Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þú þarft ekki að vera í klámiðnaðinum til þess að eignast pening“

„Þú þarft ekki að vera í klámiðnaðinum til þess að eignast pening“

„Þú þarft ekki að vera í klám­iðn­að­inum til þess að eign­ast pen­ing.“

Segir Katrín Edda, áhrifa­valdur með meiru, á Instagram reikn­ingi sínum. Þar tjáir hún sig um OnlyFans umræð­una sem skap­ast hefur eftir við­tal sem kom út á dög­unum við þau Ósk Tryggva­dóttir og Ingólf Val Þrast­ar­son.

Í umræddu við­tali segja þau Ósk og Ingólfur frá OnlyFans síð­unum sem þau halda úti þar sem þau selja kyn­lífs­myndir og -mynd­bönd af sjálfu sér. Var því slegið upp að Ósk sé búin að græða 15 millj­ónir á síð­unni og finnst Katrínu Eddu starf þeirra látið hljóma líkt og algjört drauma starf, „græða 15 millj­ónir, rosa gaman og æði,“ segir hún.

OnlyFans er vefur sem gerir fólki kleift að selja efni til áskrif­anda. Efnið á síð­unni er af ýmsum toga, þetta gefur fólki til dæmis tæki­færi til að selja tón­list sína og var síðan upp­haf­lega hugsuð þannig, að sögn Katrínar Eddu. En nú er þar inni aðal­lega að finna eró­tískt efni.

Ósk og Ingólfur segja frá starfi sínu í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur, sem þær Edda Falak, áhrifa­valdur og sál­fræði­nem­inn Fjóla Sig­urð­ar­dóttir stýra.

Að mati Katrínar Eddu var rætt um efnið af mik­illi léttúð og óheil­brigt sé fyrir ungar stelpur að heyra þetta. Segist hún sjálf hafa verið sturluð og ýkt og skrýtin í hausnum þegar hún var yngri, „hver veit nema ég hefði látið mana mig í þetta og fund­ist þetta góð hug­mynd,“ segir hún.

Vitnar Katrín Edda í við­talið og segir Ósk hafa verið spurða hvort hún sé alltaf í suði til að taka upp efni. Ósk hafi svarað því til að hún væri ekki alltaf í stuði, hún væri stundum aum, en þá þyrfti hún bara að peppa sig í gang.
Annar þátt­ar­stjórn­and­inn spyr þá: „Já en það ekki bara þannig í öllum atvinnu­greinum?“ Sem Katrín Edda þver­tekur fyrir að svo sé: „Uhh NEI, það er ekki svo­leiðis í öðrum störfum að þú þurfir að neyða þig til að láta ríða þér eða ríða öðrum þrátt fyrir að vera illt í kyn­fær­unum til að halda vinn­unni.“

Einnig gagn­rýnir Katrín Edda annan stjórn­anda þátt­ar­ins fyrir að líkja starfi þeirra saman við að stunda kyn­líf. Segir Katrín þetta ekki bara að stunda kyn­líf, þetta sé að búa til og selja klám. Og bendir hún á að efni sem sett sé inn á OnlyFans geti lekið út um allt inter­netið og þetta muni fylgja þeim að eilífu.

Katrín Edda segir það jafn framt vera eitt að gefa inn­sýn inn í klám­heim­inn og annað að vera láta þetta hljóma sem góður og eðli­legur starfs­kostur.

Í kjöl­far umræð­unnar hjá Katrínu Eddu hafa fjöl­margir stigið fram og tekið undir orð hennar. Má þar nefna sjón­varps­kon­una Evu Laufey Kjaran, Manúelu Ósk Harð­ar­dóttur fyrrum feg­urð­ar­drottn­ing, Gerður Arin­bjarnar, eig­andi kyn­lífstækja­versl­un­ar­innar Blush.is og fleiri og fleiri.

Jafn framt hafa Ósk og Ingólfur svarað fyrir sig á Instagram reikn­ingum sínum, en lítið hefur heyrst frá stjórn­endum hlað­varps­þátt­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina