Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hallur missti 100 kíló: „Hún vildi ekki sjá mig bara drepa mig“

Hallur missti 100 kíló: „Hún vildi ekki sjá mig bara drepa mig“

„Ég var til­bú­inn að drep­ast étandi snakkið mitt, það var í raun­inni ekki fyrr en mamma var skælandi yfir mér,“ segir Hallur Örn Guð­jóns­son í hlað­varps­þætt­inum 10 bestu með Ásgeiri Ólafs. En Hallur var orð­inn 200 kíló þegar móðir hans grát­bað hann um að taka sig á.

Hallur Örn

Hallur Örn er 37 ára gam­all, fæddur og upp­al­inn á Akureyri: „Ætli flestir þekki mig ekki sem feita rusla­karl­inn sinn hérna á Akureyri, en síðan fór ég og reyndi fyrir mér í ein­hverri frægð fyrir sunnan, í ein­hverjum þáttum, keppn­inni Leitin að Strák­unum,“ segir Hallur.
Það voru þeir Auðunn Blöndal, Pétur Jóhann Sig­fús­son og Sverrir Þór Sverr­is­son eða Sveppi, eins og flestir þekkja hann, sem stýrðu þátt­unum, Leitin að Strák­unum, sem Hallur sigr­aði árið 2007.
Markmið þátt­ar­ins var að upp­götva næstu sjón­varps­stjörnu Íslands. Aðspurður hvernig hafi gengið segir Hallur: „Ég meina ég vann, þannig það gekk vel. En síðan fór þetta bara eitt­hvað út í busk­ann og varð ekk­ert úr þessu í raun­inni þannig ég er svona milli þess að vera þarna „never was“ og „has been,“ ein­hvers staðar fastur í lim­bói þar á milli,“ segir hann kím­inn.

Í við­tal­inu segir Hallur frá örlaga­ríku sam­tali við móður sína sem ger­breytti lífi hans.

„Ég hef alltaf vitað að ég væri feitur og að þetta væri slæmt og ég myndi deyja yngri og allt þetta. En ég var meira kom­inn á þannig stað, mér er skít­sama, það er bara þannig,“ segir Hallur.
Eftir sam­tal við móður sína ákvað hann hins vega að snúa við blað­inu: „Hún mamma mín sett­ist niður fyrir framan mig og var bara grát­andi að biðja mig um að gera eitt­hvað í mínum málum því ég var orð­inn 200 kíló. Hún vildi ekki sjá mig bara drepa mig.
Ég reifst við hana eins og algjör skít­hæll, ég var bara skít­hæll við mömmu mína sem hafði ekki gert neitt af sér nema þykja vænt um mig. En stuttu seinna sá ég að mér og bara ákvað að prufa það. Prufa þetta ketó matar­æði.“

„Ég get ekki lengur klætt mig í sokka, get ekki reimað skóna mína“

Nú tæpum tveimur árum síðar er Hallur 100 kílóum létt­ari og hefur ekki tekið einn svindl dag síðan hann byrj­aði á ketó: „Ég sé ekki fram á að ég hætti nokkurn tím­ann á þessum lífs­stíl, þegar ég er kom­inn í það form sem ég vill vera í mundi ég kannski leyfa mér ein­staka svindl dag, ég hef ekki gert það frá því ég byrj­aði. Ég hef ekki svindlað stakan dag, bara haldið mér við þetta, af því ég hugs­aði bara ef þú ætlar að gera eitt­hvað gerðu það af heilum hug, það bara flækir hlut­ina að vera með svindl dag hér og þar. Ég sé ekki hvernig það virkar, það er bara að setja upp meiri hættu að þú fallir,“ segir Hallur.

Hallur Örn er búinn að missa 100 kíló

Hann seg­ist þó hafa byrjað rólega og setti sér fyrst það mark­mið að borða eftir ketó matar­æði í mánuð og sjá hvaða áhrif það hefði.
Hallur segir mán­uð­inn ekki hafa verið lið­inn þegar hann var búinn að venj­ast matar­æð­inu. Á þessum mán­uði fór hann að sjá breyt­ingar hjá sér: „Bara eins og það er ekki orðið jafn erfitt að klæða sig í sokka og svona hlutir sem þú varst búinn að sætta þig við að þú gætir ekki lengur,“ segir hann.

En eins og Hallur sagði, var hann ungur mað­ur­inn búinn að sætta sig við þær hömlur sem þyngdin setti honum við athafnir dag­legs lífs:

„Þegar maður fitnar svona, þetta ger­ist yfir mörg ár þá bara ein­hvern veg­inn sættir þú þig hægt og rólega við hvert skrefið á eftir öðru skil­urðu, þangað til þúst heyrðu ég er far­inn að þurfa setj­ast niður til að pissa, æj það er bara eðli­legt ég lifi líf­inu bara svona. Ég get ekki lengur klætt mig í sokka, get ekki reimað skóna mína og allt þetta. En síðan fór þetta hægt og rólega að tikka til baka maður átt­aði sig ekki á því nema bara svona skref fyrir skref, vó ég get reimað á mig skóna, hvað er að ger­ast, nýtt líf.“

Hallur segir að þessi smá árangur hafi gert það að verkum að hann lang­aði að halda áfram og létt­ast meira: „Mig langar svona einu sinni að vera eðli­legur, ekki vera feiti gaur­inn í her­berg­inu, þannig ég ætla bara halda þessu áfram,“ segir Hallur.

Hallur stefnir á að kom­ast í kjör­þyngd og líta eðli­lega út, eins og hann orðar það sjálfur. „Það krefst þess reyndar alveg örugg­lega að ég þurfi þá að fara í ein­hverjar aðgerðir til að losa mig við skinn. Því núna lít ég út eins og Sharpey hundur, þúst með svona hang­andi auka skinn utan á mér,“ segir Hallur glott­andi.

Hægt er að hlusta á við­talið í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina