Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ingólfur Arnarson hefði skammast sín í Reykjavík nútímans: „Hví þetta rugl?“

Ingólfur Arnarson hefði skammast sín í Reykjavík nútímans: „Hví þetta rugl?“

Guðni Ágústson, Fram­sókn­ar­maður og fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að ung­lingar séu hvergi nærri sá hópur sem sé íslensk­unni verstur. Helstu böðlar íslensk­unnar er mið­aldra kaup­sýslu­menn að sögn Guðna. Hann skrifar um þetta grein í Morg­un­blað­inu en í henni veltir hann fyrir sér hvernig Ingólfur Arnarson hefði tekið því að Gamla gufan á Laug­ar­vatni héti í dag „Fontana“.

„Oft heyr­ist að börn og ung­lingar séu íslensk­unni verst og séu mest ensku­skotin í tali. Þetta er alrangt. Þau læra erlend tungu­mál strax en stærstur hluti þeira talar gott móð­ur­mál. En börnin læra það sem fyrir þeim er haft. Ég held að verstu óvinir íslensk­unnar séu mið­aldra karlar í atvinnu­rekstri. Fyr­ir­tækja­nöfnin eru til vitnis um það. Dauði íslensk­unnar blasir við í nafn­giftum fyr­ir­tækja og er brenni­merkt á stafn og dyr, erlend nöfn og heiti. Þótt mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra Lilja Alfreðs­dóttir geri margt til að styrkja stöðu íslenskrar tungu og reyni að bjarga bóka­út­gáf­unni, þá kemur atvinnu­lífið úr allt annarri átt og van­virðir grund­vall­ar­at­riði nafn­gifta fyr­ir­tækja,“ segir Guðni.

Hann minnir á að árið 2011 hafi Alþingi sett ákvæði um þetta í stjórn­ar­skrá Íslands. „Árið 2011 setti Alþingi ákvæði í stjórn­ar­skrá Íslands um að íslenskan sé þjóð­tunga lands­ins. „Þjóð­tungan er sam­eig­in­legt mál lands­manna. Stjórn­völd skulu tryggja að unnt verði að nota hana á öllum sviðum íslensks þjóð­lífs.“ Er það brot á stjórn­ar­skrá að nota ekki íslensk nöfn á íslensk fyr­ir­tæki? Nöfn þjón­ustu­fyr­ir­tækja í Reykja­vík eru að verða með þeim hætti að um gæti verið að ræða erlenda borg þegar gengið er um göt­urnar,“ segir Guðni.

Hann segir kaup­sýslu­menn vera furðu­góða í því að finna afleit nöfn á rekstur sinn. „Mathöll Ingólfs Arn­ar­sonar eða Hall­veigar Fróða­dóttur eru hvergi, þrátt fyrir að við vitum allt um land­nám þeirra. „Sky Lagoon“ er ný ferða­mannapara­dís á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem millj­ónir manna munu heim­sækja á næstu árum, ekk­ert síður inn­lendir en erlendir. Bláa lónið er afburða­nafn, íslenskt nafn í húð og hár. Skýja­lónið eða Skýja­borgin hefði verið kjörið og lýsandi nafn á „Sky Lagoon“, því þar verða gest­irnir skýjum ofar af sælu. Hvers vegna á ekki að gera kröfu um að fyr­ir­tæki beri íslenskt nafn? Hvers vegna er lögum um fyr­ir­tækja­nöfn ekki fram­fylgt? Erlend nöfn fyr­ir­ækj­anna standa einnig í vax­andi mæli í íslenskri sveit. Gott dæmi er „Fontana“, frá­bært gufu­bað þar sem Gamla gufan stóð á Laug­ar­vatni. Við eigum eitt elsta mál heims­ins.“

Guðni telur að fyrsti land­náms­maður Íslands væri ekki sáttur ef hann vissi af þessu Þú myndir, les­andi góður, skilja Ingólf Arnarson, fyrsta land­nem­ann í Reykja­vík, ef þú mættir honum á Arn­ar­hóli. Ingólfur mundi spyrja þig: „Hví þetta rugl í nafn­giftum, land þjóð tunga, þrenn­ing sönn og ein,“ myndi hann mæla og bæta við: „Það er íslensk tunga sem hefur mótað land þitt og höf­uð­borg þess.“ Nema enska sé tal­mál himna­ríkis? Og karl­inn far­inn að ryðga í tungu­mál­inu. Eyja­fjalla­jök­ull var skemmti­leg­asta verk­efni sem frétta­menn um víða ver­öld reyndu að bera fram, besta ókeypis aug­lýs­ing allra tíma. Grind­vík­ingar nefndu nýja hraunið Fagra­hraun, ramm­ís­lenskt og lýsandi. Hvers vegna leggur ríkið millj­arða í móð­ur­máls­kennslu þegar mis­vitrir atvinnu­rek­endur borga ráð­gjöfum fyrir að setja útlend nöfn á fyr­ir­tækin, stað­sett á Íslandi? Tungu­málið er okkar stærsta eign ásamt land­inu sjálfu og gerir okkur að þjóð. En kannski er öllum sama um forna frægð móð­ur­máls­ins, lands og þjóðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina