Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sósíalistar styðja varið land – Heilbrigðisráðuneytið kórónaði skömmina

Sósíalistar styðja varið land – Heilbrigðisráðuneytið kórónaði skömmina

„Rík­is­stjórn­inni tókst ekki að verða við ósk sótt­varna­yf­ir­valda um tæki til herða á sótt­kví á landa­mærum. Málið var eyði­lagt í með­förum Alþingis, sem setti lög sem sér­stak­lega bann­aði að fólk væri skikkað í sótt­kví­ar­hús. Heil­brigð­is­ráðu­neytið kór­ón­aði svo skömm­ina með því að setja reglu­gerð þvert á lögin, reglu­gerð sem skilj­an­lega var dæmd ólög­leg í hér­aðs­dómi,” segir í harð­orðri yfir­lýs­ingu Sós­í­alista­flokks Íslands.

Sóttvarnir hápólitískar

Flokk­ur­inn segir rík­is­stjórn­ina hafa gert sótt­varnir á Íslandi að hápóli­tísku máli eftir að hafa að mestu gengið í takt við sótt­varna­yf­ir­völd frá upp­hafi kór­ónafar­ald­urs­ins. „Um þá stefnu hefur að mestu ríkt sátt í sam­fé­lag­inu, fyrst og fremst vegna þess að sótt­varna­yf­ir­völd hafa nær ein­göngu lagt það til við stjórn­völd sem meiri­hluti almenn­ings hefur verið til­bú­inn að styðja og beygja sig undir.”

Flokk­ur­inn minnir á að fyrir mán­uði síðan hafi sótt­varna­yf­ir­völd farið fram á heim­ildir til að styrkja sótt­kví á landa­mær­unum. „Þetta var í takt við vilja almenn­ings, sem er lang­þreyttur orð­inn á miklum hömlum á dag­legt líf. Reynsla ann­arra þjóða hefur sýnt að harðar aðgerðir á landa­mærum geta tryggt veiru­frítt sam­fé­lag og þar með litlar ef nokkrar tak­mark­anir á dag­legu lífi.

Gunnar Smári Egilsson, for­maður Sós­í­alista­flokks Íslands.

Þar sem best hefur tek­ist til hefur skað­inn af veirunni ekki aðeins orðið minni, líf almenn­ings ánægju­legra heldur hefur sam­dráttur í efna­hags­líf­inu orðið minni. Sam­komu­bönn og enda­lausar tak­mark­anir á dag­legu lífi draga afl úr atvinnu­líf­inu, eyða störfum og valda ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum óþarfa efna­hags­legum búsifjum.”

Málið eyðilagt í meðförum þings

Í yfir­lýs­ing­unni segir Sós­í­alista­flokk­ur­inn að rík­is­stjórn­inni hafi ekki tek­ist að verða við ósk sótt­varna­yf­ir­valda um tæki til herða á sótt­kví á landa­mærum. „Málið var eyði­lagt í með­förum Alþingis, sem setti lög sem sér­stak­lega bann­aði að fólk væri skikkað í sótt­kví­ar­hús. Heil­brigð­is­ráðu­neytið kór­ón­aði svo skömm­ina með því að setja reglu­gerð þvert á lögin, reglu­gerð sem skilj­an­lega var dæmd ólög­leg í hér­aðs­dómi.”

Nýtt frum­varp Alþingis um sótt­varnir er harð­lega gagn­rýnt í yfir­lýs­ing­unni.

„Í dag freistar rík­is­stjórnin þess að koma í gegnum Alþingi nýju frum­varpi sem gengur mun skemur en fyrra frum­varp. Það hefur verið enn þynnt út í mála­miðlun við eig­endur stærstu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­anna ann­ars vegar og hins vegar nýfrjáls­hyggju­fólkið í Sjálf­stæð­is­flokknum, sem setur rétt ein­stak­linga til að vera í heima­sótt­kví ofar sam­fé­lags­legum ávinn­ing af veiru­fríu sam­fé­lagi.”

Ljóst sé að hætta á smiti, veik­indum og jafn­vel dauða sé meira ef sótt­varnir á landa­mær­unum eru veik­ari. „Það liggur líka ljóst fyrir að efna­hags­legur sam­dráttur verður minni ef það tekst að aflétta öllum hömlum inn­an­lands í skjóli harðra sótt­varna á landa­mær­unum.”

Styðjum varið land

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækin er einnig harð­lega gagn­rýnd.

„Það eru því engin efna­hags­leg rök fyrir kröfum eig­enda stærstu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­anna. Krafa þeirra bygg­ist á að þeir sjálfir kunni að græða ef hingað koma fleiri túristar þótt allt sam­fé­lagið muni tapa miklu meiri fjár­munum á sama tíma. Og það eru engin rök fyrir upp­hróp­unum nýfrjáls­hyggju­liðs­ins í Sjálf­stæð­is­flokknum um mann­rétt­indi. Það má lesa í dómum Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu að rík­is­vald­inu er heim­ilt að skerða rétt­indi ein­stak­linga gagn­vart bráðri vá og miklum hags­munum heild­ar­innar. Mann­rétt­indum er ætlað að byggja upp sam­fé­lög, ekki brjóta þau niður.

Í ljósi þessa, og þar sem rík­is­stjórnin hefur ákveðið að víkja af braut og gera sótt­varnir að póli­tísku máli í íslensku sam­fé­lagi; lýsir fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands því yfir að hún styður varið land, að sótt­varnir séu efldar á landa­mær­unum í von um að dag­legt líf innan þeirra geti orðið sem eðli­leg­ast. Sós­í­alistar hafna alfarið full­yrð­ingum nýfrjáls­hyggju­fólks­ins um að sótt­kví við landa­mæri sé mann­rétt­inda­brot. Og sós­í­alistar hafna því alfarið að hags­munir hlut­hafa í allra stærstu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­unum skuli metnir mik­il­væg­ari en hagur alls almenn­ings af eðli­legu lífi.”

„Sós­í­alistar styðja varið land,“ segir í yfir­lýs­ingu Sós­í­alista­flokks Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina