Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ari myrti tvö börn: „Mun alltaf þurfa að lifa með því sem ég gerði“

Ari myrti tvö börn: „Mun alltaf þurfa að lifa með því sem ég gerði“

Á sum­ar­mán­uðum árið 1989 lést sjö ára drengur, Bjarmar Smári Elíasson, þegar hann drukkn­aði í Glerá. Var talið að um slys væri að ræða. Tæpu ári síðar drukkn­aði annar sjö ára drengur, Hartmann Her­manns­son einnig í Glerá. „Ég kastaði upp, mér brá svo mikið. Þá vissi ég að Bjarmar hefði verið drep­inn. Þetta gat ekki verið til­viljun,“ sagði Bjarn­heiður Ragn­ars­dóttir, móðir Bjarmars síðar.

Lög­reglan hóf fljót­lega rann­sókn og kom í ljós að ger­and­inn var einnig barn að aldri, aðeins ell­efu ára gam­all. Hann hafði drekkt drengj­unum. Hann heitir Ari.

Morðin á Bjarmari og Hart­manni eru ein­hverjir þeir sorg­leg­ustu og óhugn­an­leg­ustu atburðir sem átt hafa sér stað á Íslandi í seinni tíð. Ekki var fjallað mikið um þessa atburði á sínum tíma, svo skelfi­legir þóttu þeir.

Ratleikur sem leiddi til dauða

Bjarmar fékk leyfi hjá móður sinni til að hjóla niður að Glerá ásamt tveimur eldri drengjum. Taldi móðir hans það vera öruggt þar sem eldri drengirnir myndu hafa auga á Bjarmari. Hún sá dreng­inn sinn aldrei á lífi aftur. Sagan end­ur­tók sig tæpu ári síðar. Sólveig Aust­fjörð Braga­dóttir fékk sím­tal frá skól­anum. Hartmann, sjö ára sonur hennar, var týndur. Hún hóf strax leit en hann var hvergi að finna. Hann fannst drukkn­aður í Glerá.

Lát Harmanns þótti grund­sam­legt og hóf lög­regla rann­sókn á báðum dauðs­föllum. Það þótti vart geta verið til­viljun að sami dreng­ur­inn, Ari, hefði tvisvar orðið vitni að drukknun smá­drengja af hreinni slysni. Ari var yfir­heyrður og við­ur­kenndi að bera ábyrgð á dauða Bjarmars og Hart­manns. Hafði hann búið til rat­leik sem mið­aði að því að koma drengj­unum niður að ánni.

Enginn trúði Braga

Það sem sár­ast þótti var að ef til vill hefði verið unnt að koma í veg fyrir seinna morðið þar sem Bragi Bragason, skóla­fé­lagi Ara, sagði lög­reglu á sínum tíma að Ari hefði trúað honum fyrir því að hann hefði kastað dreng í Glerá. Bragi var hins stimpl­aður vand­ræða­piltur og tóku yfir­völd ekki mark á honum. „Það var bara hlegið að mér, ekki tekið mark á neinu sem ég sagði,” sagði Bragi síðar.

Fjöl­skyldur Bjarmars og Hart­manns gengu í gegnum skelfi­lega tíma í kjöl­farið. Engin var áfalla­hjálpin eða sál­fræði­að­stoðin á þessum tíma né var um fjár­hags­að­stoð að ræða. Sólveig, móðir Hart­manns rifj­aði það síðar upp að hún hefði þurft að jarð­setja sjö ára gam­alt barn sitt án nokk­urrar aðstoðar frá hinu opin­bera. Bjarn­heiður, móðir Bjarmars, var ekkja með einn annan dreng sem tók frá­fall bróður síns afar nærri sér. Líf fjöl­skyldn­anna var markað af sorg­inni og töldu þær að mun meiri áhersla hefði verið lögð á að vernda ger­and­ann en fjöl­skyldur fórn­ar­lambanna.

Skelfieg barnæska

Það kom í ljós að Ari hafði átt skelfi­lega barn­æsku, fulla af lík­am­legu, and­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Mis­notk­unin og ofbeldið hófst áður en Ari varð sjö ára. Eitt skiptið fanns hann að næt­ur­lagi, fáklæddur og ráf­andi, tals­vert fjarri heim­ili sínu. Aðspurður í við­tali mörgum árum síðar hvernig hafi staðið á því svar­aði hann: „Ég hafði ekki kjark í mér til að fara heim af ótta við bar­smíðar.“ Ástandið á heim­ili fjöl­skyld­unnar var á margra vit­orði en yfir­völd brugð­ust ekki við. Hann var aldrei fjar­lægður af heim­il­inu.

Áður hafði ofbeld­is­hneigð hans gagn­vart öðrum börnum ratað inn á borð lög­reglu og Félags­mála­stofn­unar. Ekki þótti ástæða til að grípa í taumana.

Kerfið var illa í stakk búið til að taka á móti Ara eftir morðin. Ekkert þessu líkt hafði nokkurn tíma koma komið inn á borð. Hann var sendur til Reykja­víkur og vistaður á barna­geð­deild Land­spít­al­ans á Dalbraut í tvö og hálft ár. Hann líkti vist­inni á Dalbraut við fang­elsi. Eftir það var honum komið fyrir á nýstofn­uðu vist­heim­ili, Árbót í Aðaldal, skammt frá Húsavík. Heim­il­inu var sér­stak­lega komið á fót til að vista Ara. Var heim­ilið nokkuð ein­angrað en þrír kíló­metrar voru til næsta bæjar. Þar dvaldi hann til 18 ára ald­urs. Að því loknu fór hann aftur út í sam­fé­lagið. Það var mæðr­unum erfitt, ekki síst að sjá hann í vin­sælum íslenskum stefnu­móta­þætti nokkrum árum síðar.

„Ég drap tvö börn“

„Að hafa tvö líf á sam­visk­unni er mjög erfitt. Það er ekki hægt að lýsa því. Hver sem er náinn mér eða í nánu sam­bandi við mig þarf að vita sögu mína. Þú getur ímyndað þér hvernig það er fyrir mig að segja fólki sem ég elska að ég hafi drepið börn.“

Í við­tal­inu við Pressuna árið 2015 sagð­ist Ari ekki hafa brotið af sér eftir að hann hélt út í lífið að nýju en for­tíðin fylgir honum hvert skref. Hann flutti til Banda­ríkj­anna í kringum árið 2002. Frá árinu 2008 til 2014 stund­aði hann nám sem mið­aði að því að aðstoða fólk sem hefur lent í ýmsum áföllum í líf­inu, meðal ann­ars heim­ilis- og kyn­ferð­is­of­beldi. Sagði hann námið hafa hjálpað honum að takast á við for­tíð sína.

„Reyni að fyrirgefa sjálfum mér“

„Ég hugsa mjög oft til drengj­anna og þess sem ég gerði. Í hvert sinn sem ég les um eða heyri í fréttum að barn hafi lát­ist fæ ég sting í mag­ann,“ sagði Ari og bætti við: „Ég hugsa um þá í hvert skipti sem ein­hver talar um móð­ur­ást. Það versta sem getur gerst í líf­inu er að missa barn, og þegar ég heyri af dauðs­föllum, þá kemur þessi sára minn­ing upp í hug­ann. Þetta ger­ist nán­ast hvern ein­asta dag. Oft vildi ég að for­eldr­arnir og fjöl­skyld­urnar fyr­ir­gæfu mér og ég gæti fundið leið til að fyr­ir­gefa sjálfum mér. En hvernig get ég ætl­ast til þess þegar ég get ekki ímyndað mér þann sárs­auka sem ég olli þeim. Ég hugsa stundum hvort ég muni eign­ast börn, en partur af mér er hræddur við að ég verði fyrir sömu lífs­reynslu.“

„Mér finnst ég eiga skilið að upplifa sömu sorg, þess vegna vil ég ekki eiga börn

Ég vona að sá tími komi að allir þeir sem ég olli sárs­auka fyr­ir­gefi mér. Og að sá dagur renni upp að mér tak­ist að fyr­ir­gefa sjálfum mér,“ sagði Ari og bætti við: „Ég mun alltaf þurfa að lifa með því sem ég gerði. Það er mín refs­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina