Í Covid-faraldrinum hefur vanræksla barna aukist um 19.2 prósent. Aukningin varð á síðustu 12 mánuðum og kemur fram í nýjum tölum á vef Barnaverndarstofu.
Árin þar á undan hafði verið aukning um 10 prósent milli ára og því er um fjölgun tilkynninga um vanrækslu barna helmingi meiri í Covid-19. Í upphafi faraldursins bárust einnig óvenjumargar tilkynningar um ofbeldi gegn börnum.
Þá hefur einnig orðið mikil aukning, eða því sem nemur 68.2 prósentum, á tilkynningum þar sem heilsu eða lífi ófædds barns er stefnt í hættu.































Athugasemdir