„Jæja, þá er verið að útskrifa mig af Landspítalanum í Fossvogi eftir fimm daga legu. Hingað kom ég fárveikur síðasta vetrardag með tilvísun frá lækni Heilsugæslunnar í miðbæ með það sem ku kallað heimakoma. Mæli ég ekki með slíku fyrir nokkurn mann. Ég get hins vegar ekki orða bundist yfir því frábæra fólki sem hefur annast mig hér bæði á bráðamóttökunni og á A-2 bráðalyflækningadeildinni.“
Þetta skrifar Ólafur Arnarsson hagfræðingur á Facebook en þar segist hann þakklátur fyrir heilbrigðiskerfi Íslands. „Við eigum frábært heilbrigðisstarfsfólk og frábært heilbrigðiskerfi. Án þess að ég væri gjörgæslutækur þurfti að fylgjast grannt með mér á nóttu sem degi fyrstu 2-3 sólarhringana og ég á ekkert nema hrós til handa öllum sem önnuðust mig, sjúkraliðum, ófaglærðu fólki, nemum, hjúkrunarfræðingum og læknum. Þvílík fagmennska og hlýtt viðmót sem maður mætir hjá öllu þessu fólki,“ segir Ólafur.
Hann segir Íslendinga geta verið stolta af heilbrigðiskerfinu, þó það megi bæta eins og allt annað. „Ekki vil ég heldur láta hjá líða að þakka fyrir frábæra þjónustu Heilsugæslu miðbæjar og læknisins þar sem lét gera viðbótar blóðrannsókn áður en hún sendi mig heim með lyfseðil upp á sýklalyf. Þegar viðbótarniðurstöðurnar lágu fyrir sendi hún mig beint upp á bráðadeild. Íslenska heilbrigðiskerfið má að sjálfsögðu bæta eins og öll mannanna verk, en það breytir ekki því að við Íslendingar erum forréttindaþjóð að búa við svona frábært heilbrigðiskerfi. Auðmjúkur segi ég: Takk fyrir mig!“































Athugasemdir