Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Ármann vill grafa upp óþekkta sjómanninn: „Var líkið Geirfinnur?“

Jón Ármann vill grafa upp óþekkta sjómanninn: „Var líkið Geirfinnur?“

Jón Ármann Steins­son skrifar áhuga­verðan pistil sem birt­ist á Vísi þar sem hann kallar eftir því að minn­is­varði helg­aður „Óþekkta sjó­mann­inum“ verði graf­inn upp og bor­inn verði kennsl á líkið sem þar var jarðað.  Hann fer yfir sögu minn­is­varð­ans í pistl­inum:

„Á vor­mán­uðum 1980 var Hásteinn ÁR-8 á humar­veiðum suð-austur af Vest­manna­eyjum. Það var rjóma­logn og sléttur sjór þegar skip­verjar drógu inn trollið og tæmdu pok­ann á dekkið. Innan um hum­ar­inn sást glitta í tvö vað­stíg­vél, og þegar betur var að gáð neðri helm­ing af manns­lík­ama klæddan í galla­buxur með leð­ur­belti um mittið. Nálykt fyllti lognið og skip­verjar brugðu á það ráð að setja líkið í tunnu með loki. Þá var haldið til hafnar í Eyjum þar sem lög­reglan beið á kæj­anum.“

Hann segir lög­regl­una ekki hafa rann­sakað þetta nægi­lega vel. „Hér gæti frá­sögnin endað ef ekki væri fyrir það að einskiss manns var saknað og engin til­raun var gerð, hvorki fyrr né síðar, til að finna út hver þessi óþekkti sjó­maður væri. Af því beltið var með silf­ur­sylgju gat lög­reglan sér til að hér væri um útlend­ing að ræða. Þá var ómögu­legt að segja til um hversu lengi útlend­ing­ur­inn hafði hvílt í sjó. Þar með end­aði lög­reglu­rann­sóknin,“ segr Jón og heldur áfram:

„Víkur nú sög­unni til Vest­manna­eyja þann 20 nóv­em­ber 1974. Þrír menn komu til eyja, og tveir þeirra fóru þaðan aftur, og eftir það spurð­ist ekk­ert til hins þriðja. Já, þetta hljómar eins og saga um ekki neitt, en engu að síður varð þessi heim­sókn til þess að end­ur­upp­taka Geir­finns­máls­ins tók vink­il­beygju árið 2016. Lög­reglan yfir­heyrði menn­ina tvo og fyrrum lags­konu ann­ars þeirra en ekk­ert kom út úr því. Svo var pælt í hvort og hvernig Geir­finnur gæti hafa komið til Eyja dag­inn eftir að hann hvarf í Keflavík, og ef þriðji mað­ur­inn var ekki sjálfur Geir­finnur, hver var hann þá, og hvað varð svo um þriðja mann­inn?“

Hann veltir því fyrir sér hvort líkið sé jafn­vel Geir­finns. „Gróu­sög­urnar logn­uð­ust brátt útaf enda engin svör. Í milli­tíð­inni finnst sjó­rekið lík árið 1980 sem eng­inn veit deili á en engin gróu­saga verður til úr því hrá­efni; Var líkið Geir­finnur? Var þarna fram kom­inn þriðji mað­ur­inn? Eða bara ein­hver óþekktur útlendur sjó­maður? Í algjöru upp­lýs­ingatómi um þennan meinta óþekkta sjó­mann tók stýri­maður Hásteins sig til og hóf fjár­söfnun. Sá var frá Stokks­eyri og bar sterkar taugar til kirkj­unnar á staðnum. Taldi hann pláss­inu til bóta ef líkið yrði jarðað þar og reistur minn­is­varði helg­aður „Óþekkta sjó­mann­inum“. Fjár­söfn­unin gekk vonum framar og minn­is­varð­inn er Stokks­eyr­ingum og kirkju­garð­inum til sóma,“ segir Jón.

Hann bendir á að DNA-rann­sóknir gætu hæg­lega upp­lýst málið. „Eftir jarð­setn­ingu með við­höfn virð­ast allir hafa sætt sig við að um væri að ræða „var­an­lega óþekktan sjó­mann“ og algjör óþarfi að finna út hver hann væri. Skítt með til­komu DNA sem gæti sýnt ætt­ar­tré í báða ætt­liði um aldir og jafn­vel birt nafn hans í leit­ar­nið­ur­stöðum á net­inu. Þá er eflaust ein­hvers­staðar fjöl­skylda sem veltir því fyrir sér hvað varð um þennan horfna ætt­ingja sinn. Kannski er það fólk í útlöndum, eða fólk hér heima á Íslandi? Hver veit?,“ spyr Jón.

Hann von­ast til þess að skrif sín veki athygli hjá kennsla­nefnd. „Þá er komið að lausn gát­unnar, eða í það minnsta for­mál­anum að lausn­inni. Á ryk­fall­inni skrif­stofu inni í íslenska rík­is­bákn­inu situr emb­ætt­is­maður og les vef­blöðin, þessa sömu grein og þú ert að lesa núna hér á Vísi. Þessi emb­ætt­is­maður er sam­visku­samur með afbrigðum og bein­tengdur hinni stór­merki­legu Kennsla­nefnd. Nefndin sú hefur ekki mikið fyrir stafni dags dag­lega og virð­ist ekki knúin af frum­kvæð­is­áráttu heldur bíður skip­ana að ofan. En þessi emb­ætt­is­maður okkar hefur bæði fag­legan metnað og auk þess per­sónu­legan áhuga á Geir­finns­mál­inu. Hann tekur snar­lega upp sím­ann, hringir í for­mann nefnd­ar­innar…

…og ef sá hinn sami svarar kall­inu þá kemur kannski ný for­síðu­frétt hér á vefnum síðar meir: Týndi sjó­mað­ur­inn er fund­inn! Og nafnið hans og ævi­á­grip fylgir, einnig við­brögð ætt­ingja og þakk­læti þeirra til Kennsla­nefndar eftir ára­tuga vanga­veltur. En því miður er hæpið að þetta verði for­síðu­frétt um að Geir­finnur sé loks fund­inn í ómerktri gröf á Stokks­eyri, þökk sé Kennsla­nefnd.

En allt eru þetta inn­an­tómar spek­úla­sjónir nema for­maður Kennsla­nefndar svari sím­anum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina