Íbúi á Selfossi, Ramunas nokkur, segir að sonur sinn hafi rétt sloppið úr klóm perverts. Sá mun hafa reynt að tæla drenginn með gömlu bragði, bjóða honum nammi. Innan hóps íbúa á Selfossi skrifar hann:
„Góðan dag, langar að vara ykkur við einu. Strákurinn minn var að leika sér hjá Sunnulækjarskóla í gær og þá kom maður að honum og spurði hvort hann væri einn, strákurinn minn laug og sagði að pabbi væri rétt ókominn. Svo bauð maðurinn stráknum mínum nammi. Strákurinn forðaði sér í burtu þá. Sagði að þessi maður hafi líklegast verið á gráum Toyota.“
Lögreglan er sögð vita af þessu en íbúar eru þó uggandi. „Passið ykkur elsku börn,“ skrifar ein kona meðan aðrir þakka kærlega fyrir upplýsingarnar. „Takk fyrir að upplýsa okkur – aldrei er góð vísa of oft kveðin!,“ skrifar einn frá Selfossi.































Athugasemdir