Engill Bjartur Einisson, ljóðskáld sem vekur athygli á Tiktok og víðar, segir mál Sölva Tryggvasonar sanna að það halli á karlmenn í íslensku samfélagi. Í pistli, sem hann birtir á Facebook og má lesa í heild sinni hér fyrir neðan, segir Engill að það sé staðreynd að margir karlar áreiti konur eða beiti ofbeldi. Lausnin við því sé þó ekki að hans sögn að snúa óréttlætinu við.
Engill þekkir þetta á eigin skinni en hann fékk talsverðar skammir fyrir að rappa lagið Hot Nigga eftir Bobby Shmurda. Hann segist hafa fengið fjölda hatursskilaboða fyrir að segja orðið „nigga“, sem líkt og gefur að skilja kemur oft fyrir í laginu. Sumir sögðu hann ekki mega segja orðið þar sem hann sé hvítur en ekki svartur.
VITLEYSAN VERÐUR AÐ STOPPA
Illskan nær engri átt. Mér er stórlega misboðið að gerð sé aðför að jafn góðum manni og Sölva Tryggva. Ég er mikill aðdáandi hans. Og þó ég þekki hann ekki persónulega, hryggir það mig mjög að sjá þennan ófögnuð í fréttunum. Í grófum dráttum fyrirfinnst tvennskonar fólk 1) þeir sem færa heiminum gildi og 2) þeir sem rífa niður þá sem færa heiminum gildi. Sölvi Tryggva er fyrirmynd fyrir svo marga. Þar á meðal unga athafnamenn eins og sjálfan mig. Sölvi færir Íslendingum einstaka afþreyingu og dýrmætar upplýsingar í sínu starfi. Hann bætir líf Íslendinga. Menn eins og hann eru stoðir samfélagsins.
Segir í fréttinni á DV að Sölvi líði hér fyrir það að vera karlmaður í forréttindastöðu. „Hann segir að honum finnist erfitt sem karlmanni að stíga fram og segja að honum hafi verið ógnað.“ Þetta særir mig sérstaklega þar sem jafnrétti á að ríkja í nútímasamfélagi. Ég vil árétta að konur eru í engum rétti að gera tilraun til að rífa niður karlmenn frekar en öfugt. Er kvennaveldið komið út í algerar öfgar? Ríkir ekki jafnrétti í nútímasamfélagi?
Mér hefur lengi fundist halla á hlut karlmanna í dag. Þetta er óvinsæl skoðun en hún er sönn. Kannski verð ég óvinsæll fyrir þessi skrif. En það er þess virði að koma þessum skilaboðum frá sér. Það er brýnt. Heimurinn hefur tilhneigingu til að færast úr einni tegund öfga yfir í algera andstæðu þeirra öfga, í stað þess að komast í jafnvægi og halda kyrru fyrir þar.
Ég stend með konum. En ég stend líka með karlmönnum. Ég stend með fólki. Það er grafalvarlegt að konur hafi notið minni réttinda í fyrri tíð. En þar er JAFN ólýðandi að konur telji sig vera í rétti að ganga yfir virðingarverða karlmenn á skítugum skónum – mögulega teljandi sig gera svo í rétti sakir löngu liðins óréttlætis fortíðarinnar sem þorri núlifandi kynslóða höfðu ekkert með að gera. Er lausnin á liðnu óréttlæti í garð eins kyns virkilega að snúa því yfir í öndvert óréttlæti af alveg jafnmikilli stærðargráðu í garð annars kyns?
Þetta sést glöggt í skilnaðarmálum þar sem sumar illviljaðar konur telja sig geta troðið karlmenn undir fótum í nafni brenglaðs tíðaranda og liðinnar mismununar. Karlmenn veitast auðvitað líka títt að konum. En það er ekki umfjöllunarefni þessa pistils. Einnig eru dæmi þessa samfélagsgalla sýnileg í tónlistarheiminum þar sem hvítt listafólk þarf að vanda hvert skref til að móðga ekki óvart aðra kynþætti þótt ásetningur þeirra sé eingöngu af hinu góða. Það er skammarlegt – í svo miklum mæli að engin orð fá lýst að hvítt fólk skuli hafa vogað sér að níðast á fólki af öðru litarhafti. Það heyrir nú sögunni til. Guði sé lof.
En er þá lausnin á því að snúa óréttlætinu við og draga niður hvítt fólk sem í góðri meiningu rappar lög litaðra goðsagna í tónlistarheiminum og notar N-orðið sem er óhjákvæmilegt ef gerlegt á að vera að rappa þau lög sem innihalda N-orðið í textanum. Ég lít óendanlega upp til þessara listamanna og það er af þeim sökum sem ég rappa lög þeirra; til upphafningar þeirra og af aðdáun á þeim miklu samtímalistaverkum sem tónlist þeirra er. Klofning á ekki að grassera í tónlistarheiminum frekar en í nokkrum öðrum listgreinum.
Sjálfur lenti ég í léttvægum vandræðum í vikunni sem rekur rætur til kjarna þessa pistils. En það var brandari í samanburði við það andlega ofbeldi sem Sölvi Tryggva hefur mátt þola. Eins og segir í DV umfjöllun um það mál voru mér bornar sakir á hendur fyrir það sem álitið var innrásarskref yfir á yfirráðasvæði fólks af blökkum hörundslit. Ég birti keypta afmæliskveðju á TikTok rás minni í góðri meiningu. Henni var ætlað að gleðja aðdáanda sem átti afmæli þann daginn – og kveðjan gladdi hann afskaplega var mér sagt – en vinir hans sem pöntuðu kveðjuna báðu mig að rappa brot úr laginu Hot N*igga eftir Bobby Shmurda. Sem áhugarappari og af viðleitni til að færa afmælisbarninu sem skemmtilegasta kveðju og veita þeim sem pantaði hana sem mest virði fyrir peninginn, varð ég við þessari ósk.
Segir í fréttinni á DV um málið að „síðan [hafi mér byrjað] að berast alls kyns hatursskilaboð, og reyndar mjög pen og fín skilaboð líka, þar sem fólk benti mér á að þetta væri eiginlega ekki við hæfi, að segja N-orðið sem hvítur maður. Þá kveikti ég strax á perunni vegna þess að ég hef náttúrulega séð þetta í bíómyndum og var alveg meðvitaður um það innst inni að það væri ekki til fyrirmyndar að segja N-orðið sem hvítur maður, hvað þá 10 sinnum í einu myndbandi.“
Ég baðst opinberlega afsökunar á umræddu glappaskoti og þurfti að árétta að ég er alls ekki rasisti. Segir í fréttinni: „Engill sá að sér og ákvað að biðjast opinberlega afsökunar á notkun orðsins. Hann eyddi myndbandinu svo út af öðrum samfélagsmiðlum, Instagram og Facebook. Hann hélt því þó enn þá inni á TikTok þar sem hann hafði fengið greitt fyrir að gera það. […] „Afsökunarbeiðnin hefur fengið góðar viðtökur á TikTok. „Vel gert. Þeir sem átta sig á mistökum sínum eru sterkari en þeir sem ekki höndla það að sjá sín mistök.““
Nei, ég er alls ekki rasisti. Raunar er ég eins langt frá því að vera kynþáttahatari og hugsast getur. Ég fyrirlít aldrei. Með einni undantekningu: Ég fyrirlít hatursfullt hugarfar og hegðun í garð annarra. Dómhart og dramblátt framferði á ekki rétt á sér. Er ég dómharður í þessum skrifum? Vissulega. En það er undantekning. Og þessi pistill er til að vekja athygli á vankanti samfélagsins í dag. Vonast ég til að heimur batnandi fari. Óréttlæti af öllum toga er skaðlegt. Það er vírus sem deilir fólki heimsins og etur því saman í endemis vitleysu.
Deildu og drottnaðu (latína: divide et impera) eru hin fleygu orð sem kennd eru við Júlíus Sesar. Þau eru viðeigandi í þessu sambandi til að lýsa ástandi nútímasamfélags. Hitt er annað mál að ég hef miklar efasemdir um manngæsku Sesars en hann er vitaskuld álitinn árangursríkasti herforingi sögunnar. Nálgun hans virkaði því vafalaust. Því miður virkar hún enn á vorum dögum og er viðhöfð á mörgum sviðum samfélagsins. Sundrung leiðir aðeins til hnignunar og særinda. Samstaða leiðir til sælu og sáttar. Ég er ekki karlremba. Ég er ekki femínisti. Ég er ekki kynþáttahatari. Ég er ekki þjóðrembingsmaður. Ég er RÉTTLÆTISMAÐUR og JAFNRÉTTISMAÐUR. Ég kalla til réttlætis og jafnréttis í samfélaginu; í kynjum og kynþáttum. Sem segir í ævintýrinu: Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir. Eigum við ekki ekki að fara að fordæmi ævintýradýranna?
Að lenda í léttvægu mótlæti fyrir téð myndband á TikTok og sjá á sama tíma þann óréttmæta hrylling sem Sölvi Tryggva hefur gengið í gegnum, er auðmýkjandi og innblés þennan pistil. Það sýndi mér hve vel ég slapp. En hvað ef einhver hefði gert aðför að mínu mannorði? Það eru allir berskjaldaðir í dag. Og eina lausnin er að standa saman. Ég lýsi yfir óhaggandi stuðningi með Sölva í þessu máli. Ekki á grundvelli karlrembu. Heldur á grundvelli RÉTTLÆTIS og JAFNRÉTTIS.
Frægt fólk sem framleiðir efni sem bætir líf fólks á ekki að vera skotmark illgjarna aðila sem færa heiminum ekki neitt en leitast við að draga úr þeim sem eru fyrirmyndir í samfélaginu. Sölvi framleiðir hágæða hlaðvörp sem hann færir þjóðinni frítt og er fyrirmynd í íslensku samfélagi í starfi sínu og sem einstaklingur. Það skiptir engu máli að hann sé karlmaður. Það á enginn skilið að lenda í opinberum og/eða persónulegum árásum. Þeir sem leggja stund á slíka illsku ættu að iðrast rækilega og bæta ráð sitt. Fólki er í sjálfsvald sett hvort það er í sviðsljósinu og helgar líf sitt því að færa heiminum dýrmætar gjafir í formi hlaðvarpa, bóka, afþreyingar eða hvers kyns annarra gjafa sem bæta líf annarra. Engum ber skylda til að vera opinber persóna. En það er skilyrði og skylda að þeir sem ekki eru í sömu stöðu og Sölvi, segi honum ekki stríð á hendur.
Frægt fólk er alltaf að einhverju leyti umdeilt. Hver og einn er í rétti að meta frægan annað hvort mikils eða lítils. En ef, einhverra ástæðna vegna, aðilar eru persónulega andvígir frægum eða hans starfi, réttlætir það aldrei árásir í hans garð. Sagt er að í stríðum tapi allir. En í þessu stríði vinnur Sölvi Tryggva. Og ég er afar stoltur af honum að standa sterkur af sér óréttlætið. Á sama tíma vil ég koma þeim skilaboðum áleiðis til meingerðarfólks að líta í eigin barm og halda hatri sínu út af fyrir sig en ausa ekki óhróðri yfir þjóðarinnar fremstu fyrirmyndir. Það er bara til einn staður fyrir slíkt meingerðarfólk og hann kallast helvíti að því er segir í frægasta riti allra tíma að nafni Biblían. Þessir aðilar ættu kannski að verða sér út um eina slíka og iðrast synda sinna.
Ég er réttlætismaður. Ég er jafnréttismaður. Ég er velviljaður öllum. En mér misbýður stórlega óréttmætar árásir sem byggðar eru á gremju og illmennsku og lygum – einkum og sér í lagi þegar þeim er beitt í garð göfugra manna eins og Sölva Tryggva sem færir Íslendingum aðeins gott. Fyrir það á hann eingöngu þakklæti skilið. Því fer verr að frægt og framkvæmdasamt fólk þarf að lifa í ótta um mannorðsárásir. En við sigrum ætíð sem komum fram við bræður og systur okkar í samfélaginu af vinsemd og virðingu og helgum líf okkar betrumbótavinnu á samfélaginu.
Þetta var allt og sumt. Ég varð að koma þessu frá mér því mér er stórlega misboðið. Ég er hneykslaður inn að innsta kjarna á vitleysunni. Hún nær engri átt. Vitleysan verður að stoppa.
Hér er brot úr ljóði sem ég orti í vikunni og er viðeigandi að slá botninn í pistilinn með því:
Í speki Krists segir
að þú skilyrðislaust
af alúð beita eigir
við aðra þinni raust.
Í garð samferðasála
skal stuðning æ sýna;
í fólks minningu mála
mjúka framkomu þína.
Lög mannvillu laugar
má lengi sniðganga,
hafirðu tillitstaugar
til þinna ferðalanga.
Fyrir vinsemd í veruleik,
verðlaun þér tryggir
Konungurinn af kærleik
en köld hjörtu hryggir.
Illir vonsviknir verða
því vegsemdarbál
syndirnar skerða
og syndugum hál
eru sannkristin skref.
Skáldið góðlega biður
alla sín að iðrast ef
orð þeirra rífa aðra niður.































Athugasemdir