Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eftir meðferðina hóf Sævar líf sem karlmaður: „Það var pissað á rúmið mitt“

Eftir meðferðina hóf Sævar líf sem karlmaður: „Það var pissað á rúmið mitt“
Sævar Torfason er Trans­maður. Mynd: Róbert Reynisson

„Ég byrj­aði í neyslu um 15 ára ald­ur­inn og drakk strax mjög illa. Ég var ekk­ert að sötra bjór, fór strax í Vodkað. Fyrsta minn­ingin mín af hug­breyt­andi efnum er þegar ég var hand­tek­inn í fyrsta skipti, ofurölvi og kom fram í fréttum og allt,” segir Sævar Torfason sem hefur vakið gríð­ar­lega athygi á sam­fé­lags­miðl­inum TikTok þar sem hann deilir hrein­skiln­is­lega sögu sinni sem fík­ill og trans­maður.

„Ég man eftir að hafa verið á lög­reglu­stöð­inni og hafa orðið í í fyrsta skipti vitni að lög­reglu­of­beldi. Þarna var strákur sem ég kann­að­ist við og það voru fimm lög­reglu­menn á honum, þar af tveir með skildi og hentu honum inn í klefa og bombuðu hann hand­járn­aðan niður”.

Var ekki húsum hæfur

Sævar er glæsi­legur tæp­lega 25 ára ungur maður. Við hitt­umst í hús­næði 12 spora sam­taka sem eru honum aug­ljós­lega kær. „Ég sat einmitt í þessum sama stól þegar ég kom út. Ég held samt að það hafi ekki komið mörgum á óvart,“ segir hann og hlær.

Sævar upp­lifði sig aldrei sem stúlku.

Sævar seg­ist hafa verið erfitt barn.

„Ég var rosa­lega óþekkur, byrj­aði ungur klifa upp á þök og stela úr búðum. Ég var síðan greindur með ADHD um fimm ára ald­ur­inn og settur á lyf. Annars man ég tak­markað eftir æsku minni. Ég man reyndar áföllin en síður góðu stund­irnar. Neyslan er búin að skaða mig mikið, minnið á mér er til dæmis í algjöru fokki og ein­beit­in­ing er lítil.  Ég er reyndar með hell­ing af grein­ingum, til dæmis ofsa­kvíða, þung­lyndi  og fíkni­sjúk­dóm. Ég er með marga galla en ég hef lært að vinna með þeim”.

Sævar var reglu­lega á stuðn­ings­heim­ilum og sendur á BUGL þegar hann var 10 ára. „For­eldrar mínir reyndu það sem þau gátu en ég var ekki húsum hæfur. Ég flutti frá móður minni og til föður míns 12 ára og var sendur á Stuðla þegar ég var 14 ára”.

Æskuárin voru Sævari erfið.

Sævar verður dapur þegar hann rifjar upp vist­ina á Stuðlum.

„Þetta er ein af mínum verstu lífs­reynslum og ég get enn ekki ekið þarna fram­hjá án þess að hjartað fari á fullt. Ég pass­aði ekki inn í hóp­inn og það var til dæmis pissað á rúmið mitt. Krakk­arnir þarna voru að koma inn út af neyslu en ég var að koma inn út af hegð­un­ar­vanda, ég var ekki einu sinni byrj­aður að reykja sígar­ettur. Þarna byrj­aði með­ferð­ar­bröltið”.

Leið sífellt verr

Þessi ár voru mikil mót­un­arár  fyrir Sævar.

„Þarna er kyn­þrosk­inn að byrja og allt sem því fylgir, blæð­ingar og brjóst og mér leið sífellt verr. Ég byrj­aði að setja upp grímur. Ég týndi mér á þessum árum því allt líf mitt var leik­rit. Ég var alltaf að reyna að fitta inn, þókn­ast þessum og hinum svo ég vissi ekki lengur hver ég var. Þannig liður mörg ár Ég vissi ekki hvað trans var fyrr en 2015 þegar ég var á Vogi og hitti þar trans­strák sem líka var í með­ferð. Þá komst ég loks­ins að því hver ég var“.

Sævar er búinn að vera edrú í 11 mán­uði og 19 daga. Hann er að fara í nám í Hringsjá, náms- og starfsend­ur­hæf­ingu og stefnir síðan á mat­reiðslu­braut í MK. „Mér finnst ofsa­lega gaman að elda. Reyndar lang­aði mig alltaf í lögg­una en með mína reynslu af und­ir­heimunum er ég ekki viss”.

Slengdi í smettið á þeim

Hann hefur deilt veg­ferð sinni sem trans­maður hrein­skiln­is­lega á TikTok og er óhræddur við að svara öllum þeim spurn­ingum sem að honum bein­ast.

Sævar sem barn.

„Það eru margir sem vilja ekki láta aðra vita að þeir séu trans, bæði út af for­dómum og svo kemur það í raun engum við hvað fólk er með á milli lapp­anna. Þegar ég kom út árið 2015 sendi ég bréf til systur minnar og pabba sem vissu ekki hvað trans var. Ég slengdi þessu bara í smettið á þeim!  Ég var eig­in­gjarn og veit í dag að þótt ég sé sá sem er í horm­óna­gjöf­inni og aðgerð­unum, þá er öll fjöl­skyldan að ganga í gegnum þetta”.

Eftir með­ferð­ina fór Sævar heim og hóf líf sem karl­maður.

„Það var erfitt, ég vissi tak­markað um þetta eða hvað ég var að koma mér út í nema ég var alveg viss um að þetta væri rétt ákvörðun. Ég hef aldrei litið til­baka eða efast um sjálfan mig um eina sek­úndu. Ég grét til dæmis á sjúkra­hót­el­inu þegar brjóstin voru fjar­lægð, ég fann fyrir svo miklu frelsi. Öll þessi ár sem ég var þung­lyndur og leið illa, ég sá bara heim­inn í allt öðru ljósi þegar ég kom út”.

Pjúra kjaftæði

Árið 2018 hófst ferlið form­lega hjá Sævari. Hann hefur látið fjar­lægja brjóst og er að jafna sig eftir leg­nám. Með tím­anum hyggur hann á aðgerð á kyn­færum.

„Ég hef verið hepp­inn og kom­ist hratt í gegnum þetta. Ég fór í tvo tíma til geð­læknis og var síðan í hálft ár hjá sál­fræð­ingi í tran­steym­inu. Þetta er meira mál en margir halda.”

Helsti stuðn­ings­að­ili Sævars í gegnum ferlið er systir hans.

„Ég og systir mín eru mjög náin í dag, enn nán­ari en við vorum áður. Ég á bréf frá henni sem hún skrif­aði mér 2018 og ég tárað­ist”.

Augu Sævars fyll­ast af tárum.

„Ég tár­ast enn þann dag í dag því með þessu bréfi var hún að sam­þykkja mig og um ára­mótin sagði hún í fyrsta skipti gleði­legt ár, bróðir minn. Við ólumst upp í krist­inni trú svo þetta er að fara gegn hennar trú­ar­skoð­unum en hún styður fyrst og fremst bróður sinn”.

Sævar í sama stól í 12 spora­húsi og hann sat í þegar hann kom út.

Með færslum sínum á TikTok er Sævar að koma tvennu til skila: Að fá unga fólkið til að skilja trans auk þess að fræða þau um hættur fíkni­efna­neyslu. „Ég var í öllu og fór sífellt lengra. Margir þess­ara krakka segja til dæmis grasið skað­laust en það er pjúra kjaftæði. Ég fór í grasið eftir áfengið en það var ekki nóg, ég þurfti sífellt að fara lengra. Þessir krakkar vita ekk­ert hvað þeir eru að koma sér út í. Ég á marga vini sem eru skemmdir í dag út af gras­inu og hef misst annað eins af vinum.“

Einn góðan veð­ur­dag fékk Sævar nóg. „Ég gat ekki meira og tókst að verða edrú án hjálpar. Það var ógeðs­lega erfitt en ég var búinn á því, gat ekki lengur óheið­ar­leik­ann og leik­ara­skap­inn. Lífið fer fram­hjá þér í neyslu. Þetta var alltaf sami víta­hring­ur­inn, geð­rof, para­noja og felu­leikur“.

Sama um álit annarra

„Eftir af hafa farið í 12 spora­sam­tök og fengið mikla ráð­gjöf gat ég farið að tjá mig og gerði það á TikTok. Það var erfitt og óþægi­legt að opna sig í byrjun en í dag er ég óhræddur við það. Áður var ég rosa­lega háður áliti ann­arra á mér en í dag er mér alveg sama“.

Sævar seg­ist í dag vera glaður og frjáls.

„Ég er líka nægju­samur. Nægju­semi er sterkt orð. Ég bý með hópi fólks á áfanga­heim­ili, er öryrki og öll mín fjöl­skylda er á Akureyri. Ég á ekki mikið af pen­ingum en ég sáttur við mig eins og ég er í dag og reyni alltaf að gera betur en í gær. Ég er ham­ingju­samur,“ segir Sævar Torfason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina