Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hetjudáð Guðlaugs sem barðist berfættur og blóðugur: „Eitthvað hræðilegt hafði komið fyrir“

Hetjudáð Guðlaugs sem barðist berfættur og blóðugur: „Eitthvað hræðilegt hafði komið fyrir“

Árið 1984 fram­kvæmdi ungur maður það ein­staka þrek­virki að synda sex kíló­metra í köldum sjó og dimmri nótt­inni frá sökkvandi skipi undan strönd Heima­eyjar. Hann náði að synda í land og ganga befættur yfir úfið hraun til byggða. Föt hans frusu og honum blæddi. Hann var þjak­aður af þorsta en samt sem áður náði Guð­laugur Frið­þórs­son til byggða. Hann var fimm klukku­stundir á sundi í ísköldum sjónum og aðrar þrjár að kom­ast yfir hraunið.

Guð­laugur Frið­þórs­son var 22 ára gam­all stýri­maður á Hellisey VE 503 sem fórst að kvöldi sunnu­dags­ins 11. mars árið 1984 undir mið­nætti.  Með honum um borð voru: Hjörtur R. Jónsson skip­stjóri, 25 ára, Pétur Sig­urðs­son, 1. vél­stjóri, 21 árs, Eng­il­bert Eiðsson, 2. vél­stjóri, 19 ára, og Valur Smári Geirsson mat­sveinn, 26 ára. Þeir fór­ust allir.

Báðu Faðirvorið saman

Guð­laugur var sof­andi neðan þilja þegar Valur Smári mat­sveinn vakti hann og sagði að trollið væri fast í botni. Þegar Guð­laugur kom á þil­far stóð strekktur tog­vír­inn beint niður svo sjór rann inn fyrir lunn­ing­una. Skyndi­lega hvolfdi bátnum, senni­lega á ein­ungis 4 til 5 sek­úndum.

Skip­verjarnir lentu allir í sjónum. Guðlaugi tókst að kom­ast á kjöl báts­ins ásamt þeim Hirti og Pétri og töl­uðu þeir vinir saman, báðu Faðir vor, og reyndu að hug­hreysta hver annan. Félög­unum var ljóst að eng­inn kæmi þeim til bjargar. Þeir freist­uðu þess að ná til gúmm­björg­un­ar­báts­ins, sem var á nokkra metra dýpi. Það reynd­ist ókleift. Skipið var ekki búið sjálf­virkum sleppi­bún­aði, en staðið hafði til að setja hann í bát­inn um næstu páska. „Við ákváðum þarna saman þrír á kili að ef svo ótrú­lega vildi til að ein­hver okkar lifði af, þá skyldum við láta það koma fram að það eina sem hefði getað bjargað okkur væri sjálf­virkur sjó­sleppi­bún­aður Sigmunds,“ sagði Guð­laugur síðar í við­tali við Árna Johnsen.

Skipið sökk stöðugt dýpra. Þre­menn­ing­arnir þjöpp­uðu sér saman á kil­inum.

Og svo bara þögnin

„Allt í einu reis bát­ur­inn nær lóð­rétt. Við báðum þá saman og töl­uðum hug­hreystandi hver við annan.“ Það hafði ekki hvarflað að Guðlaugi að reyna að synda til lands. „En þegar Hjörtur sagð­ist ætla að freista þess, sagð­ist ég einnig ætla að gera það. Skyndi­lega datt bát­ur­inn undan okkur og við vorum aftur í sjónum.“

Vita­ljósið á Stór­höfða var leið­ar­ljósið þar sem þeir lögðu til sunds. Guð­laugur sagði að fljót­lega hefðu þeir Hjörtur verið einir og kall­ast á.

„Síðan hætti ég að fá svar“

Guð­laugur skor­að­ist aldrei undan því að ræða atburði þess­arar nætur og gerði það af miklu æðru­leysi þrátt fyrir að finn­ast erfitt að vera í sviðs­ljós­inu. Hann greindi frá því í við­tölum að hann hefði reynt að halda hugs­unum sínum stöðugt gang­andi á þessu langa, kalda og erf­iða sundi. Verst þótti honum að deyja frá ógreiddum smá­skuldum hér og þar. Lífs­hlaupið rann hjá eins og í kvik­mynd. Hann tal­aði við múkk­ana sem fylgd­ust með honum á sund­inu og reyndi að blístra. Hann hugs­aði til nýja mótó­hjóls­ins sem hann hafði pantað sér Bret­landi en ekki sótt enn. Hann sagði sjálfum sér brand­ara og velti vöngum af hverju hann hefði aldrei farið til New York eins og þeir félag­arnar höfðu planað.

Vonin vaknar

Þrátt fyrir hásk­ann fann Guð­laugur ekki til ótta. Kuldinn leit­aði á, stundum barði hann saman fót­unum til þess að finna fyrir þeim. Þegar um þriðj­ungur leið­ar­innar var að baki sá hann bát nálg­ast og vakti það von um björgun. Báturinn sigldi hjá í um 100 metra fjar­lægð og Guð­laugur seg­ist hafa hrópað af öllum lífs og sálar kröftum og buslað til að vekja athygli á sér. En allt kom fyrir ekki og bát­ur­inn sigldi sína leið.

„Þá greip mig svo­lítið von­leysi, þegar ég sá á eftir bátnum, en svo sá ég að úr því að hjálpin bær­ist ekki yrði ég að bjarga mér sjálfur og við það styrkt­ist ég aftur og tók stefn­una á Heimaey sem grillti í langt fjarri í myrkr­inu,“ sagði Guð­laugur síðar í sam­tali við Árna Johnsen.

Landi náð

Loksins náði Guð­laugur inn að brim­garð­inum við hamra Heima­eyjar. Hann náði taki á kletti og kastaði alda honum í urð­ina. „Þar komst ég upp á syllu, sem ég skreið upp á, því ég gat ekki staðið. Ég hugs­aði með mér að ég væri með sjó­riðu og fannst það skammar­legt af sjó­manni að vera. Ég gerði mér ekki grein fyrir því að lapp­irnar voru búnar, en síðan komst ég, milli laga, fyrir bergsnös í fjör­unni og upp á þurrt, loks­ins.”

Það var freist­andi fyrir Guðlaug að leggja sig en hann vissi að hann myndi ekki vakna aftur. Hann varð að halda áfram. „Ég taldi mér borgið þegar ég var kom­inn á land, en samt var það ef til vill erf­ið­ara að fara land­leið­ina um hraunið en sjó­leið­ina, ber­fættur og svo dof­inn að maður fann ekki fyrir sjálfum sér þótt maður klipi sig.“

Á miðri leið rakst Guð­laugur á baðkar sem notað var til að brynna fé og náði að brjóta þuml­ungs­þukkan ís ofan af því svo hann gæti svolgrað í sig vatnið. „Það hressti mig mikið, en samt var ég svo móður og þungur á göng­unni að ég geri mér varla grein fyrir hvernig ég lið­að­ist upp hlíð­ina og yfir hraunið.”

„Þegar ég komst upp á milli Fellanna og ljósin í bænum blöstu við, leit ég ein­hverja stór­kost­leg­ustu sýn í lífi mínu og mér óx ásmegin og greikk­aði sporið að fyrsta hús­inu sem ljós var í.“

Heimkoman

Guð­laugur bank­aði upp á í Suð­ur­gerði 2 um kl. 6.55 að morgni mánu­dags­ins 12. mars. Þar kom til dyra Freyr Atlason, þá 17 ára. „Hringdu á sjúkra­bíl,“ var það fyrsta sem Guð­laugur stundi upp. Freyr bauð honum inn og sá að Guð­laugur var ekki ein­ungis illa klæddur í frost­inu, heldur renn­blautur, ber­fættur og blóð­ugur á fót­unum. Freyr vakti föður sinn, Atla Elíasson, sem kom fram. Atli sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið á sínum tíma að blóðið hefði lagað úr fótum Guðlaugs og sporin sést eftir gang­stétt­inni upp að hús­inu. Feðgarnir komu Guðlaugi í stól, breiddu yfir hann sæng og hringdu á lög­regl­una. „Hann nefndi bátsnöfn, Hellisey, manna­nöfn og sagði „synti, synti“. Það fór ekk­ert á milli mála að eitt­hvað hræði­legt hafði komið fyrir,“ sagði Atli.

Guð­laugur var fluttur á Sjúkra­hús Vest­manna­eyja til aðhlynn­ingar og björg­un­ar­lið var kallað út. Bátar og skip fóru til leitar á slys­staðnum og björg­un­ar­menn gengu fjörur. Brak fannst á reki og olíu­flekkur sýndi hvar bát­ur­inn hafði farið niður. Enginn skip­verj­anna fjög­urra, sem fór­ust, fannst.

„Ég gleymi þessu aldrei. En þótt ég bjarg­að­ist þá var þetta mik­ill harm­leikur, sem mér finnst stundum gleym­ast,“ sagði Guð­laugur síðar.

„Þrátt fyrir að ég ynni þetta afrek, sem svo er kallað, þá dóu þarna fjórir ungir menn í blóma lífsins.“

Þrátt fyrir harm­leik­inn fór Guð­laugur síðar aftur á sjó árið 1987 í rúman ára­tug og starf­aði síðar meðal ann­ars sem vél­stjóri og sat í bæj­ar­stjórn Vest­manna­eyja.

Árið 2012 gerði Baltasar Kormákur kvik­mynd­ina Djúpið sem byggð er á þessum atburðum og ár hvert fer fram Guð­laugs­sund í sund­laug Vest­manna­eyja til að minn­ast þess­arar hetju­dáðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina