„Dómsmálaráðherra tekur sig til á aðfangadag og hringir í lögreglustjóra á höfuðborgarsvæði vegna upplýsingagjafar lögreglu um partýstand og mögulegt brot fjármálaráðherra og formanns flokks dómsmálaráðherra á sóttvarnarreglum kvöldið áður.“
Þetta segir Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, eftir að RÚV greindi frá að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, hringdi tvisvar í Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, á aðfangadag. Það gerði Áslaug eftir að fjölmiðlar greindu frá sóttvarnarbroti Bjarna Benediktssonar í Ásmundarsal.
Áslaug neitar að hafa verið að skipta sér að rannsókn málsins og aðeins verið að forvitnast um upplýsingagjöf lögreglu. Gríðarlegur titringur var innan stjórnkerfisins vegna þess að ráðherra hefði verið ölvaður í ólöglegu partýi í Ásmundarsal. Þá var gefin út fréttatilkynning að samferðafólk hans hefði verið með dólgshátt við lögreglu og sakað um rasisma. Í salnum voru um 40 til 50 manns.
Áslaug Arna og Halla Bergþóra hafa staðfest að hafa rætt um málið á aðfangadag. Áslaug Arna var spurð hvort hún hefði rætt um önnur mál sem eru til rannsóknar hjá lögreglu eða hvort þetta væri einsdmæmi, svaraði Áslaug:
„Ég er æðsti yfirmaður lögreglunnar í landinu og því kemur það oft í minn hlut að svara spurningum sem varða störf hennar. Mér þykir mikilvægt að vera vel upplýst og í góðu sambandi við lögreglustjóra til að geta svarað fyrirspurnum frá almenningi og fjölmiðlum. Fyrir utan þessi samtöl sem ég átti vegna spurninga um verklag og upplýsingagjöf hef ég ekki rætt þetta mál við lögreglustjórann og ekki haft afskipti af rannsókn þessa máls eða annarra.“
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sviðsstjóri ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við RÚV:
„Rætt hefur verið við þá starfsmenn sem koma að gerð dagbókarfærslna og áréttað þær reglur sem í gildi eru varðandi fjölmiðlasamskipti með það að markmiði að tryggja að persónugreinanlegar upplýsingar fari ekki frá embættinu.“
Helga Vala Helgadóttir gagnrýnir eins og áður segir harðlega að símtölin hafi átt sér stað. Hún spyr:
„Hefur þetta fólk ekki nokkurn einasta sans fyrir valdmörkum sínum og hvað er við hæfi?“































Athugasemdir