að gera mér grein fyrir stöðu minni. Eymdin var alger,“ sagði Hall­grímur.

Hall­grímur lætur eftir sig unga dóttur sem er rétt ríf­lega tví­tug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina