Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Miðbæjarelítan æf vegna hljóðmengunar: „Þetta eru biluð óhljóð og verulegar drunur“

Miðbæjarelítan æf vegna hljóðmengunar: „Þetta eru biluð óhljóð og verulegar drunur“

Þórir nokkur, íbúi mið­borg­ar­innar, sat á pall­inum sínum í hálf­tíma í hádeg­inu. Á þeim tíma taldi hann 12 flug­vélar og tvær þyrlur á flugi yfir mið­bænum. „Það gerir sirka eitt stykki á tveggja mín­útna fresti,“ skrifar hann á Facebook síðu fyrir íbúa mið­borg­ar­innar.

Hann heldur áfram: „Mér finnst ekk­ert að því að heyra í einni og einni flug­vél, það er bara partur af borg­ar­hljóð­mynd­inni. Staðan er hins vegar sú að maður lifir í stöð­ugum kvíða við að geta ekki klárað eina ein­ustu setn­ingu sem maður byrjar á. Það hlýtur að vera hægt að beina þessu æfinga­flugi frá byggð, eða hvað?!“

Þórir virð­ist ekki vera einn um að vera þreyttur á hljóð­mengun flug­um­ferðar yfir mið­borg­inni.

Guðrún nokkur skrifar: „Var á gangi í kirkju­garð­inum við Suð­ur­götu – þetta er ein­fald­lega óþol­andi umhverf­is­mengun.“

„Þetta eru biluð óhljóð og stundum veru­legar drunur. Krakkinn vakn­aði við eina þyrl­una áðan, lætin voru slík að það var eins og hún væri að lenda í bak­garð­inum,“ skrifar móðir í mið­borg­inni.

„Það hrist­ist allt og skelfur stundum hérna vegna þessa og sam­ræður í garð­inum verða ansi sund­ur­lausar. Engin leið að klára heila setn­ingu eða hugsun stundum,“ skrifar Sig­ur­veig.

Heiða B. Heiðars íhugar hvort svo mikil umferð sé leyfi­leg: „Velti því fyrir mér hvort það séu ekki ein­hverjar reglur yfir hvað má í þessum efnum. Ég læt þyrlu­flug rétt fyrir ofan þakið hérna rétt fyrir mið­nætti fara sér­lega í taug­arnar á mér.“

„Þetta er bara alls ekki boð­legt. Þegar þessum flug­velli var val­inn staður voru þetta nokkur flug á ári. Á góð­viðr­is­dögum jaðrar stöð­ugur hávað­inn í þessum rellum við að vera heilsu­spill­andi. Þó ég sé algjör­lega á móti núver­andi stað­setn­ingu þessa flug­vallar þá er alveg hægt að sætta sig við ónæðið sem fylgir sjúkra­flugi og þessum örfáu áætl­ana­flug­ferðum. Útsýnis og kennslu­flug er allt annað og finnst mér að það eigi að banna það yfir borg­inni,“ skrifar Helgi.

Þessi mikla flug­um­ferð virð­ist að mörgu leiti stafa af þyrlum með fólk á gos­s­töðv­arnar snerti­lend­inga­ræf­ingum og. Og spyr fólk sig hvort slíkar æfingar geti ekki farið fram ann­ars staðar: „Er ekki ágætis touch and go flug­völlur á Hell­is­heiði? Af hverju þarf að gera þetta á Reykja­vík­ur­flug­velli?“

Egill Helgason, sjón­varps­maður tekur einnig þátt í umræð­unni og skrifar: „Það er löngu búið að semja að æfinga- og sport­flug fari úr bænum – en svo hafa þyrlurnar bæst við. Sök sér með áætl­unar- og sjúkra­flug en þetta á ekki heima inni í borg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina