Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tveir nánir vinir Alfreðs voru ofbeldismenn: „Hressir, sjarmerandi og færir lygarar“

Tveir nánir vinir Alfreðs voru ofbeldismenn: „Hressir, sjarmerandi og færir lygarar“

„Ég hef allt of lengi hugsað um að skrifa þennan pistil/hug­leið­ingu en hikað við af röngum ástæðum. Ég þurfti fyrst að spyrja mig fyrir hvern ég ætti að skrifa og hvaða til­gangi það ætti að þjóna. Mín helsta von er að þessi pist­ill muni hugs­an­lega opna augun á fólki enn frekar (fyrst og fremst karl­mönnum) um hversu algengt kyn­ferð­is­of­beldi er í okkar sam­fé­lagi og að halda umræð­unni áfram. Ég geri þetta líka fyrir sjálfan mig að létta af mér og deila minni reynslu, skrifar Alfreð Jóhann Eiríks­son í færslu á Facebook.

Fjöldi fólks hefur fagnað skrifum Alfreðs.

„Í dag, tveimur árum eftir að ég byrj­aði á þessum pistli ákveð ég að senda hann loks­ins frá mér í til­efni seinni MeToo bylt­ing­ar­innar, sem er eins gott til­efni og nokkuð annað.

Stuttu eftir fyrri #Metoo bylt­ing­una, þegar umræðan um kyn­ferð­is­of­beldi opn­að­ist fyrir alvöru átt­aði ég mig á að nán­ast hver ein­asta vin­kona sem ég á hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Það segir mér nokkuð skýrt hvers konar sam­fé­lagi við búum í og hvað við eigum langt í land með að útrýma kynja­mis­rétti og kyn­ferð­is­of­beldi. Ég held að það sé nokkuð öruggt að lang­flestir eiga vin/vin­konu sem hefur lent í ein­hverju tagi af kyn­ferð­is­of­beldi en það eru ekki allir sem treysta sér í að deila slíkri upp­lifun með hverjum sem er.“

Leyfði þeim að njóta vafans

„Síðan ég var í grunn­skóla hef ég átt alla­vega tvo nána vini sem kom í ljós að væru ofbeld­is­menn og beittu margar stelpur grófu ofbeldi. Ég við­ur­kenni að í báðum þessum til­vikum átti ég erfitt með að sætta mig við þann raun­veru­leika og brást ekki rétt við því strax. Í báðum til­vikum gaf ég þeim tæki­færi á að útskýra sitt mál og gerðu þeir það svo listi­lega og með svo leik­rænum til­brigðum að ég leyfði þeim að njóta vafans (eflaust líka vegna þess að það var auð­veld­ara fyrir með­virkan ein­stak­ling eins og mig, sem er ömur­legt og því miður mjög algengt).

Þegar fleiri stelpur stigu fram og það fór ekki á milli mála að þessir menn væru klár­lega sekir þá sneri ég baki við þessum mönnum og hef aldrei litið aftur vegna þess hvor­ugur þeirra hefur séð að sér og leitað sér hjálpar og/eða reynt að bæta upp fyrir þann skaða sem þeir ollu. Enn þann dag í dag líður mér illa að hafa ekki áttað mig á þessu fyrr og séð öll rauðu flöggin hjá þessum strákum.

Þetta er ein helsta ástæðan fyrir að ég skrifa þetta því ég vona að þetta vekji a.m.k. ein­hvern til umhugs­unar og hvetji þann til að gera allt sem hann/hún getur til að varpa ljósi á og koma í veg fyrir ofbeldi. Það sem þessir tveir áttu sam­eig­in­legt, sem og margir aðrir ofbeld­is­menn, er að þeir voru hressir, sjar­mer­andi, færir lygarar og komu oft­ast vel fram (sér­stak­lega við karl­kyns vini sína) en töl­uðu oft illa um kven­fólk og sögðu ógeð­fellda brand­ara svo eitt­hvað sé nefnt. Mér finnst bara svo mik­il­vægt að fólk fatti að þetta getur verið hver sem er, í alvöru.“

Meðvirkning þrífst

Í þessu sam­fé­lagi okkar þrífst svo mikil með­virkni og afneitun að það hálfa væri nóg. Margir annað hvort vilja ekki trúa sögum um ofbeldi upp á náung­ann, reyna að þagga niður í umræð­unni eða gerir ekki neitt því það finnst þetta ekki koma því við og „vill ekki vera partur af neinu drama”.

Allt of oft heyrir maður eitt­hvað á þessa leið „þetta meikar ekki sens, hann er svo ótrú­lega næs” eða „batn­andi mönnum er best að lifa” – ég er sam­mála því en þá ÞARF mann­inum að fara batn­andi í alvöru. Að því sögðu vil ég líka segja að ég hef líka þekkt nokkra sem hafa komið illa fram og brotið af sér en mun­ur­inn þar er að þessir aðilar hafa séð að sér, beðist fyr­ir­gefn­ingar og gert allt í sínu valdi til að bæta upp fyrir gjörðir sínar.

Ég er sam­mála þeirri umræðu sem margir hafa talað um að skrímsla­væð­ing og nafn­grein­ingar sé ekki rétta leiðin til að upp­ræta nauðg­un­ar­menn­ingu heldur sé besta leiðin að halda umræð­unni áfram, að fræða og upp­lýsa fólk (sér­stak­lega ungt fólk). Ég hef tekið eftir að sumir karl­menn eru fljótir að byrja að tala um rang­mætar ásak­anir sem er auð­vitað grafala­var­legt mál líka og aldrei í lagi, en við verðum að muna að það er ekki nema um 2-5% til­fella í svona málum og eins og ein­hver sagði; ég vil frekar óvart verja lygara en að verja nauð­gara. Ég hef því miður séð það með eigin augum hvernig ofbeldi getur sett líf mann­eskju á hvolf og ég er svo stoltur af öllum þolendum sem hafa lifað það af og sendi þeim öllum hlýjan straum og orku sér­stak­lega á þessum erf­iðu tímum.

Vandmeðfarin og erfið umræða

Að lokum vil ég segja, ég veit að þetta er ótrú­lega vand­með­farið og þetta ER erfið umræða en hún er samt sem áður nauð­syn­leg. Við (sér­stak­lega karl­menn) þurfum að leita inn á við en líka skoða vina­hópana okkar og ræða málin. Ef ein­hver sem les þennan pistil langar að ræða við mig um eitt­hvað þá má sá aðili endi­lega hafa sam­band við mig í einka­skila­boðum eða ræða við mig í per­sónu,“ skrifar Alfreð Jóhann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi