Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stærsta lyfjatilraun í sögu mannkyns segir Guðrún – 31 ástæða fyrir því að láta ekki bólusetja sig

Stærsta lyfjatilraun í sögu mannkyns segir Guðrún – 31 ástæða fyrir því að láta ekki bólusetja sig
Guðrún Bergmann.

Heilsu­ráð­gjaf­inn Guðrún Bergmann skrifar um það á vef­síðu sinni hvernig hörðum aðgerðum sé beitt við að bólu­setja sem flesta í Ísrael. Þar segir hún líka að for­sæt­is­ráð­herra lands­ins hafi gert samn­ing við Pfizer um að gera mætti til­raunir með bólu­efnið á þjóð hans og segir hún að það hafi einnig átt að gera á Íslandi.

Guðrún segir að í Ísrael sé komin aðskiln­að­ar­stefna sem veiti þeim sem hafi verið bólu­settir fríð­indi og frelsi, en úti­loki hina.

Guðrún vitnar í 31 ástæðu fyrir því að rabbín­inn Chananya Weissman vilji ekki láta bólu­setja sig og segir hún margt á lista hans vera ger­ast hér á Íslandi og því geti allt eins verið að stjórn­völd hér á landi séu að íhuga slíka aðskiln­að­ar­stefnu.
Guðrún segir því mik­il­vægt að kynna sér hvað liggi að baki henni til að geta spyrnt við fótum og listar því næst ástæður Weissman.

Hér að neðan má lesa nokkrar þeirra:

1. Þetta er ekki bólu­efni. Bóluefni, sam­kvæmt skil­grein­ingu, veitir ónæmi gegn sjúk­dómum. Þetta veitir ekki ónæmi gegn neinu. Í besta falli dregur það úr hættu á alvar­legum veik­indum ef þú smit­ast. Þess vegna er þetta lyfja­með­ferð, ekki bólu­efni. Ég hef ekki áhuga á lyfja­með­ferð við veik­indum sem ég þjá­ist ekki af.

2. Lyfja­fyr­ir­tækin, stjórn­mála­menn, heil­brigð­is­kerfið og fjöl­miðlar hafa sam­ein­ast um það um allan heim að kalla þetta bólu­efni, þegar það er það ekki – í þeim ásetn­ingi að beita fólk brögðum til að því finn­ist öruggt að und­ir­gang­ast lyfja­með­ferð­ina. Þar sem þeir eru fláráðir, treysti ég þeim ekki og hef engan áhuga á lyfja­með­ferð þeirra.  

12. KERFIÐ hefur verið alger­lega ein­hliða í því að fagna þess­ari með­ferð. Stjórn­mála­menn og fjöl­miðlar hvetja fólk til að þiggja hana, bæði af sið­ferð­is­legri og borg­ara­legri skyldu. Ávinn­ing­ur­inn af með­ferð­inni er mjög ýktur, horft er fram hjá áhætt­unni og öllu hinu óþekkta ýtt til hliðar. Þar sem þessir aðilar eru bæði fláráðir og stjórn­samir, mun ég ekki leggja per­sónu­lega heilsu mína undir ráð­vendni þeirra.

13. Það er gíf­ur­leg áróð­urs­her­ferð í gangi til að fá fólk til að þiggja þessa með­ferð. Stjórn­mála­menn og frægt fólk tekur „sel­fies“ af sér þegar verið er að sprauta þau (kannski eru þau í sumum til­vikum bara að þykj­ast vera sprautuð), fjöl­miðl­arnir magna þetta upp sem svalasta, flottasta og skemmti­leg­asta hlut sem hægt er að gera. Þetta er útbreiddasta mark­aðs­her­ferð í sög­unni. Slíkt er alls ekki við­eig­andi fyrir lyfja­með­ferð, hvað þá alger­lega nýja með­ferð og það fyllir mig hryll­ingi.

16. Þetta er stærsta lyfja­til­raun í sögu mann­kyns.

23. KERFIÐ hefur fengið til liðs við sig lækna, rabbína, fjöl­miðla og almenn­ing, til að úthúða og hella sér yfir þá sem ekki vilja láta sprauta sig með þessu nýja lyfi… Þeir segja að ef við sam­þykkjum ekki að láta sprauta okkur, verði okkur þröngvað til að halda okkur innan veggja heim­il­is­ins það sem eftir er og að okkur verði úthýst úr sam­fé­lag­inu.

26. Stað­reyndin er sú að hryll­ings­sög­urnar vegna þessa undra­lyfs streyma þegar inn, en stjórn­mála­menn hafa engar áhyggjur af slíku, heil­brigð­is­KERFIÐ ýtir þeim til hliðar sem ótengdum og smá­vægi­legum, fjöl­miðl­arnir minn­ast ekki á þær, lyfja­fyr­ir­tækin halda áfram á fullri ferð og þeir sem halda uppi rauðum fána við­vör­unar eru áfram lagðir í ein­elti, rit­skoð­aðir og þeim refsað. Af þessu er ljóst að vel­ferð mín er þeim ekki efst í huga. Ég ætla ekki að vera næsta til­rauna­dýr í til­rauna­stofu þeirra. Ég hef ekki áhuga á að verða næsta „til­felli“.

30. Ég sé allar lygarnar, spill­ing­una, áróð­ur­inn, bak­tjalda­makkið, rit­skoð­un­ina, ein­eltið, brotin á heil­brigð­is­sið­fræði, skort á heil­indum í vís­inda­ferl­inu, nið­ur­bæl­ingu óþægi­legra auka­verk­ana, frá­vísun lög­mætra áhyggju­efna, múgæs­ing­inn, sér­trú­ar­hegð­un­ina, fáfræð­ina, þröng­sýn­ina, ótt­ann, lækn­is­fræði­legu og stjórn­mála­legu harð­stjórn­ina, leyni­lega samn­inga og stefnu­mál,

31. Það er skíta­lykt af þessu öllu saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina