Alls greindust 21 kórónuveirusmit í gær, þar af 16 innanlands. Þetta segir Már Kristjánsson yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans í samtali við RÚV í dag. Þar af voru 11 börn og eru þau öll í Lauganesskóla. Tíu þeirra voru utan sóttkvíar.
Samkvæmt Má geta þessar tölur hugsanlega breyst í dag.
Ekki hefur enn tekist að rekja rót allra smitanna.
Hvort ný bylgja sé í uppsiglingu er ekki víst, en staðan er ekki góð segir Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi almannavarna við mbl.is í dag. Því eru nú stíf fundarhöld hjá teymi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og embættis landlæknis.
Boðað hafði verið til upplýsingafundar klukkan 11:00 í dag, en hætt var við hann. Ekki er vitað hví hætt var við fundinn.
Möguleiki er á að grípa þurfi til hertra sóttvarnaraðgerða ef útbreiðsla faraldursins heldur áfram, að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis.































Athugasemdir