Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Barnamorðinginn Ingólfur fylltist löngun til að drepa: „Það skal nú ekki verða mikið eftir af þér“

Barnamorðinginn Ingólfur fylltist löngun til að drepa: „Það skal nú ekki verða mikið eftir af þér“

Árið 1947 stóð lítil bragga­byggð, Camp Tower Hills, við Háteigs­veg gegnt Sjó­manna­skól­anum í Reykja­vík. Meðal íbúa var Ingólfur Ein­ars­son, stíf­lund­aður, orð­ljótur og fálátur ein­stæð­ingur, sem hafði ítrekað dvalið á geð­sjúkra­húsi en alltaf verið sleppt. Hann bjó einn í hrör­legum skúr, hafði margoft kom­ist í kast við lög­reglu og ótt­uð­ust nágrannar hans hann mjög enda hót­aði hann þeim sí og æ lík­ams­meið­ingum og dauða.

Sér­stak­lega voru börnin í hverf­inu hrædd við Ingólf en hann hafði fyrr um vet­ur­inn veist að tveimur stúlkum með hníf og slasað aðra þeirra. Það var mál manna að Ingólfur væri stór­hættu­legur.

Skúrinn sem Ingólfur bjó í í bragga­hverf­inu.

Föstu­dags­kvöldið 2. maí sat Ingólfur við drykkju, leið illa og átti erfitt með svefn. Undir slíkum kring­um­stæðum var vani Ingólfs að nota hnífa og önnur egg­vopn til sjálf­skaða en þetta kvöldið kom yfir Ingólf áköf löngun til að myrða. Hann vissi bara ekki hvern.

Ingólfur vopn­að­ist járn­sveðju og hélt út til að full­nægja morð­þörf­inni.

Ítarlega var fjallað um atburð­ina sem eftir á fylgdu í fjöl­miðlum þeirra tíma og var þjóðin slegin yfir því gegnd­ar­lausa ofbeldi sem Ingólfur sýndi af sér þetta kvöld.

Morðið í skála númer eitt

Í skála númer eitt í bragga­hverf­inu bjuggu hjónin Rósa Aðal­heiður Georgs­dóttir og Kjartan Friðberg Jónsson ásamt tæp­lega tveggja ára dóttur sinni, Kristínu og átta ára gam­alli dóttur Rósu, Sigríði Hólm Guð­munds­dóttur. Þetta kvöld var Kjartan við vinnu en Rósa hafði brugðið sér frá til að þvo þvott í nær­liggj­andi aðstöðu. Sigríður varð eftir heima og gætti Krist­ínar litlu sem svaf

Skáli númer eitt var sá fyrsti sem Ingólfur kom að. Hann rauk inn í svefn­her­bergi og að litlu stúlkunni og veitti henni fjölda stungusára. Sigríður reyndi að koma litlu systur sinni til hjálpar, réðst að Ingólf sem sneri sér þá frá Kristínu og stakk Sigríði ítrekað. Sigríður náði á ótrú­legan hátt að sleppa frá Ingólfi og kom­ast út. Kristín litla var þá látin.

Til hægri má sjá bragg­ann sem Rósa og Kjartan bjuggu í ásamt telp­unum. Til vinstri má sjá þvotta­húsið sem Rósa var í þegar Kristín var myrt.

Rósu brá eðli­lega við að sjá eldri dóttur sína koma hlaup­andi að sér, alblóð­uga, og hljóp þegar af stað heim. Þar sá Rósa Kristínu látna og Ingólf standa alblóð­ugan við hlið hennar. Hún spurði hvað hann væri búinn að gera og svar­aði Ingólfur: „Það skal nú ekki verða mikið eftir af þér,“ og réð­ist að Rósu með sveðj­unni. Rósa brást til varnar og í átök­unum náði Ingólfur að stinga hana nokkrum sinnum. Eftir barn­ing náði Rósa að ná taki á vinstri jakka­ermi Ingólfs sem var örv­hentur og átti þar með erf­ið­ara með að beita hnífnum. Rósa komst undan á flótta og sá þá Sigríði liggja hreyf­ing­ar­lausa fyrir utan bragg­ann og taldi hana einnig látna. Sigríður var aftur á móti enn með lífs­marki en hafði misst með­vit­und af völdum sára sinna.

Þurrkaði blóðið í fötin

Rósa, hel­særð og blóði drifin, náði að kalla til tveggja drengja að það væri brjál­aður maður á heim­ili sínu og hefði hann myrt börn hennar. Sóttu drengirnir þegar föður ann­ars þeirra, Gunnar Guð­munds­son sem hélt þegar að heim­ili Rósu ásamt félaga sínum Baldri Ein­ars­syni. Þar beið Ingólfur þeirra, alblóð­ugur með sveðj­una í hendi, en ann­ars hinn róleg­asti. Menn­irnir skip­uðu honum að koma umsvifa­laust að koma út úr bragg­anum. Ingólfur svar­aði því til mð því að spyrja hvort að lög­reglan væri nú ekki að koma og gekk síðan út, þurrk­aði blóðið af sveðj­unni í föt sín og kastaði henni svo kæru­leys­is­lega frá sér. Hafði nú tölu­vert að fólki borið að bragg­anum.

Gunnar og Baldur tóku Ingólf á milli sín og keyrðu niður á lög­reglu­stöð en aðrir íbúar hverf­is­ins fóru með mæðgurnar á Lands­spít­al­ann. Kristín reynd­ist lát­inn eftir níu djúp stungu­sár.

Örþrifaráð frásinna manns

Ingólfur var sam­vinnu­fús við lög­reglu og ját­aði verkn­að­inn. Hann hafði enga skýr­ingu á verknað sínum og sagði fórn­ar­lömbin val­inn af handa­hófi. Ingólfur sýndi aldrei iðrun.

Helgi Tómasson, yfir­læknir á Klepps­spít­ala, var feng­inn til að meta geð­heil­brigði Ingólfs og segir meðal ann­ars í skýrslu hans: „Afbrot hans virð­ist mér ekki hvata­bragð eða skamm­hlaupa­verk geð­veiks manns, heldur van­hugsað örþrifa­ráð til sjálfs­bjargar hjá frá­sinna manni, er hefur horn í síðu þjóð­fé­lags­ins, örþrifa­ráð svip­aðs eðlis og sefa­sjúk við­brögð van­mátt­ugra ein­stak­linga. Að hann varð manns­bani, var frekar af vangá en yfir­lögðu ráði. Hann ætl­aði sér ekki af frekar en margir í sefa­sýkisköstum.“

Enn fremur segir í skýrsl­unni: „Afbrigði­leg hegðun manns­ins virð­ist eiga rót sína að rekja til lík­ams­lýtis, nokk­urs and­legs mis­þroska, sál­ar­legra og félags­legra aðlög­un­ar­erf­ið­leika, en hvorki geð­sjúk­dóms né ill­mennsku.”

Gat ekki jarðað barnið sitt

Rósa og Sigríður reynd­ust báðar vera með yfir tug stungusára hvor og var Rósu vart hugað líf. Þær mæðgur dvöldu rúman mánuð á sjúkra­hús­inu og gat Rósa ekki verið við útför dóttur sinnar heldur þurfti hún að fylgj­ast með lík­fylgd­inni út um glugg­ann á sjúkra­hús­inu. Í sam­tali við Morg­un­blaðið segir hún: „Ég var ein­kenni­lega róleg, það grétu allir í kringum mig – en ekki ég. Það grét öll þjóðin.“ Hún valdi sálm­ana og bað prest­inn að minn­ast ekki á sorg í ræð­unni því að Kristín hefði verið ljós­geisli alla tíð og væri það enn.

Rósa þótti ávallt sýna fádæma still­ingu, sem hún sótti meðal ann­ars í trúna, þrátt fyrir að hlotið var­an­lega skaða af völdum áverk­anna. Hún þurfti að berj­ast við heilsu­brest ævina á enda en aldrei mun Rósa hafa kvartað við nokkurn mann.

Baráttukona í geðheilbrigðismálum

Rósa Aðal­heiður sýndi aldrei bit­urð né reiði í garð Ingólfs sem hún taldi fár­veikan mann. Þess í stað taldi hún sök­ina liggja hjá heil­brigð­is­yf­ir­völdum sem höfðu sleppt Ingólfi þess full­vit­andi að hann væri hættu­legur umhverfi sínu. Rósa ein­beitti sér að fjölgun úrræða í geð­heil­brigð­is­málum og vann að þeim sleitu­laust alla tíð.

Í við­tali sem tekið var við hana í DV í til­efni af opnun nýrrar rétt­ar­geð­deildar sagði Rósa, þá 72 ára gömul: „Tveggja ára dóttir mín var myrt, átta ára dóttir mín fékk ell­efu hnífstungur og sjálf fékk ég mikla áverka og heilsu­brest. Saga mín er dæmi um hvernig geð­sjúkum afbrota­mönnum var „hjálpað“ fyrir næstum hálfri öld. Það var sama hversu margir báðu um hjálp eða gæslu á þeim mönnum sem voru hættu­legir umhverfi sínu. Ekki var hlustað á raddir þeirra fyrr en um seinan. Núna rúmum fjöru­tíu árum síðar, er ástandið nán­ast óbreytt. Bilað fólk gengur enn um gæslu- og hús­næð­is­laust. Er ekki skylda þeirra sem hér fara með heil­brigðis- og dóms­mál að sofna ekki á verð­inum?“

Rósa Aðal­heiður síðar á lífs­leið­inni.

Í nóv­em­ber árið 2004 stofn­aði hún kær­leiks­sjóð Krist­ínar Kjart­ans­dóttur til styrktar rétt­ar­geð­deild­inni að Sogni. Sjóð­ur­inn hefur keypt jóla­gjafir, ýmis tæki og fleira til afþrey­ingar. Þá var byggt gróð­ur­hús þar sem sjúk­ling­arnir gátu ræktað blóm og mat­jurtir og fékk það heitið Rósu­skjól. Rósa heim­sótti Sogn og var ánægð með starfið þar. „Það verða að vera róleg­heit á svona stað, og þarna er himneskt að vera.“

Ingólfur var dæmdur í 16 ára fang­elsi. Fimm árum síðar flúði hann af Litla-Hrauni en náð­ist degi síðar. Eftir að hafa afplánað 16 ár neit­aði Ingólfur að yfir­gefa fang­elsið og var hann því vistaður á Litla-Hrauni þar til hann lést sum­arið 1969.

Rósa Aðal­heiður Georgs­dóttir eign­að­ist þrjú börn síðar á lífs­leið­inni. Hún lést 6. ágúst árið 2009, níræð að aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina