Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Flótti frá Samfylkingu yfir í Framsókn- Ingibjörg Sólrún ánægð með Sigrúnu Elsu

Flótti frá Samfylkingu yfir í Framsókn- Ingibjörg Sólrún ánægð með Sigrúnu Elsu

Tals­verður uggur er ríkj­andi innan Sam­fylk­ingar vegna þess að þunga­vigt­ar­fólk er að yfir­gefa flokk­inn og ganga til liðs við Fram­sókn­ar­flokk­inn. Þannig eru tveir úr þunga­vigt Sam­fylk­ingar komnir á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur til næstu alþing­is­kosn­inga. Þórunn H. Svein­björns­dóttir, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara, skipar þriðja sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík norður. Hún er fyrr­ver­andi vara­þing­maður Alþýðu­flokks­ins og einn af stofn­endum Sam­fylk­ingar.

Sigrún Elsa Smára­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar, skipar þriðja sætið á lista flokks­ins í Reykja­vík suður. Hún útskýrir flokka­skiptin á Facebook. Skilja má á henni að bar­átt­u­gleðin innan Sam­fylk­ingar sé dvín­andi.

„Ég gaf fyrst kost á mér til stjórn­mála­þátt­töku því ég hreifst af umbóta­vilja og fram­kvæmda gleð­inni hjá Reykja­vík­ur­list­anum. Það var frá­bær, gef­andi og góður tími sem ég lít til baka á með stolti. Það má segja að nú gefi ég kost á mér á ný því ég finn sömu kraft­ana innan Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mér leist vel á nýja for­ystu flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar og enn betur eftir þetta kjör­tíma­bil. Þau hafa sannað sig svo um munar og ég hlakka til að taka þátt í starf­inu… þetta verður svo gaman!“.

Eftir því er tekið að Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ingar, sýndi vel­þóknun sína með því að setja „like“ við færslu Sigrúnar Elsu um flokka­skiptin. Sama gerir Katrín Júl­í­us­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra Sam­fylk­ingar. Ekkert hefur þó komið fram um að ánægjan sé vís­bend­ing um að Ingi­björg eða Katrín muni kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn. Þá sýndi Helgi Hjörvar, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar, vel­þóknun sína.

Innan Sam­fylk­ingar hefur verið mikil óánægja með það að reyndu fólki hefur verið hafnað við val á fram­boðs­lista og nýtt fólk hefur tekið við kefl­inu. Flokk­ur­inn gekk í gegnum mikið áfall árið 2013 þegar fylgi hans hrundi og flokk­ur­inn missti um helm­ing fylgi síns. Enn syrti í álinn 2016 þegar flokk­ur­inn þurrk­að­ist nán­ast út. Það varð honum til bjargar að Logi Ein­ars­son, núver­andi for­maður varð lands­kjör­inn í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og dró með sér tvo upp­bót­ar­þing­menn. Árið 2017 fékk flokk­ur­inn, undir stjórn Loga Ein­ars­sonar, sjö þing­menn. Kannanir hafa und­an­farið sýnt að flokk­ur­inn á undir högg að sækja og er fjarri því að ná fyrri stöðu að vera með yfir 32 pró­senta fylgi svo sem gerð­ist í for­mennsku­tíð Össurar Skarp­héð­ins­sonar. Nýjustu mæl­ingar benda til þess að Sam­fylk­ing fái 13 pró­senta fylgi sem er tals­vert meira en í kosn­ingum en langt undir vænt­ingum.

Ber­sýni­legt er að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ætlar sér stóra hluti í Reykja­vík þar sem flokk­ur­inn hefur lengi glímt við fylg­is­leysi. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, leiðir í Reykja­vík norður. Hann nýtur gríð­ar­legra vin­sælda fyrir störf sín í þágu barna og efna­m­inna fólks. Þá er list­inn popp­aður hressi­lega upp með áhrifa­vald­inn Brynju Dan Gunn­ars­dóttur, frum­kvöðul og fram­kvæmda­stjóra, í öðru sæti

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, leiðir fram­boðs­lista Fram­sóknar í Reykja­vík suður. Hún hefur notið gríð­ar­legra vin­sælda og gjarnan verið talin for­maður fram­tíð­ar­innar. Jafn­rétt­is­brot hefur sett kusk á hvít­flibba hennar. Í öðru sæti á eftir henni er Aðal­steinn Haukur Sverr­is­son fram­kvæmda­stjóri og í þriðja sæti er Sigrún Elsa.

Ljóst má vera að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tjaldar öllu til svo hann nái fót­festu í Reykja­vík. Og helstu veiði­lendur hans eru þar sem Sam­fylk­ing hefur áður sótt fylgi sitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina